Skessuhorn


Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 201810 Uppsafnaður rekstrarvandi sveitar- félaganna á landsbyggðinni vegna aðkomu þeirra að rekstri almenn- ingssamgangna er 119 milljónir króna á árabilinu 2012-2017. Svo virðist sem dregið hafi úr notkun almennings á hópferðabílum milli landshluta og sífellt fleiri sem kjósi að ferðast með öðrum hætti, svo sem með flugi eða bílaleigubílum. Einungis í eitt ár frá 2012 hefur akstur strætó skilað landshlutasam- tökum sveitarfélaga tekjum umfram kostnað við verkefnið. Engu að síð- ur er reynsla af þessum valkosti í samgöngumálum talin jákvæð og almennur vilji er til þess af hálfu sveitarstjórnarfólks að samstarfinu verði fram haldið ef fjárhagslegar forsendur verði bættar. Strætó bs hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd landshlutasamtaka sveitarfé- laga, sem bera fjárhagslega ábyrgð, en hafa notið styrkja ríkisvalds- ins vegna taprekstrar á verkefninu. Vinnuhópur á vegum landshluta- samtaka sveitarfélaga skilaði nýver- ið af sér skýrslu, þar sem fjallað er um reynsluna af samstarfinu og um hugsanlegt framhald strætóakst- urs á landsbyggðinni. Vinnuhóp- urinn var skipaður þremur fullt- rúm landshlutasamtakanna og þar á meðal Páli S Brynjarssyni fram- kvæmdastjóra SSV. Ákveðið hefur verið að endurnýja ekki samning- inn óbreyttan, en gildistími hans rennur út um næstu áramót. Víða mikið byggðamál Markmið samstarfs um stætis- vagnaferðir milli landshluta var að byggja upp markvisst og heild- stætt almenningssamgangnakerfi á landsbyggðinni með góðri teng- ingu við höfuðborgarsvæðið. Þetta var gert í framhaldi þess að sérleyfi til hópferðaaksturs voru aflögð. Í niðurstöðu starfshópsins segir m.a.: „Fjárveitingar til verkefnisins hafa hins vegar engan veginn staðið und- ir þeirri þjónustu sem boðið er upp á. Á samningstímanum hafa for- sendur breyst og má benda á að ef endurgreiðslan á olíugjaldinu hefði ekki verið felld niður þá væri rekst- urinn á verkefninu nánast í jafnvægi á heildina litið. Þá er mikilvægt að rekstur á einstökum leiðum verði skoðaður sérstaklega út frá byggða- legu sjónarhorni, en ákveðnar leið- ir eru mjög erfiðar í rekstri vegna fárra farþega, en þýðing þeirra fyrir þau fámennu byggðarlög sem þau þjóna er gríðarlega mikil.“ Rætt um stofnun félags í eigu sveitarfélaga Rætt hefur verið um sem næsta skref að stofnað verði sérstakt félag á forræði sveitarfélaga um almenn- ingssamgöngur á landsbyggðinni. Vinnuhópurinn hvetur stjórnvöld í skýrslu sinni til að auka fjármagn sem veitt verður til landshlutasam- takanna vegna taps á árinu 2017 og uppsafnaðs rekstartaps sem meðal annars bitnar á sveitarfélögunum. „Stjórnvöld hafa komið til móts við það sjónarmið við samþykkt fjárlaga 2018 en um leið var kol- efnisgjald á eldsneyti hækkað og það hækkar rekstrarkostnaðinn,“ segja skýrsluhöfundar. Loks legg- ur hópurinn fram þrjár tillögur um næstu skref. Í fyrsta lagið að lands- hlutasamtökin segi upp samning- um sínum við Vegagerðina fyr- ir 31. mars næstkomandi. Í ann- an stað að landshlutasamtökin óski eftir viðræðum við Vegagerðina um uppgjör vegna þessa verkefnis sem hafi það að markmið að þau gangi skuldlaus frá borði í árslok 2018. Loks að landshlutasamtök- in lýsi sig reiðubúin til viðræðna við Vegagerðina og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið um framhald verkefnisins eftir árið 2018 ef forsendur þess og fjárveit- ingar verði endurskoðaðar. Sam- hliða þessari vinnu yrði kannað hvort grundvöllur sé til að stofnað verði sérstakt fyrirtæki um rekstur