Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 201824
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110
www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is
Hönnum, prentum og merkjum
fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök og fyrirtæki
Smáprent
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Pennagrein
Kvenfélag Hellissands færði leik-
skólanum Kríubóli fjórburakerru
að gjöf síðastliðinn mánudag. Það
voru þær Guðrún Halla Elíasdótt-
ir formaður og Lísa Dögg Davíðs-
dóttir varaformaður kvenfélagsins
sem afhentu leikskólanum kerruna
með von um að hún nýttist leik-
skólanum vel. Ingigerður Stefáns-
dóttir leikskólastjóri tók við kerr-
unni, sagði hún að kerran myndi
nýtast mjög vel þar sem nú væri
hægt að fara með yngstu leikskóla-
börnin út í gönguferðir. þa
Kvenfélagið gaf fjórburakerru
Pennagrein
Þegar skrifað var undir viljayfirlýs-
ingu 33 leiguíbúða á Akranesi þá
gat ég ekki annað en ritað nokkur
orð niður á blað til að lýsa ánægju
minni. Mér finnst eins og ég hafi
verið að fá „barnið“ mitt heim.
Hér er um að ræða afar stórt verk-
efni sem ég tók í fangið stuttu eftir
að ég settist inn á þing. Þá fékk ég
boð um að setjast í verkefnastjórn
um framtíðarskipan húsnæðismála.
Sú vinna var umfangsmikil og hún
skilaði sér í fjórum frumvörpum um
húsnæðismarkaðinn. Eitt þeirra var
frumvarp um almennar íbúðir. Þeg-
ar málið kom til Alþingis þá fékk ég
þann heiður að fylgja því í gegnum
Velferðarnefnd þingsins sem fram-
sögumaður málsins. Það var síð-
an vorið 2016 sem frumvarpið varð
að lögum og nú sjáum við árangur
þess hér á Akranesi. Hér á að byggja
33 leiguíbúðir þar sem ríkið legg-
ur til 18% stofnframlag í verkefnið
og Akranesbær 12%. Stofnframlag
Akraneskaupsstaðar getur t.d. verið
í formi gatnagerðargjalda og annarra
opinberra gjalda sem kaupstaðurinn
hefur forræði á. Akraneskaupstaður
gerir á móti kröfu
um 25% ráðstöf-
unarrétt af íbúð-
unum. Allar íbúð-
irnar verða settar í
útleigu og leiguverð þeirra tekur mið
af tekjum leigutaka.
Með undirritun viljayfirlýsingar-
innar er stórt skref stigið í að mæta
íbúum Akraness með fjölgun leigu-
íbúða en lítið framboð hefur verið
af þeim undanfarin ár. Hér skapast
tækifæri á öruggu leiguhúsnæði fyrir
einstaklinga á öllum aldri.
Það er óhætt að segja að það sé með
gleði í hjarta sem ég skrifa þennan
stutta pistil. Þetta verkefni tók langan
tíma og loksins sjáum við Skagamenn
árangurs þess, íbúum okkar til hags-
bóta. Það var einmitt það markmið
sem stefnt var að. Höldum áfram að
vinna þannig til framtíðar.
Elsa Lára Arnardóttir
Höf. er fyrrum þingmaður Fram-
sóknarflokksins og oddviti lista Fram-
sóknarflokks og frjálsra í komandi
sveitarstjórnarkosningum á Akranesi.
Með gleði í hjarta
Listi Sjálfstæðisflokksins í Borg-
arbyggð fyrir komandi sveita-
stjórnarkosningar í vor var sam-
þykktur einróma á fundi fulltrúa-
ráða Sjálfstæðisfélaga Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, þann 7. mars
síðastliðinn.
Undirrituð er oddviti framboðs-
ins og hefur á síðasta kjörtíma-
bili starfað sem fyrsti varamaður
í sveitarstjórn og varaformaður
fræðslunefndar. Ég bý á Signýjar-
stöðum í Hálsasveit, er gift Þor-
steini Pálssyni og við eigum fjóra
syni. Ég er grunnskólakennari og
lögfræðingur að mennt og starfa
við Háskólann á Bifröst.
Í næstu fjórum sætum eru Silja
Eyrún Steingrímsdóttir, skrif-
stofustjóri hjá Stéttarfélagi Vest-
urlands og stjórnsýslufræðingur,
Sigurður Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri UMSB og íþrótta-
fræðingur, Axel Freyr Eiríksson
kennaranemi og Sigurjón Helga-
son bóndi á Mel. Listinn í heild
sinni hefur yfir sér ferskan blæ og
samanstendur af einstaklingum
sem búa vítt og breitt um sveit-
arfélagið. Ljóst er að margt gott
fólk er tilbúið að vinna í þágu
sveitarfélagsins og láta gott af sér
leiða fyrir samfélagið. Þá ber að
þakka fráfarandi sveitarstjórnar-
fólki Sjálfstæðisflokksins fyrir vel
unnin störf og þeirra framlag til
sveitarstjórnarmála síðustu árin.
