Skessuhorn


Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 21.03.2018, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018 15 lega heima í Reykhólasveitinni en aðeins á Ströndum líka. Síðan tek ég viku í kringum Selfoss,“ seg- ir Hjalti. Aðspurður segir hann að sér líki vel að starfa við rún- ing. Eftir á að hyggja var spurning blaðamanns heimskuleg. Maður- inn fór hringinn í kringum hnött- inn til að læra af þeim bestu í fag- inu. Auðvitað finnst honum þetta gaman. „Ég fór á 35 staði síðasta haust og það er eiginlega það sem mér finnst skemmtilegast. Þó ég hafi mest verið í Reykhólasveitinni þá kemur maður stundum á staði sem maður hefur aldrei heimsótt áður. Að sjá sveitina svona hér og þar um landið, fá kaffi á mörgum bæjum og kynnast sérvisku hvers bónda er mjög skemmtilegt,“ segir hann. Langar að verða hobbýbóndi Hvað sem við Hjalti ræðum þá ligg- ur sveitin einhvern veginn eins og rauður þráður í gegnum allt sam- an. Hann viðurkennir að vera mikill sveitamaður í sér, en kveðst þó ekki hafa löngun til að gera búskapinn að sínu lífsviðurværi. „Ég á nokkra hesta og hef gaman af hestamennsk- unni. Það væri gaman að verða hobbýbóndi, með nokkrar kindur til að hugsa um til viðbótar við hest- ana,“ segir Hjalti og bætir því við að hann hafi ekki smekk fyrir kúabú- skap. „Ég er sem betur fer með of- næmi fyrir beljum og þarf því aldrei að stíga inn í fjós,“ segir hann og hlær við. „En mér finnst gaman að vera í kringum bæði sauðfé og hesta og ganga í ýmis verk, en ég hugsa ekki um að verða bóndi áður en ég fer að sofa á kvöldin,“ segir hann og brosir. Hjalti er búsettur á Selfossi um þessar mundir, en þar hefur hann dvalið um það bil helming árs- ins undanfarin ár, á móti dvölinni í Reykhólasveitinni. Þegar rúnings- vertíðin er afstaðin starfar hann við smíðar og í girðingavinnu. „Ég er að vinna hjá girðingaverktaka í Ölf- usi sem er jafnframt með smíðaverk- stæði. Ef veðrið er vont þá erum við inni í skemmu að smíða einingar en þegar það er gaman úti þá sjáum við um viðhald á girðingum í kringum Þingvelli og á Hellisheiði, til dæmis. Ég hef gaman af svoleiðis brasi utan- dyra ef veðrið er gott,“ segir hann. Fáir hafa farið og lært Þegar yfirstandandi rúningsvertíð líkur heldur Hjalti aftur í girðingarn- ar og smíðina, eða þar til næst verður farið að rýja næsta haust. Aðspurður segist hann ekki ætla að fara að kenna rúning sérstaklega en kveðst boðinn og búinn að gefa góð ráð og miðla því sem hann kann sé þess óskað. „Ég veit ekki til þess að margir hafi far- ið til Nýja-Sjálands að læra rúning. Það var eitt af því sem Nýsjálending- arnir voru áhugsamir um, enginn Ís- lendingur hafði komið og lært á þessu svæði sem ég var á. Ég gæti þá tek- ið einhverja þekkingu með mér til Ís- lands og miðlað henni hér heima. Ég mun að sjálfsögðu gefa einhver ráð ef þess er óskað en ég ætla ekki að vera með einhverja kennslu. Ég lærði svo margt nýtt að ég náði ekki nærri öllu þó ég hafi reynt að punkta allt hjá mér,“ segir Hjalti. „Þar að auki er ekki hægt að færa allt sem ég lærði beint yfir á rúninginn hér heima. Kind- urnar þarna úti eru til dæmis miklu undirgefnari. Um leið og maður er búinn að ná þeim og leggja þær þá veita þær enga mótspyrnu, þær gefa sig bara og bíða þangað til maður er búinn að snoða. Íslensku kindurn- ar eru einhvern veginn miklu meiri einstaklingar, þrjóskari og ákveðnari. Þær sprikla miklu meira og gefa sig ekki svo glatt. Fyrir vikið verður allt- af aðeins erfiðara að rýja þær,“ segir hann en bætir því við að handtökin sem hann hefur lært hafi reynst hon- um vel síðan hann sneri aftur til Ís- lands, þrátt fyrir að ærnar séu ódælli hér heima en þar ytra. Ætlar Hjalti þá ekki að skrá sig til leiks í Íslandsmeistaramótinu í rún- ingi, sem árlega er haldið í Búðardal á Haustfagnaði Félags sauðfjárbænda í Dölum og sýna íslenskum rúnings- mönnum hvar Davíð keypti ölið? „Jú, ég hlýt að gera það, ég er langbestur,“ segir hann glettinn en þegar gríninu sleppir segist hann eiga von á því að taka þátt. „Ég ætla að keppa og held það verði bara gaman, hvernig sem gengur,“ bætir hann við. „Síðan hugsa ég að ég skelli mér til Frakklands 2019 á HM í rúningi. Ég þykist nú vita að ég eigi ekki roð í þá sem hafa verið í þessu í áratugi. En það verður að minnsta kosti gaman að spreyta sig og fylgjast með. Maður getur