Skessuhorn - 07.03.2018, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 201820
„Ég fór í fyrsta megrunarklúbbinn
þegar ég var sjö ára gömul. Ég var
með spjald og var vigtuð og mæld,“
segir Jóhanna Sigmarsdóttir, sem
fór í magabandsaðgerð fyrir rúmu
ári. „Ef ég hafði misst kíló yfir vik-
una þá fékk ég að velja mér verðlaun
og ég valdi alltaf að fara á Pizzahús-
ið sem var þá á Grensásveginum.“
Þannig lýsir Jóhanna því hvernig yf-
irþyngdin hefur plagað hana allt frá
æsku. Hún ákvað fyrir rúmu ári að
reyna svokallaða magabandsaðgerð
sem missheppaðist. Í viðtalinu heyr-
um við sögu Jóhönnu.
Jójó í mörg ár
Jóhanna ólst upp í Reykjavík, en býr
núna á Akranesi ásamt manni sínum
og tveimur börnum þeirra. Sjálf á Jó-
hanna fjögur börn í viðbót, sem búa
hjá fyrrverandi eiginmanni hennar
í Vestmannaeyjum. Henni líka vel
á Akranesi. „Ég er í fæðingarorlofi
eins og er, en er að byrja að vinna
uppi á Dvalarheimilinu Höfða í um-
önnun.“ Hún á stutt eftir til að ljúka
námi fyrir sjúkraliðann og stefnir að
því í framtíðinni; „þó maður sé orð-
inn þetta gamall,“ skýtur hún bros-
andi inní. „Ég byrjaði svo ung að eiga
börn svo skólinn var tekinn í stuttum
skorpum,“ segir Jóhanna sem eign-
aðist fyrsta barnið átján ára en fyrsta
stjúpbarnið sautján ára. Alls á hún
sjö börn í dag, að meðtöldu stjúp-
barninu. Tvö börn búa hjá fyrrver-
andi eiginmanni Jóhönnu en hin eru
flutt að heiman. Tvö yngstu börnin,
þriggja ára og hálfsárs, á hún með
núverandi manni sínum.
Fyrir rúmu ári síðan gekkst Jó-
hanna undir magabandsaðgerð í
Keflavík. Aðgerðin gekk ekki sem
skyldi og er hún magabandslaus í
dag. „Ég hef alltaf verið í yfirvigt,“
segir hún. „Ég hef oft tekið mig á og
misst mörg kíló. Ég hef farið í einka-
þjálfun og misst þrjátíu kíló. En
þau hafa alltaf komið aftur.“ Kílóin
skila sér aftur hægt og rólega þegar
einkaþjálfun er lokið, gamlar hefðir
séu fljótar að snúa aftur. Hún lýsir
sjálfri sér sem jójói; hún fari upp og
niður á vigtinni. Árið 2016 vildi Jó-
hanna gera eitthvað róttækt í sínum
málum. Þá bjuggu hún og núverandi
eiginmaður hennar í Noregi. Hún
rak augun í auglýsingu um maga-
band og fékk strax áhuga á því að
láta reyna á svona aðgerð. „En þessi
aðgerð er ekki gerð í Noregi svo ég
lagði þetta bara á hilluna.“
Fullkomnir kandídatar
Magabandsaðgerð er framkvæmd
þannig að sílíkon hringur er settur
utanum magaopið á sjúklingnum.
Hringurinn er tengdur með slöngu
við port sem er fest framan á maga-
vegginn. Í gegnum portið er hægt að
bæta vatni í bandið, eða minnka vatn
í bandinu. Þetta veldur því að maga-
opið þrengist eða víkkar, eftir því
hvað er gert. „Þú getur borðað hvað
sem er, en þú kemur ekki eins miklu
niður í magann,“ útskýrir Jóhanna.
Við þrenginuna sendi maginn frá sér
merki um að maginn sé fullur og því
verður viðkomandi södd eða saddur
fyrr.
Þau hjónin komu þó fljótlega
heim aftur frá Noregi, eða í októ-
ber 2016. „Þá var ég búin að sjá að
það væri skurðlæknir að framkvæma
þessa aðgerð á Íslandi.“ Þau hjónin
ákváðu að kíkja í viðtal til læknisins.
