Skessuhorn


Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 201826 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvernig páskaegg langar þig að fá í ár? Spurni g vikunnar (spurt á stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi sem haldin var í FVA á föstudaginn) Arnoddur Dagbjartsson, Klepp- járnsreykjadeild Grunnskóla Borgarfjarðar: Egg númer 10 sem er stærst og dugar lengst. Ég get bara geymt afganginn og borðað seinna ef ég vil. Ólafur Ían Brynjarsson, Grundaskóla: Stórt eins kílóa egg frá Bónus. Helgi Rafn Bergþórsson, Grundaskóla: Ég er í nammibindindi og fæ mér því ekki egg þessa páskana. Fanney Lísa Sveinsdóttir, Kleppjárnsreykjadeild Grunn- skóla Borgarfjarðar: Saltkaramelluegg. Aníta Ólafsdóttir, Grunnskóla Snæfellsbæjar: Saltkaramelluegg frá Nóa. Laugardaginn 10. mars síðastlið- inn komu fjórar sveitir frá Korpúlf- um, félagi eldri borgara í Grafar- vogi, í heimsókn í Borgarnes. Fyr- ir voru þrjár sveitir heimamanna og ein sveit frá FEBAN á Akra- nesi. Korpúlfar undir stjórn Magn- úsar Ólafssonar íþróttakennara er að hleypa heimdraganum og vegna kynna hans og Ingimundar Ingi- mundarsonar lögðu félagar leið sína í Borgarfjörð. Alls spilaði hver sveit fjóra leiki og eftir þá stóðu Skagamenn uppi sem sigurvegar- ar. Þetta var stutt mót og hressi- legt sem fyrst og fremst var ætlað að þjálfa og kynna leikinn boccia og jafnframt að skerpa á samstarfi sem flestra sem hafa íþróttir aldraðra á sinni könnu. Að sögn Flemming Jessen hafa Borgfirðingar nú staðið að þrem- ur mótum í boccia, pútti og ringó á rúmri viku. „Ég og Ingimundur höfum haft veg og vanda að þessu starfi, en auðvitað með góðri að- stoð félaga okkar í félögum aldraðra í Borgarbyggð. Markmiðið er að efla íþróttastarf aldraðra og koma á kynnum við sem flest félög hér og þar um landið. En númer eitt er að finna sem flestum áhugamál, efla hreyfingu og eiga samskipti. Maður er manns gaman,“ segir Flemming Jessen í samtali við Skessuhorn. mm Félagar sem efla íþróttastarf aldraðra Flemming og Ingimundur eru driffjaðrir í íþróttastarfi eldri borgara. Víkingur Ólafsvík lauk keppni í lengjubikarnum síðasta laugardag. Endaði liðið í öðru sæti í c-riðli með því að vinna annað Pepsí- deildarliðið á fjórum dögum þeg- ar þeir lögðu Keflavík 1 - 0. Var þetta í fyrsta sinn sem Víkingur Ó vinnur Keflavík í KSÍ leik. Víking- ur vann einnig Fjölni þremur dög- um áður 3 - 2 eftir að hafa lent 0 - 2 undir. Víkingur spilaði vel á laugar- daginn og voru Keflvíkingar oft á tíðum pirraðir á vellinum. Leik- urinn var hraður og greinilegt að bæði lið ætluðu sér sigur. Kwame Quee skoraði mark fyrir Víking í fyrri hálfleik sem var dæmt af vegna rangstöðu. Keflavík skoraði einnig mark upp úr hornspyrnu sem dæmt var af þar sem leik- maður Keflavíkur blakaði boltan- um í netið með hendinni. Kwame Quee skaut svo í stöng úr dauða- færi í byrjun seinni hálfleik. Brot- ið var á Gonzalo Zamorano Leon inní teig og dæmt víti sem mark- vörður Keflavíkur varði frá Gon- zalo. Á 79. mínútu átti Emir Dok- ara 30 metra sendingu á Gonzalo sem stakk varnarmenn Keflavíkur af og renndi boltanum í netið. Það verður