kannski lært eitthvað,“ segir Hjalti Ragnar Arnórsson að endingu. kgk Síðasta sumar tók Reynir Georgsson á Akranesi upp þráðinn hjá verktaka- fyrirtækinu Glerfelli og hóf starf- semi fyrirtækisins á ný eftir 16 ára pásu. Glerfell var upphaflega stofnað í Dalabyggð af tengdaföður Reynis, Halldóri Guðmundssyni frá Magn- ússkógum í Dölum, en er nú rekið á Akranesi. Halldór rak fyrirtækið allt þar til hann féll frá árið 2001. Reynir og Dagný Halldórsdóttir starfa bæði hjá fyrirtækinu ásamt tveimur öðrum starfsmönnum. „Við erum að taka að okkur verkstýringu fyrir fjárfesta og verktaka auk þess sem við komum verktökum í samband við birgja og efnisframleiðendur í Póllandi sem geta boðið þeim gott verð,“ segir Reynir í samtali við Skessuhorn. Reynir er með B.Sc. gráðu í um- hverfis- og byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands og tók hluta af mastersnámi í jarðvegs- og berg- verkfræði frá Háskólanum í Ottawa í Kanada. „Ég hef unnið töluvert í framkvæmdaeftirliti, bæði hér á Ís- landi og í Noregi. Ég vann um tíma við verkefnastjórnun hjá Verkís og HRV Engineering í Norðuráli en þar eru gerðar miklar öryggiskröfur í allri starfsemi. Við Dagný fluttum til Noregs eftir hrunið og þar vann ég fyrsta árið fyrir Ístak þar sem ég sá meðal annars um öryggismál, verkþáttagreiningu og ýmis önn- ur störf við jarðgangagerð. Ég fékk svo vinnu hjá Norcunsult, sem er ein stærsta verkfræðistofa Noregs. Þar vann ég í þrjú ár við framkvæmda- eftirlit á verkstöðum og jarðgang- ahönnun. Þegar við fluttum heim til Íslands aftur vann ég sem innkaupa- stjóri og staðarstjóri hjá Munck á Íslandi,“ segir Reynir. „Ég er því nokkuð vel að mér í öllu því sem við erum að bjóða upp á hjá Glerfelli,“ bætir hann við. Framkvæmdaeftirlit og vitundavakning um ör- yggi á verkstöðum „Verkstýringin er m.a. fólgin í því að við aðstoðum verktaka og fjárfesta að fylgja samningum og verklýsing- um og gæta hagsmuna þeirra. Gera ýmis plön og sjá til þess að verkefnið gangi sem best. Hvað varðar örygg- ismál þá bjóðum við upp á að taka út stærri verkstaði með tillit til örygg- is-, heilbrigðis- og umhverfissjónar- miða. Sem betur fer hefur á síðustu árum orðið mikil vitundarvakning meðal iðnaðarmanna hvað varðar ör- yggi. Verktakar eru alltaf að sjá betur og betur að til lengri tíma litið sé það hagkvæmara fyrir þá að fá sérhæfða aðila til að gera öryggisúttekt á verk- stöðum. Ef við horfum til fjárhags- legra afleiðinga slysa þá kosta þau verktaka töluvert meira fjármagn en vel rekinn vinnustað m.t.t. öryggis- mála,“ segir Reynir. „Það geta leynst mjög margar hættur á stórum verk- stöðum, sérstaklega þar sem margir vinna. Hætturnar eru ekki alltaf aug- ljósar og því oft erfitt að sjá þær fyrir. Það er því alltaf öruggast að fá ein- hvern sem sérhæfir sig í öryggismál- um til að taka þau út.“ Kemur verktökum í samband við framleiðendur Hjá Glerfelli starfar verkfræðing- ur í Póllandi sem hefur áralanga reynslu af innkaupum og þekkir vel til þarlendra birgja og framleiðenda. „Hans hlutverk er að finna hagstæð- asta verðið á því efni sem leitað er eftir fyrir okkar viðskiptavini, sjá til þess að það standist fyrirskrifað- ar kröfur og að semja við birgjana,“ segir Reynir. „Viðskiptavinir okkar eru þá helst verktakar í byggingar- iðnaði og fjárfestar. Þeir senda okkur teikningar og efnislýsingar sem við rýnum í til að finna út hver væri hag- kvæmasta leiðin í innkaupum. Þegar við erum búin að semja um innkaup tengjum við framleiðanda og kaup- anda saman. Viðskiptin fara svo fram beint þeirra á milli. Efnið fer í raun aldrei í gegnum okkur heldur erum við aðeins skammtíma innkaupa- stjórar. Með því að koma verktak- anum í beint samband við birgja eru viðskiptin í raun milliliðalaus og við tökum aðeins þóknun,“ bætir Reyn- ir við. arg Sérhæfir sig í verkefna- stjórnun og innkaupum Endurvakti verktakafyrirtækið Glerfell Dagný Halldórsdóttir og Reynir Georgsson starfa bæði hjá Glerfelli. Upp- haflega var Glerfell í eigu Halldórs Guðmundssonar, föðurs Dagnýjar. Reynir Georgsson endurvakti fyrirtækið Glerfell síðasta sumra eftir að starfsemi þess hafði legið niðri í 16 ár. Hjalti er forfallinn Lord of the Rings aðdáandi. Myndirnar voru teknar upp á Nýja- Sjálandi og hann nýtti að sjálfsögðu tækifærið og heimsótti Hérað.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.