Skessuhorn


Skessuhorn - 18.04.2018, Síða 7

Skessuhorn - 18.04.2018, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 18. ApRÍL 2018 7 Skipulagsauglýsing Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóma á fundi sínum þann 10. nóvember 2016 að gera breytingar á aðal- skipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 á Hringvegi (1) um Borgarnes (hjáleið). Á 169. fundi sveitastjórnar þann 12. apríl 2018 var samþykkt að auglýsa eftirfarandi skipulagslýsingu: Hringvegur (1) í Borgarnesi – lýsing á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 Lýsing á breyting á Aðalskipulagi 2010-2022, vegna aftur- köllunar á færslu Hringvegar (1) við Borgarnes. Vegstæði og áhrifasvæði núverandi Hringvegar (1) er í gegnum Borgar- nes. Það liggur í gegnum og á mörkum þéttbýlisins frá Borgarfjarðarbrú, eftir Borgarbraut gegnum Dílatangahæð, Hrafnaklettsholt og að Hringvegi (1) norður. Málsmeðferð verði samkvæmt 36. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingar vegna lýsingar skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi miðvikudaginn 9. maí 2018 í Ráðhús Borgar- byggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi eða á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is. Fimmtudaginn 3. maí 2018 milli kl. 17:00 og 18:00 verða starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi þar sem tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyrir færslu Hringvegur (1) í Borgarnesi verður kynnt sérstaklega þeim sem þess óska. Skotæfingasvæði í landi Hamars – kynning Mánudaginn 30. apríl 2018 milli kl 17:00 og 18:00 verða starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar með opið hús í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14 í Borgarnesi þar sem tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyrir skotæfingarsvæði í landi Hamars verður kynnt sérstaklega þeim sem þess óska. SK ES SU H O R N 2 01 8 Akraneskaupstaður óskar eftir tilboð- um í leigu á landi undir rekstur tjald- svæðisins í Kalmansvík á Akranesi Um er ræða leigu á landi í Kalmansvík sem nýtt er til reksturs tjaldsvæðis. Árlegur opnunartími á tjaldsvæðinu er að öllu jöfnu frá 1. maí til 1. október ár hvert. Stefnt er að því að nýr leigutaki taki við svæðinu fyrir opnun í ár. Samningstímabil er tvö ár og er gefinn kostur á framlengingu óski leigutaki/leigusali eftir því. Boðið er upp á kynningar um svæðið eftir óskum. Tilboðsgögn eru afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda beiðni á netfangið tjaldsvaedi@akranes.is. Tilboð verða opnuð mánudaginn 30. apríl næstkomandi kl. 11:00 á skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18. Öllum tilboðum skal skila á sérstöku tilboðseyðublaði undir heitinu Akranes - leiga á landi undir rekstur tjaldsvæðisins í Kalmansvík. Nánari upplýsingar veitir Sædís Alexía Sigurmundsdóttir verkefnastjóri á netfangið tjaldsvaedi@akranes.is eða í síma 433-1000. Ferðaþjónustufyrirtækið Into the Glacier, eignarhaldsfélag um ís- göngin í Langjökli, hóf í byrjun mánaðarins framkvæmdir við bygg- ingu nýrrar vélaskemmu við af- leggjarann upp Kaldadalsveg ofan við Húsafell. Verið er að taka grunn fyrir 300 fermetra skemmu og eru framkvæmdir við sjálfa bygginguna að hefjast á næstu vikum. „Ætlun- in er að skemman verði komin upp fyrir sumarið eða í byrjun sum- ars,“ segir Sigurður Skarphéðins- son, framkvæmdarstjóri Into the Glacier, í samtali við Skessuhorn. Skemman verður notuð bæði sem geymsla fyrir tæki og tól en einn- ig til að sinna viðhaldi á búnaði fyr- irtækisins. „Það er fyrir löngu orð- ið tímabært fyrir okkur að fá þessa aðstöðu. Við höfum fram til þessa verið aðstöðulaus með öllu, bæði hvað varðar geymslu og viðhald,“ segir Sigurður og heldur áfram: „Við biðum í 15 mánuði eftir að- alskipulagsbreytingu og deiliskipu- lagsbreytingu svo við gætum fengið samþykki. Ég veit að það er í raun ekkert óeðlilega langur tími og við höfum bara beðið þolinmóð og nú er loksins hægt að hefjast handa.“ „Skemman er aðeins fyrsti fasi í þeirri uppbyggingu sem við erum að leggja í á þessu svæði. Við höf- um hug á að byggja þarna enn frek- ari aðstöðu til framtíðar,“ segir Sig- urður. Í byrjun sumar verður trukk- um fyrirtækisins einnig fjölgað en í dag eru þeir fimm talsins, allir átta hjóla. „Við eigum von á einum átta hjóla trukki og einum sex hjóla sem við erum að hanna í samvinnu við framleiðandann úti. Þeir koma til okkar í byrjun sumars,“ segir Sig- urður. Aðspurður hvort starfsfólki fyrirtækisins fari einnig fjölgandi svarar Sigurður því játandi. „Við erum með um 50 starfsmenn í vinnu núna en þeim fer fjölgandi, sérstak- lega starfsfólki í viðhaldshópi okkar sem sér um viðhald bæði á göngum og búnaði. Þá er einnig fyrirhugað að ráða til okkar bifvélavirkja þeg- ar verkstæðið í skemmunni verður tekið í notkun. Það er alltaf nóg að gera hjá okkur og fyrirtækið stöð- ugt að stækka,“ segir Sigurður að endingu. arg Byggja skemmu fyrir tækjakost jöklafyrirtækis Hér má sjá mynd af grunninum sem er verið að taka undir skemmuna. Ljósm. Óskar Björnsson. Nú styttist óðum í að strand- veiðisjómenn haldi til hafs á ný, en veiðar hefjast í byrjun næsta mánaðar. Bræðurnir Bergvin Sævar og Birgir Guðmundssynir í Grundarfirði voru önnum kafnir við að undirbúa Sif SH fyrir átök- in í sumar en bátur þeirra hefur jafnan verið með aflahæstu bátum landsins yfir tímabilið. tfk Styttist í strandveiðarnar Þeir línubátar sem gerðir eru út frá Snæfellsbæ hafa margir róið und- ir Látrabjarg eftir steinbít að und- anförnu. Að sögn Andra Steins Benediktssonar, framkvæmdastjóra Fiskmarkaðar Snæfellsbæjar, hafa bátarnir sótt í steinbítsveiðarn- ar í þorskveiðistoppinu en þó hafa nokkrir bátar byrjað veiðar fyrr vegna lélegrar veiði á þorski. Andri segir að ekki sé hátt verð á stein- bítnum nú vegna mikil framboðs og fárra kaupenda. „Við höfum verið að selja steinbítinn slægðan á þetta 90 til 100 krónur en stein- bíturinn er allur slægður í landi hjá okkur,“ segir Andri og bætir við að sjómenn borgi 14 krónur fyrir kíló- ið í slægingu, sem dregst af verði til sjómanna. Andri segir að Fiskmarkað- ur Snæfellsbæjar hafi tekið á móti 486 tonnum af steinbíti frá 1. mars síðastliðnum, mest af Kristni SH sem hefur landað 228 tonnum og Tryggva Eðvarðs SH sem hefur komið með 151 tonn af steinbíti að landi. Mjög langur tími fer í veið- ar hjá línubátum enda langt sótt og dugar varla sólarhringurinn til hjá bátunum. af Mokafli af steinbít en lágt verð fyrir aflann Emil Freyr Emilsson skipstjóri á Guðbjart SH mokar steinbítnum inn fyrir.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.