spennandi að fylgjast með liði Víkings Ó í Inkasso deildinni í sumar en liðið er mikið breytt frá síðasta tímabili margir leikmenn farnir og margir ungir og nýir komnir. þa Víkingur í öðru sæti síns riðils Ungmennafélag Grundarfjarð- ar tryggði sér Íslandsmeistaratitil- inn í þriðju deild kvenna í blaki um helgina. Úrslitakeppnin A og B liða fór fram um helgina á Neskaups- stað og mættu grundfirsku stelp- urnar vel stemmdar til leiks. Þær spiluðu þrjá leiki á laugardeginum sem öllum lyktaði með 2-0 sigri Grundarfjarðar og svo tvo leiki á sunnudeginum sem lauk báðum með sömu niðurstöðu. Grundar- fjörður vann þar með allar hrinurn- ar sínar um helgina og tóku bikar- inn með sér heim. tfk Grundarfjörður Íslands- meistari í 3. deild Síðastliðinn sunnudag var keppt í hinni nýlegu en mjög svo vax- andi íþróttagrein; ringói í Íþrótta- miðstöðinni í Borgarnesi. Flemm- ing Jessen hefur umsjón með æfing- um og mótum eldri borgara. Fjög- ur lið mættu til leiks á sunnudaginn. Auk heimafólks í UMSB voru lið frá Glóð í Kópavogi, HSK og frá Mos- fellsbæ. Spiluð var tvöföld umferð og hver leikur var upp í 15 stig. Úr- slit urðu þau að HSK sigraði með 10 stigum, UMSB varð í öðru sæti með 6 stig, Glóð varð þriðja með 4 stig og FaMos fékk einnig 4 stig. Ringó er spilað á blakvelli og spi- la fjórir inná hverju sinni í hvoru liði. Leikurinn gengur út á að koma hringjunum í gólfið hjá andstæðin- gunum. Þessi lið hafa undanfarin ár reynt með sér þrisvar yfir veturinn. Næsti hittingur verður 28. apríl á Hvolsvelli og þá er áformað Jóns- messumót í Kópavogi. Lokapunk- turinn verður svo Landsmót UMFÍ 50+, sem að þessu sinni fer fram á Sauðárkróki 13. – 15. júlí í sumar. mm Kepptu í ringói í Borgarnesi Heimamenn úr UMSB urðu í öðru sæti. Vetrarmótaröð Golfklúbbsins Leynis á Akranesi lauk um miðjan mars með sigri liðs Þórðar Elíassonar, en auk hans skipuðu liðið þeir Alfreð Þór Al- freðsson og Guðmundur Sigvaldason. Lið Þórðar vann alla sína leiki í riðla- og úrslitakeppni og fór í gegnum mótaröðina með glæsibrag. Lið Mar- els, sem skipað var Hafsteini Gunn- arssyni, Kristni J. Hjartarsyni og Daníeli Viðarssyni hafnaði í öðru sæti og lið Einars Jónssonar sem skipað var honum sjálfum og Sigurði Grétari Davíðssyni endaði í þriðja sæti. Vetrarmótaröðin var spiluð í golf- hermi Leynis og er þetta annar vetur- inn sem mótaröðin fer fram. Að þessu sinni tóku þátt átta lið sem spiluðu í tveimur riðlum. Leikfyrirkomulag var betri boltinn og voru lið skipuð tveim- ur til þremur leikmönnum og spiluðu ávallt tveir frá hverju liði hverju sinni. Mótaröðin þótti takast vel og spiluðu liðin marga bestu golfvelli í Bandaríkjunum og Evrópu við bestu aðstæður. Golfhermar hafa á undan- förnum árum gert mikið fyrir vetrar- starf golfklúbba landsins sem marg- ir bjóða upp á slíka þjónustu. Hefur golfhermir Leynis bæði nýst vel til kennslu og golfleiks félagsmanna og gesta. kgk/fréttatilk. Vetrarmótaröð Leynis er lokið Lið Þórðar Elíassonar bar sigur úr býtum í vetrarmótaröðinni. F.v. Guðmundur Sigvaldason, Þórður Elíasson og Alfreð Þór Alfreðsson.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.