Við Sjálfstæðismenn erum
hreykin af því að staða Borgar-
byggðar hefur verið að styrkjast
undanfarin ár, á okkar vakt, og nú
þegar líður að kosningum er fjár-
hagsstaða sveitarfélagsins mjög
góð. Sveitarstjórnafulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, ásamt samstarfs-
fólki í sitjandi meirihluta og í raun
sveitarstjórn allri, geta staðið stolt
frá borði. Við Sjálfstæðismenn
ætlum, ef við fáum stuðning til, að
byggja á því góða starfi, sem hef-
ur verið unnið og halda áfram að
styrkja stöðu sveitafélagsins, bæði
þjónustulega sem og fjárhagslega.
Börn í Borgarbyggð
í fyrsta sæti
Á kjörtímabilinu hafa verið tek-
in mikilvæg skref til þess að bæta
aðbúnað barna og barnafólks í
Borgarbyggð. Má meðal annars
nefna gjaldfrjálsan grunnskóla,
nýja lestrarstefnu, tómstunda-
styrk fyrir börn og unglinga,
styttingu sumarlokunar leikskóla,
leikskólaþjónustu fyrir foreldra
og börn þeirra allt frá níu mánaða
aldri, aukningu markvissrar end-
urmenntunar fyrir starfsfólk og
ungmennaráð sem tók til starfa að
nýju.
Skólastefna
Borgarbyggðar
Eitt af metnaðarfyllri verkefn-
um fræðslunefndar á kjörtíma-
bilinu var mótun nýrrar skóla-
stefnu en að því starfi komu auk
fulltrúa nefndarinnar, nemend-
ur, foreldrar, skólastjórnendur og
aðrir starfsmenn skólanna. Stefnan
var kláruð árið 2016 þar sem gildin
gleði, metnaður, samkennd og vin-
átta voru í forgrunni. Stefnunni er
ætlað að undirstrika sameiginlega
sýn þeirra sem koma að skólamál-
um í sveitarfélaginu og er vegvísir
að því hvernig á að efla skólastarf
í Borgarbyggð. Þar kemur meðal
annars fram mikilvægi skólahús-
næðis, búnaðar, leikvalla og nær-
umhverfis barna í námi sem oft er
nefnt þriðji kennarinn.
Skólahúsnæði
sveitarfélagsins
Í framkvæmdaráætlun Borgar-
byggðar fyrir árin 2018-2021 er
gert ráð fyrir því að farið verði í
verulegar endurbætur á grunn-
skólahúsnæðinu í Borgarnesi.
Byggður verður langþráður mat-
salur og endurbætur gerðar á hús-
næði skólans með tilliti til nú-
tíma krafna um rými og aðstöðu
til kennslu. Einnig hefur verið
ákveðið að byggja við grunnskóla-
húsnæðið á Kleppjárnreykjum
og flytja leikskólann Hnoðraból
þangað í nýtt húsnæði. Í kjölfarið
verður farið í endurbætur húsnæð-
is grunnskólans á Kleppjárnsreykj-
um. Með þessu móti skapast já-
kvæð samlegðaráhrif og spennandi
tækifæri til þróunarstarfs sem lýtur
að samstarfi leik- og grunnskóla.
Samþykkt var á fundi byggðarráðs
í síðustu viku að bjóða út 1. og 2.
áfanga verksins og reiknað er með
að hefjast handa við breytingar og
niðurrif þegar á vormánuðum.
Framtíðin býr í börnum hvers
samfélags og við viljum að þau fái
tækifæri til að eflast og þroskast á
eigin forsendum. Endurbætur á
húsnæði skólanna þarf að haldast
í hendur við þróun innra starfs.
Sveitarfélagið er mjög vel staðsett,
aðeins steinsnar frá höfuðborginni
og í góðri tengingu við nærliggj-
andi landshluta. Það skiptir máli
að Borgarbyggð sé eftirsóknar-
verður staður fyrir fjölskyldufólk
til að setjast að í og að við séum
samkeppnishæf við nágrannasveit-
arfélög. Því er það forgangsverk-
efni að leiða ofangreind mál til
lykta.
Spennandi tímar eru framund-
an í Borgarbyggð, tækifærin eru
óþrjótandi, margt hefur áunnist en
lengi má gott bæta. Við frambjóð-
endur Sjálfstæðismanna í Borgar-
byggð erum reiðubúin til þjón-
ustu við samfélagið og íbúa Borg-
arbyggðar. Við munum í kjölfar
páskahátíðar boða til opinna íbúa-
funda þar sem við viljum eiga sam-
tal við sem flesta íbúa um að móta
stefnumál og setja markmið fyrir
okkar góða samfélag til næstu fjög-
urra ára.
Lilja Björg Ágústsdóttir.
Höfundur er oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Borgarbyggð í komandi
sveitastjórnarkosningum og varafor-
maður fræðslunefndar.
Börn í Borgarbyggð
í fyrsta sæti
Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is