Skessuhorn - 09.05.2018, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 201828
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Skagabraut 6, Akranesi - sími: 431-5110/666-5110
www.smaprent.is - smaprent@smaprent.is
Hönnum, prentum og merkjum
fyrir einstaklinga, hópa, félög, samtök og fyrirtæki
Smáprent
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Tilboð um kostun á óháðri rýni
vegna vegagerðar í Gufudalssveit
er tilkomið vegna minnar bókunar
á sveitarstjórnarfundi 8. mars, þar
sem tekin var ákvörðun um að leið
Þ-H yrði lögð til grundvallar við
breytingu á aðalskipulagi: „KK lét
bóka vegna atkvæðis gegn tillög-
unni. Hagsmunir Reykhólahrepps
eru skýrir í þessu máli, að farin
verði sú leið sem veldur minnstum
umhverfisspjöllum, liggur nær bæj-
unum í Gufudalssveitinni og sátt
getur orðið um. Allur samanburð-
ur leiða Þ-H og D2 grundvallast af
því hvernig þær eru hannaðar og
útfærðar. Lengd jarðgangna und-
ir Hjallaháls vekur furðu, sem og
brattur sneiðingur upp á Ódrjúgs-
háls, framarlega á hálsinum en ekki
utar þar sem hálsinn er lægri og
snjóléttari. Vegagerðin ein hefur
komið að því verki að hanna og út-
færa veglínurnar, en engir hlutlaus-
ir fagaðilar með aðra sýn, reynslu
og hugmyndir að lausnum. Betur
útfærð jarðgangnaleið er eina raun-
hæfa leiðin til að losa málið úr þeim
átakafarvegi sem það hefur verið
í allt of lengi og sættir sjónarmið
umhverfis og vegagerðar. Skamm-
tíma fjárhagshagsmunir eiga ekki að
ráða för þegar teknar eru ákvarðan-
ir um framkvæmdir sem valda óaft-
urkræfu raski á viðkvæmri náttúru
og lífríki. Okkur ber að skila land-
inu í ásættanlegu horfi til komandi
kynslóða.“
Ítarlegri gögn styðja
ákvarðantöku
Í aðalskipulagi setur sveitarfélagið
fram sína stefnu um landnotk-
un, skipulaginu fylgir umhverfis-
skýrsla, samkvæmt lögum um um-
hverfismat áætlana. Sveitarfélagið
á ekki að notast eingöngu við upp-
lýsingar frá framkvæmdaaðila í
sinni skipulagsvinnu og það þarf
að vera tryggt að ákvarðanir um
landnotkun séu byggðar á bestu
fáanlegu upplýsingum. Vinna
norsku verkfræðistofunnar er til
að byggja betur undir ákvarðanir
sveitarstjórnar. Það er vilji sveit-
arstjórnar að íbúum verði gefinn
kostur á að koma að sjónarmiðum
og beina spurningum til verkfræð-
inga Multiconsult.
Það er eðlilegt að Multiconsult
fari gróft yfir alla kosti og rýni út-
reikninga Vegagerðarinnar og at-
hugi hvort betur sé hægt að útfæra
leiðir. Þ-H er sú leið sem Vega-
gerðin vill og ætlar sér að fara,
D2 er sú leið sem veldur minnst-
um umhverfisspjöllum samkvæmt
niðurstöðu umhverfismats fram-
kvæmdarinnar. Þess vegna var
unnið með þær báðar í skipu-
lagsvinnunni til að byrja með en
meirihluti sveitarstjórnar tók síð-
an ákvörðun 8. mars um að Þ-H
yrði lögð til grundvallar við breyt-
ingu á aðalskipulaginu.
Til upplýsingar
Það er tvennt sem nýtur sérstakr-
ar verndar varðandi vegagerð
um Gufudalssveit. Grunnsævi
fjarðanna er skilgreint sem vot-
lendi og nýtur sérstakrar vernd-
ar samkv. 61.gr náttúruverndar-
laganna; „því má ekki raska nema
brýna nauðsyn beri til“. Lög um
vernd Breiðafjarðar ná líka til
fjarðanna og ákvæði Ramsarsamn-
ingsins um vernd votlendis eiga
líka við. Teigsskógur nýtur líka
sérstakrar verndar; „honum má
ekki raska nema brýna nauðsyn
beri til“ og ákvæði Bernarsamn-
ingsins um villtar plöntur og dýr
og lífssvæði þeirra eiga líka við um
hann. Á Hallsteinsnesinu er líka
svæði 303 á náttúruminjaskrá.
Hvort tveggja skógurinn og
grunnsævið er einstakt á lands-
vísu og það eru ríkir framtíðar-
hagsmunir fyrir Reykhólahrepp
að varðveita skóginn óraskaðan og
komast hjá því eins og kostur er að
þvera firðina.
Karl Kristjánsson, Kambi.
Höfundur er sveitarstjórnar-
fulltrúi í Reykhólahreppi.
Skýringar á óháðu mati mismunandi leiða
Pennagrein
Vegna umfjöllunar um vegagerð
um Teigsskóg, endurútreikning
og endurhönnun af norskum að-
ila á leiðum sem þar hafa ver-
ið settar fram af hálfu svokall-
aðra umhverfissinna og kostun-
armanna þeirra, fóru undirritaðir
að athuga hvaða leiða ætti að líta
til. Og viti menn, það á að skoða,
reikna og ef til vill endurhanna D
(göng um Hjallaháls) sem er bara
hálfnað verk. Það þarf þá önnur
göng, Djúpifjörður-Gufufjörð-
ur, á móti Þ-H þverunar fjarða og
um Teigsskóg. Og líklega taka til
skoðunar A leið sem hefur aldrei
verið inni hjá Vegagerðinni vegna
kostnaðar. En það á EKKI að taka
leið I til skoðunnar, sem er eins og
Þ-H leiðin sem Vegagerðin hef-
ur ákveðið að fara, nema að hún
fer ekki yfir þrætueplið Teigsskóg
heldur á að liggja frá Hallsteins-
nesi og yfir í Laugalandshraun og
tengja bæði Bjarkalund og hring-
tengja Reykhóla við Vestfjarða-
veg 60. Eða má bara gera hvað
sem er við landið annar staðar en
við Teigsskóg og í landi Grafar í
Þorskafirði, til dæmis skera hlíð-
ar í Djúpafirði og klaungrast upp
á Ódrjúgsháls og niður í Gufu-
fjörð?
Það hlýtur að vera krafa sveitar-
stjórnar og samfélagsins að skoða
skuli allar leiðirnar sem Vegagerð-
in hannaði og reiknaði kostnað á
til að geta borið allt saman. Og
síðast en ekki síst þarf að liggja
fyrir áætlun um hvenær hægt sé
að keyra viðkomandi leiðir sem
Vegagerðin hefur hannað.
Það skildi þá ekki vera að þess-
ir svokölluðu umhverfisinnar og
eigendur þessara jarða sem ekki
vilja veginn um Teigsskóg séu að
kaupa sér leið framhjá sínu landi
með kostunarmönnunum sem
telja sig umhverfissinna!
Með vinsemd og virðingu,
Gunnbjörn Óli Jóhannsson.
Gústaf Jökull Ólafsson.
Skoðum allar leiðir
Pennagrein
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is