„Maðurinn minn er líka í mikilli yf-
irvigt svo við ákváðum að fara saman
að forvitnast um þetta.“
Þau fóru saman í eitt viðtal til
læknisins sem rekur einkastofu í
Keflavík en er einnig með skrifstofu
í Domus Medica. „Hann sá strax að
við værum kandídatar í allar skurð-
aðgerðirnar; magaband, magaermi
og hjáveituaðgerð á Reykjalundi.“
Þau máttu síðan bara hafa sam-
band ef þau hefðu áhuga á að láta til
skara skríða. „En svona aðgerð kost-
ar eina milljón króna svo við höfð-
um bara efni á því að að annað okkar
gerði þetta,“ segir Jóhanna. Maður-
inn hennar hafi ekki sýnt því áhuga
að fara í aðgerð og því ákvað Jó-
hanna að slá til. „Ég hef alltaf verið í
kringum hundrað kíló og mig lang-
ar svo að vera um það bil sjötíu og
tvö kíló.“ Aðgerðin var því bókuð og
framkvæmd í lok janúar 2017.
Sýking og gríðarlegir
verkir
„Fljótlega eftir aðgerðina fór að bera
á roða í kringum skurðinn, við port-
ið,“ segir Jóhanna sem samvisku-
samlega merkti roðann með penna
til að fylgjast með. Þegar roðinn var
orðinn á stærð við lófa ákvað hún
að láta kíkja á portið hjá sér. „Ég lét
kíkja á þetta á stofunni hjá læknin-
um. Hann sagði það það eina í stöð-
unni væri að fjarlægja portið. Þá er
aðgerðin í raun og veru ónýt,“ segir
Jóhanna. Þá sé ekki hægt að stjórna
vatnsmagninu í bandinu lengur. Tek-
in var ákvörðun um að taka portið og
klippa á slönguna sem tengist maga-
bandinu.
„Um leið og hann klippir á slöng-
una finn ég verk í magasvæðinu.“
Læknirinn sagði það vera fylgikvilla
þess að portið væri fjarlægt. Það
ætti að líða hjá á nokkrum dögum.
Skurðurinn var ennþá opinn og átti
að vera þangað til sýkingin væri farin
að fullu. „Ég var sett á sýklalyf og svo
var sett tróð í skurðinn. Ég fer svo
heim og á að koma og láta skipta á
þessu reglulega.“ Verkurinn í kring-
um magann var þó enn á sínum stað.
„Svo var enginn vökvi í bandinu og
ég gat borðað hvað sem er.“
Á bráðamóttöku
vegna verkja
Jóhanna fékk símanúmer hjá lækn-
inum til að hringja í til að láta vita ef
eitthvað væri að. Hún segir að hún
hafi fengið þau skilaboð frá Land-
spítalanum að þau gætu lítið grip-
ið inn í þar sem aðgerðin var fram-
kvæmd á einkastofu af lækni sem er
ekkert tengdur spítalanum. „Ég var
komin á þann stað að verkirnir voru
það miklir að ég gat varla andað né
gengið. Ég átti mjög erfitt með and-
ardrátt og endaði niðri á bráðamót-
töku í eitt skipti.“ Þar lá hún í nokkra
tíma áður en hún var send heim aft-
ur.
Jóhanna er ekki ánægð með vinnu-
brögð læknisins sem framkvæmdi
aðgerðina. Hún lét reglulega skipta á
skurðinum, eins og henni var sagt að
gera. Allt fór það fram í Reykjavík á
stofunni hans í Domus Medica. Oft-
ast sá hjúkrunarkona um að skipta
á sárinu og þá var öllum hreinlæt-
isstöðlum fylgt. Allt hafi verið til-
búið áður en hún kom og hjúkrunar-
konan var með hanska við vinnuna.
„Tvisvar þurfti hann sjálfur að skipta
á þessu. Í bæði skiptin var hann ekki
með neitt tilbúið og notaði ekki
hanska. Mér fannst þetta ekki fag-
legt,“ segir Jóhanna og bætir við að
hún skilji ekkert í sjálfri sér að hafa
ekkert sagt þá. Jóhanna var með opið
sár á maganum í um tvo mánuði.
