Skessuhorn


Skessuhorn - 09.05.2018, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 09.05.2018, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 20182 Landsvæðið vestan Skothryggs telst þjóðlenda samkvæmt úr- skurði nefndarinnar, en þar er að- eins um að ræða lítinn hluta þess lands Flekkudals sem aðalkrafa ríkisins um þjóðlendu náði til. Stóra-Vatnshornsmúli telst einn- ig þjóðlenda samkvæmt úrskurði nefndarinnar, en landsvæði er í afréttareigu eigenda jarðarinn- ar Stóra-Vatnshorns samkvæmt úrskurði óbyggðanefndar. Sama gildir um Jörfaafrétt, sem nefndin úrskurðaði að væri þjóðlenda, en í afréttareign eigenda jarðarinnar Jörfa. Að lokum úrskurðaði nefnd- in að vesturhluti Víðimúla teld- ist þjóðlenda. Er það aðeins lítill hluti af því fjalllendi Hrafnabjarga sem gerð var krafa um. Sama landsvæði er í afréttareign eig- enda jarðanna Ytri-Hrafnabjarga og Fremri-Hrafnabjarga skv. úr- skurði óbyggðanefndar. kgk Meðal viðburða sem í boði verða um næstkomandi helgi er stórsýning Rafta og Fornbílafjelags Borgarfjarð- ar í Brákarey. Þá verður einnig haldin krakka flóamarkaður í Brákarey sama dag og Háskólalestin verður með vís- indaveislu í Hjálmakletti. Þetta er að- eins hluti af viðburðum helgarinnar en tilkynningu um fleiri viðburði má sjá í dálknum Á döfinni bls. 29 og á vef Skessuhorns. Spáð er breytilegri og síðar sunnanátt 8-13 m/s en norðaustanátt 10-15 m/s á Vestfjörðum á morgun fimmtudag. Rigning á köflum og hiti víða 5-10 stig. Á föstudag er gert ráð fyrir suð- austan- og austan 8-15 m/s og rign- ingu. Hægari vindur og úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 6-14 stig. Á laugar- dag er spáð austlægri átt og víða bjart en skýjað og dálítil rigning á Suðaust- urlandi. Hiti 7-15 stig að deginum og hlýjast á Norðurlandi og Vesturlandi. Á sunnudag og mánudag er gert ráð fyr- ir suðaustanátt og mildu veðri. Rigning með köflum á Suður- og Vesturlandi en þurrt og bjart norðaustanlands. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns hvort Ari Ólafsson kæmist með framlag Íslands upp úr undanúrslitum í Eurovision, sem fram fór í gærkvöldi (eftir að Skessuhorn fór í prentun). Svarendur voru ekki bjartsýnir á ár- angur. 51% sögðu Ara örugglega ekki komast áfram og 24% að hann kæm- ist sennilega ekki áfram. 10% svar- enda sögðu að Ari kæmist sennilega upp úr undanúrslitunum og 9% voru bjartsýnastir og sögðu hann örugg- lega komast áfram. 6% svarenda voru ekki vissir. Í næstu viku er spurt: Ert þú komin/n á sumardekkin? Sindri Víðir Einarsson sem kemur fram undir listamannanafninu MC Ís- björn rappaði af stakri snilld ásamt þeim JóaPé og Króla á hátíðinni List án Landamæra sem hófst í Reykjavík í síð- ustu viku. Sindri Víðir er Vestlending- ur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Snjókall í maí Maímánuður er gjarnan mild- ur vormánuður en í ár hefur það sem af er mánaðarins frek- ar minnt á haustið eða jafn- vel vetrartíð. Um liðna helgi var snjóþekja á Vesturland og víða nokkuð vetrarlegt um að litast. Í Þurranesi í Saurbæ í Dölum var nægur snjór til að hnoða í myndarlegan snjókall án mikillar fyrirhafnar og var það einmitt það sem Ingunn Jóna Jónsdóttir gerði. Hún bjó til þennan fína kall á