Skessuhorn


Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 25 Borgarbyggð - miðvikudagur 21. mars Skallagrímur tekur á móti Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik kl. 19:15. Leikið verður í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Borgarbyggð - fimmtudagur 22. mars Félagsvist í Brákarhlíð kl. 20:00. Síðasta spilakvöldið í fjögurra kvölda keppni. Góð kvöld- og lokaverðlaun. Veitingar í hléi. Allir velkomnir. Borgarbyggð - fimmtudagur 22. mars Gæðingafimi Líflands í Faxaborg í Borgarnesi. Þriðja mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum. Húsið verður opnað kl. 19:00 og keppni hefst stundvíslega kl. 20:00. Miðaverð er kr. 1.000 en frítt inn fyrir tíu ára og yngri. Nánar í frétt í Skessuhorni vikunnar. Hvalfjarðarsveit - föstudagur 23. mars Cosplay-fræðsla í gamla Heiðarskóla. Andarungahreyfingin, sem starfar í gamla Heiðarskóla, býður til fræðslu um cosplay, eða búningaleik. Fyrirlesturinn hefst kl. 9:30. Fyrirlesturinn er opinn öllum áhugasömum en nemendur Heiðarskóla eru sérstaklega boðnir velkomnir. Sjá nánar frétt í Skessuhorni vikunnar. Akranes - föstudagur 23. mars Sýningin „300 brunahanar - stúdía í máli og myndum“ verður opnuð í gömlu lögreglustöðinni að Kirkjubraut 10 kl. 17:00. Opnunin stendur til kl. 19:00. Sýningin verður opin næstu daga, 24., og 25. mars milli kl. 13:00 og 17:00. Höfundar sýningarinnar eru Garðar H. Guðjónsson blaðamaður og Guðni Hannesson ljósmyndari. Sjá nánar frétt í Skessuhorni vikunnar. Akranes - föstudagur 23. mars Tónleikarnir „Við tónanna klið“ í Tónbergi kl. 20:30. Flutt verða lög Óðins G. Þórarinssonar. Hver man ekki eftir lögum eins og Nú liggur vel á mér og Blíðasti blær? Kór FEBAN og hlómsveitin Tamango ásamt tríói Rutar Berg flytja lögin hans Óðins. Miðasala verður við innganginn. Verð aðgöngumiða 2.000 kr. Enginn posi til staðar. Sjá nánar auglýsingu í Skessuhorni vikunnar. Akranes - laugardagur 24. mars Langur laugardagur á Bókasafni Akraness. Fjölskylduagur, opið frá kl. 11:00 til 16:00. Spilavinir koma í heimsókn með skemmtileg spil fyrir alla fjölskylduna. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Dalabyggð - laugardagur 24. mars Mót Hestamannafélagsins Glaðs í Nesoddahöllinni. Keppt verður í frjálsum æfingum og tölti. Mótið hefst kl. 14:00. Nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins, www.gladur.is. Stykkishólmur - laugardagur 24. mars Snæfell mætir Breiðabliki í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 16:30 í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Borgarbyggð - laugardagur 24. mars Grettis saga Einars Kárasonar á Sögulofti Landnámsseturs kl. 20:00. Einn af okkar virtustu rithöfundum og rómuðustu sagnamönnum Einar Kárason mun stíga á stokk á Söguloftinu í Landnássetrinu í Borgarnesi og flytja Grettis sögu. Miðasala og nánari upplýsingar á heimasíðu Landnámsseturs. Stykkishólmur - þriðjudagur 27. mars Páskabingó yngri flokka Snæfells verður haldið á Hótel Stykkishólmi kl. 20:00 Stykkishólmur - þriðjudagur 27. mars Settur leikdagur fjórða leiksins í undanúrslitaviðureign Snæfells og Hamars í úrslitakeppni 1. deildar karla. Áætlað er að leikurinn hefjist í íþróttamiðstöðinni kl. 19:15. Athugið að viðburðurinn er háður því að Snæfell sigri Hamar í Hveragerði föstudaginn áður. Nýfæddir Vestlendingar Á döfinni 14. mars. Stúlka. Þyngd: 3.662 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Bryndís Guðmundsdóttir og Bjarni Georg Einarsson, Grundarfirði. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. Sumardekk og felgur Óska eftir sumardekkjum og felgum, 215/60 R17. Vinsamlegast sendið tölvupóst á 67dagny@gmail.com ef þú lumar á lítið slitnum dekkjum í þessari stærð og/eða felgum 5x114,3. Markaðstorg Vesturlands 12. mars. Stúlka. Þyngd: 3.836 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Þórdís Bachmann Gissurardóttir og Magnús Andrésson, Akranesi. Ljósmóðir: Elísabet Harles. Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110 www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is Smáprent Hettupeysur í mörgum litum Við hönnum, prentum og merkjum fyrir þig og þína ÓSKAST KEYPT 17. mars. Drengur. Þyngd: 3.676 gr. Lengd: 50 cm. Móðir: Sandra Björk Björgvinsdóttir, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. 15. mars. Stúlka. Þyngd: 4.014 gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar: Sigurósk Sunna Magnúsdóttir og Óskar Þór Þórðarson, Snæfellsbæ. Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir. Markaðstorg Vesturlands Skráðu SMáauglýSinguna Frítt á www.SkeSSuhorn.iS Fyrir klukkan 12.00 á þriðjudöguM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.