Skessuhorn


Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 201812 Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi hefur nú fengið örlitla yfirhalningu en opnað var út í kalda útigeymslu við húsið og þar komið upp eld- húsi. „Eldhúsið sem við vorum með var mjög lítið, aðeins um fjórir eða fimm fermetrar að stærð. Þetta rými er töluvert stærra, örugglega um 16 fermetrar svo munar tölu- verðu,“ segir Sara Hjörleifsdóttir vert í samtali við Skessuhorn. Sjáv- arpakkhúsið hefur notið mikilla vinsælda og að sögn Söru er alltaf nóg að gera. „Það gengur mjög vel og alltaf nóg af fólki. Gamla eld- húsið annaði í raun alveg því fólki sem kom hingað en það var þröngt um starfsfólkið. Með stærra eldhúsi fer betur um starfsfólkið okkar og við getum verið fleiri hér í einu.“ Aðspurð hvort fleiri breyting- ar hafi verið gerðar segir Sara svo ekki vera. „Við fórum ekki í nein- ar aðrar framkvæmdir. Við nýttum að vísu tækifærið og breyttum mat- seðlinum í leiðinni, en það hafði í raun meira með árstímann að gera heldur en stærra eldhús. Við breyt- um alltaf matseðlinum reglulega,“ segir Sara. arg Stærra eldhús í Sjávarpakkhúsinu Päl Coco starfsmaður Sjávarpakkhússins í Stykkishólmi í nýja eldhúsinu. Grundarfjarðarbær hefur birt til- lögur að deiliskipulagi við Kirkju- fell og Kolgrafafjörð á heimasíðu sinni grundarfjordur.is. Við Kirkju- fell er stefnt á að endurbæta bíla- stæði, gönguleiðir, upplýsingaskilti og áningarstaði á svæðinu en nú- verandi bílastæði er löngu sprung- ið og oft hefur skapast hættuástand á svæðinu sökum þungrar umferð- ar. Við vesturhluta Kolgrafafjarð- arbrúar er unnið að skipulagi á bíla- stæði og áningarstað en þar hefur verið vinsælt að stoppa og skoða hið margbrotna fuglalíf sem þar er. Einnig er algengt að sjá seli og jafn- vel hvali ef svo ber við. Tillögurnar munu liggja frammi á bæjarskrifstofum Grundarfjarðar- bæjar frá 17. mars til 3. apríl næst- komandi þar sem hægt verður að kynna sér málið. Einnig er skipu- lagið auglýst hér í blaðinu í dag. tfk Grundarfjarðarbær auglýsir deiliskipulag við Kirkjufell og Kolgrafafjörð Áningarsvæðið við Kirkjufellsfoss. Sumarliði Ásgeirsson ljósmyndari er hér á brúnni yfir Kolgrafafjörð að mynda súlur árið 2014. Ljósmyndari á áningarsvæðinu við Kolgrafafjörð. Umsjónarmenn vefsíðu Snæfells- bæjar telja víst að Snæfellsbær eigi ekki einungis besta slökkvilið landsins, heldur klárlega einnig það best klædda. Á nýafstaðinni árshá- tíð Snæfellsbæjar mættu slökkvi- liðsmennirnir í þessum flottu rauðu jakkafötum og mottumarssokkum til styrktar baráttunni gegn krabba- meini í körlum. Ljósmyndina tók Þorbjörg Erla Halldórsdóttir og birtist hún á facebooksíðu slökkvi- liðsins. mm Slökkviliðsmenn klæddir í stíl við starfið Bæjarstjórn Akraness samþykkti í lok febrúar að auglýsa lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi sem nefnist „Grenjar H3 hafnar- svæði.“ Samkvæmt tillögunni er fyrirhuguð stækkun landfyllingar til norðurs til að rýma fyrir stækkun athafnahúsnæðis Skagans og Þ&E. Samhliða breytingu á aðalskipulagi verður deiliskipulag fyrir reitinn kynnt. Fyrir liggur umsókn Skag- ans 3X um stækkun iðnaðarbygg- inga um fjögur þúsund fermetra. Í frumhugmyndum er litið til stækk- unar landfyllingar til norðurs út í Krókalón. Hægt er að nálgast lýs- inguna á heimasíðu Akraneskaup- staðar og í þjónustuveri kaupstað- arins. mm Óskað eftir stækkun landfyllingar Loftmynd af athafnasvæði fyrirtækjanna sem nú er sótt um að stækka með land- fyllingu. Baula, félag kúabænda á Vest- urlandi, hélt aðalfund sinn í lok febrúar. Þar var farið yfir mál- efni greinarinnar og veittar við- urkenningar. Þá var síðastliðinn fimmtudag haldinn deildarfund- ur í samvinnufélaginu Auðhumlu, en félagið á stærstan hlut í MS og í því eru mjólkurframleiðendur. Þar var sömuleiðis farið yfir mál- efni mjólkuriðnaðarins og veittar viðurkenningar fyrir góða fram- leiðslu. mm Kúabændur funda og viður- kenningar veittar Viðurkenningar hjá kúabændafélaginu Baulu. F.v.: Egill Gunnarsson Hvanneyri, Hafþór Finnbogason Hvanneyri, Vilhjálmur Diðriksson Helgavatni, Unnsteinn Jóhannsson Laxárholti, Sigmundur H. Sigmunds- son Mið-Görðum og Karítas Hreinsdóttir Helgavatni. Ljósm. Pétur Diðriksson. Verðlaunahafar Auðhumlu fyrir úrvalsmjólk 2017. F.v. Sigurjón Grétarsson Furu- brekku, Bjarni Guðmundsson Skálpastöðum, Sigvaldi Jónsson Hægindi, Ásthildur Skjaldardóttir Bakka og Garðar Eiríksson framkvæmdastjóri Auðhumlu. Ljósm. Jarle Reierssen.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.