pall- inum hjá sér snemma á laug- ardag. Snjókallinn var þó ekki langlífur því síðar um daginn fór að rigna en rigning er ein helsta dánarorsök snjókalla. -arg Efnisgeymslan smám saman að hverfa Íbúar á Akranesi urðu marg- ir hverjir varir við nokkurn hávaða og drunur síðastlið- inn föstudag. Bárust þær frá Sementsverksmiðjunni, þar sem starfsmenn fyrirtækis- ins Work North ehf. vinna að niðurrifi bygginga og búnað- ar. Drunurnar orsökuðust af því að þá var þak efnisgeymsl- unnar að falla, en undanfarn- ar vikur hefur verið unnið að því að rífa þetta stóra mann- virki. Hefur Faxabraut verið lokuð frá 13. apríl vegna þessa. Ekki er annað að merkja en að verkið sækist vel. -mm Breyting á lista VG BORGAR- BYGGÐ: Á f é l ag s fund i VG í Borg- arbyggð síð- a s t l i ð i n n f i m m t u d a g var samþykkt breyting á áður samþykkt- um framboðslista fyrir sveit- arstjórnarkosningarnar. Guð- mundur Freyr Kristbergsson, ferðaþjónustubóndi á Háafelli í Hvítársíðu, tekur þriðja sæti á listanum. Kemur hann í stað Eiríks Þórs Theódórssonar sem óskað hafði eftir því að draga framboð sitt til baka af persónulegum ástæðum. List- inn er að öðru leyti óbreyttur frá kynningu á honum í frétt Skessuhorns nýverið. -mm Óbyggðanefnd kvað á fimmtudag upp úrskurði vegna krafna Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, fyrir hönd íslenska ríkisins, um þjóðlendur á svæði 9A, sem nær yfir Dalasýslu að undanskildum fyrrum Skógarstrandarhreppi. Þjóðlendukröfur í Dölum náðu til Svínadals, Flekkudals, Vatnsþverdals, fjalllendi Skarðs í Haukadal, Stóra-Vatnshorns- múla, Jörfaafréttar, landsvæð- is sunnan og vestan Villingadals- draga, Geldingadals, Sauðafells- lands, landsvæðis sunnan Hunda- dals og Hundadalsheiði, fjalllend- is Fremri-Vífilsdals, fjalllendis Hrafnabjarga og Botns við Svín- bjúg. Var kröfunum skipt upp í þrjú mál eftir svæðum. Ítarlega lýsingu krafna og yfirlitskort af hverju svæði fyrir sig er að finna á vefsíðunni obyggdanefnd.is. Skemmst er frá því að segja að óbyggðanefnd hafnaði þjóðlendu- kröfunum að langstærstum hluta. Stærstum hluta þjóðlendukrafna í Dölum hafnað Aðalkröfur ríkisins um þjóðlendur eru merktar með rauðum útlínum á kortinu. Óbyggðanefnd samþykkti aðeins brot af kröfunum. Síðastliðinn föstudag var undir- ritaður samningur milli Borgar- byggðar og byggingarfyrirtækisins Eiríkur J. Ingólfsson ehf. um stækk- un og heildarendurbætur á hús- næði Grunnskólans í Borgarnesi. Er samningurinn gerður að und- angengnu útboði sem Ríkiskaup sá um fyrir sveitarfélagið. Einungis barst eitt tilboð í verkið. Á vef sveit- arfélagsins segir að framkvæmd- ir muni nú hefjast á næstu dögum. Verkið mun standa yfir í þrjú ár og er heildarkostnaður við það um 750 milljónir króna. „Langþráður áfangi er nú í höfn varðandi end- urnýjun og stækkun húsnæðis skól- ans og stórbætta aðstöðu nemenda og starfsfóks,“ segir í tilkynningu vegna undirritunar samningsins. mm Samið um endurbætur og stækkun grunnskólans Samningar voru undirritaðir og loks handsalaðir. F.v. Eiríkur J Ingólfsson verktaki, Pálmi Sævarsson formaður byggingarnefndar og Gunnlaugur A Júlíusson sveitar- stjóri. Ljósm. borgarbyggd.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.