Strætó á landsbyggðinni. Vilji til að skoða áfram- haldandi samstarf Páll S Brynjarsson framkvæmda- stjóri SSV segir í samtali við Skessuhorn að staðan á Vestur- landi sé sú að rekstur strætisvagna í landshlutanum hafi öll árin náð endum saman, utan fyrsta árið 2012 og árið 2017. „Í fyrra varð í fyrsta skipti frá 2012 tap á akstr- inum hér á Vesturland. Þetta tap í fyrra var tæpar átta milljónir króna sem fellur að hálfu leyti á Vesturland, en Vestfirðingar og Norðurland vestra greiða fjórð- ung þess hvor landshlutasamtök. Nú treystum við á að fá fjárveit- ingu frá ríkinu til að greiða niður tap síðasta árs,“ segir Páll. Hann segir að stjórn SSV hafi nú sam- þykkt að segja samningnum um almenningssamgöngur formlega upp og önnur landshlutasamtök munu gera slíkt hið sama. „Nú eru aðilar sammála um að setj- ast niður með fulltrúum Vega- gerðar og samgönguráðuneytis um framhald þessa verkefnis. Það er því ekkert öruggt með fram- haldið, en við finnum fyrir áhuga stjórnvalda að gerður verði nýr samningur um almenningssam- göngur. Í því samhengi er nóg að vitna til stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar þar sem segir að al- menningssamgöngur verði efld- ar,“ segir Páll. mm Óvissa um framtíð almenningssam- gangna vegna taprekstrar Einungis árin 2012 og 2017 var tap ár rekstri strætisvagns á akstri á Vesturland. Tapið á síðasta ári var átta milljónir króna og greiðir SSV helming þess, en Vesfirðingar og Norðurland vestra fjórðung hvor landshlutasamtök. Hús og Lóðir ehf, fyrirtæki Snorra Hjaltasonar byggingaverktaka sem byggir tvö sambyggð hús á lóðun- um Borgarbraut 57-59 í Borgar- nesi hefur skrifað undir hótelstjór- nunarsamning við Capital Hótels um rekstur á nýju fjögurra stjörnu hóteli við Borgarbraut 59. Þá hef- ur Jóel Salómon Hjálmarsson ver- ið ráðinn hótelstjóri og stefnt er að opnun í byrjun sumars, en nákvæm dagsetning liggur þó ekki fyrir. Hótelið mun bera heitið B59 Hotel og verður fjögurra stjörnu hótel með þeirri þjónustu og gæð- um sem slíku fylgir. „Þar verður 81 herbergi af hæsta gæðaflokki. Á efstu hæð hótelsins eru m.a. þrjár tæplega 50m2 hótelsvítur, auk átta annarra herbergja þaðan sem útsýni er til allra átta. Full- komin heilsulind og líkamsrækt- araðstaða verður á hótelinu, þar sem boðið verður upp á nudd og snyrtimeðferðir. Einnig verður vel búin funda- og ráðstefnuaðstaða til boða á hótelinu. Á B59 Hotel verður 100 sæta veitingastaður, þar sem áhersla verður lögð á árstíða- bundið hráefni og matarhefðir Ís- lendinga munu skipa veigamikinn sess. Þá mun verða lifandi íþrótta- bar þar sem íslenskum örbrugg- húsum verða gerð góð skil. Von- andi mun barinn skipa veigamik- inn sess í lífi Borgnesinga á meðan heimsmeistarakeppnin í fótbolta stendur yfir í sumar,“ segir Jón Salómon hótelstjóri. Hótelið verður opnað í byrjun júní. B59 Hotel verður rekið und- ir merkjum Capital Hotels sem á og rekur fjóra gististaði í Reykja- vík; Capital-Inn, City Center Hot- el, City Park Hotel og 4th Floor Hotel. Jóel Salómon Hjálmarsson hótelstjóri er með BA gráðu í al- þjóðlegri hótelstjórnun og ferða- málafræði frá IHTTI í Sviss. Hann hefur meðal annars starf- að fyrir Starwood Hotels and Re- sorts, Hakkasan Ltd., Hilton Int- ernational Hotels og Icelandair Hotels. mm B59 Hotel verður opnað í Borgarnesi í sumar Jóel Salómon Hjálmarsson hótelstjóri. B59 Hotel við Borgarbraut 59 í Borgarnesi. Byggingin til vinstri er íbúðablokk, en í síðustu viku var búið að reisa sex hæðir af átta. Ljósm. þg.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.