Ólétt í aðgerð
Verkurinn við magann fór ekki og
að endingu var tekin sú ákvörðun
að taka magabandið alveg um þrem-
ur til fjórum vikum eftir að það var
sett á. Það þýddi ný aðgerð með
svæfingu. Þá var þegar komið í ljós
að Jóhanna væri ólétt. Ákveðið var
að láta til skara skríða engu að síð-
ur. „Ætli ég hafi ekki verið komin
um níu vikur þegar ég er svæfð aft-
ur.“ Hún upplifði mikla óvissu þeg-
ar hún fór í aðgerðina og er sérstak-
lega minnisstætt þegar settur var
upp æðaleggur með drippi sem var
síðan snarlega rifinn úr henni aft-
ur. „Ég var margbúin að endurtaka
að ég væri ólétt. Ég bara skil þetta
ekki. Það vissu allir að ég væri ólétt.
Ég var ólétta konan með magaband-
ið sem fékk sýkingu.“ Barnið hlaut
þó engan skaða og er hress nokkurra
mánaða piltur í dag og sefur úti í
vagni á meðan blaðamaður ræðir við
Jóhönnu. Af og til má heyra sældar-
stunu í talstöðinni sem fylgist með
honum í vagninum.
Stórt ör til minningar
Jóhanna var með opið sár eftir að-
gerðina í tvo mánuði. „Mér var boð-
ið að fá magabandið aftur eftir fæð-
inguna eða fá bara endurgreitt,“ seg-
ir Jóhanna. Enginn vafi hafi þó verið
í huga hennar eftir þess lífsreynslu og
hún þáði að fá endurgreitt. Í dag er
hún ekki með magaband, aðeins sex
sentímetra ör á maganum til minn-
ingar um aðgerðina. „Ég myndi ekki
óska mínum versta óvini að ganga
í gegnum þennan sársauka sem ég
var með þegar magabandið var enn í
mér. Ég er búin að fæða fjögur börn
og tvö tekin með keisara. Þetta var
verra en það.“ Í dag er hún töluvert
léttari en þegar hún fór í aðgerðina,
enda með tvö ung börn og saman
hafa þau hjónin nýlega gerst stuðn-
ingsfjölskylda hjá Akraneskaupstað.
Hugarfarið skrýtið
„Ég myndi ekki ráðleggja neinum að
gera þetta nema lífið lægi við,“ seg-
ir hún með áherslu. „Ekki fá þenn-
an aðskotahlut inn í líkamann.“ Hún
segir að hugarfarið fyrir svona að-
gerðir sé brenglað. „Mér finnst þetta
næstum eins og fólk sé bara að fara
í plokk og lit.“ Hún þekkir marga í
kringum sig sem hafa farið í einhvers
konar aðgerðir og þá helst maga-
bandsaðgerð. Fjölmargir séu í vand-
ræðum eftir aðgerðina en oftast sé
ekki talað um þá sem eiga í erfið-
leikum eftir svona aðgerðir. Meira
er horft til þeirra sem hafa náð gríð-
arlegu þyngdartapi. „Svo þekkti ég
eina sem lést eftir að hafa magaermi
hjá þessum skurðlækni.“ Hún segir
að það sé ekkert auðvelt við að fara
í svona skurðaðgerð. Þetta sé inn-
grip í líkamann og líkaminn sé lengi
að jafna sig eftir það. „Mín tilfinning
er að þetta sé nokkurs konar færi-
bandavinna þarna í Keflavík.“ Eitt
sé þó víst að þótt aðgerðin hafi ekki
gengið fyrir hana þá séu margir sem
séu í skýjunum með þær. „Sumir
elska þetta, aðrir hata þetta. Þetta er
ekki allra. En af hverju að fara í þessa
aðgerð? Það eru margar aðrar leiðir
til að grípa inn í.“ klj
Gekkst undir magabandsaðgerð sem misheppnaðist
Jóhanna Sigmarsdóttir segir hugarfarið fyrir magaaðgerðir brenglað
Jóhanna og fjölskyldan sem býr á Akranesi. Atli, dóttirin Kristrún Huld og sonurinn
Jökull Veigar.
Jóhanna Sigmarsdóttir.
Jóhanna segir að fólk eigi að hugsa sig um oftar en einu sinni og oftar en tvisvar
áður en ákveðið er að fara í aðgerð til að auka þyngdartap.