Heimsmynd - 01.04.1993, Side 16

Heimsmynd - 01.04.1993, Side 16
DROTTNING DEMÓKRATANNA Pamela Harriman, ein valdamesta kona Washington D.C., á heimili sínu í Georgetown. Allir tala um Hillary Clinton, en ókrýnd drottning demó- krata í Washington D.C. heitir Pamela Harriman, forrík ekkja sem hefur urmið giftusamt starf fyrir demókrata á bak við tjöldin öll þau ár sem repúblíkanar voru við völd í Hvíta húsinu. Hún er 72 ára gömul og er nú í innsta hring þess hóps sem Bill Clinton og frú leita til. Pamela Harriman er dóttir bresks lávarðar. Hún gerðist bandarískur ríkisborgari árið 1971 eftir að hún gekk að eiga þriðja eiginmann sinn, Averell Harriman, fyrrum ríkisstjóra New York og ráðgjafa hvers einasta forseta demókrata frá og með Franklin Roosevelt til og með Jimmy Carter. Pamela kynntist Averell á stríðsámnum í London en þá var hún óhamingjusamlega gift Randolph syni Winstons Churchills. Hún hikaði ekkert við að gerast bandarískur ríkisborgari á sínum tíma og sagði það vera það minnsta sem hún gæti gert fyrir hinn ameríska eiginmann sinn. Kunnugir segja að hún hafi gert mun meira fyrir hann því þessi glæsilega enska hefðardama hleypti nýju blóði í demókrata eftir sáran ósigur þeirra í forsetakosn- ingunum 1980. Þá varð til klíka í kvöldverðarboði á heimili hennar í Georgetown, hinum rómaða bæjarhluta Washington, sem átti eftir að vera virk bak við tjöldin öll Reagan- og Bush-árin. í þessum hópi voru meðal annarra Clark Clifford, Dale Bumpers og Robert Strauss sem allir höfðu skoðun á framtíð flokksins. Demókratar höfðu vart unnið sigur í forsetakosningum síðan 1964 að frátöldum naumum sigri Jimmy Carters 1976 og þeir töpuðu ekki aðeins í forsetakosn- ingunum 1980 heldur einnig öldungadeildinni. Það blés ekki byr- lega fyrir þeim. Flestir höfðu hætt fjárstuðningi 1972 eftir að lögum um slíkan stuðning við stjómmálaflokka var breytt. Árið 1980 sá Averell Harriman að við svo búið mátti ekki standa og að hleypa yrði nýju líft í flokksstarfið. Framtíð Pamelu Harriman sem einnar valdamestu konu í Washington var ráðin við tilurð PAC eða PAM— PAC, eins og þessi kjarni innan flokksins er oftast nefndur. Stórblaðið Washington Post sagði að Pamela væri eini gestgjafinn í Washington sem hefði sína eigin utanríkisstefnu en þá hafði hún vakið athygli fyrir fyrirlestur sem hún flutti í alþjóðadeild George- town-háskólans fyrir verðandi diplómata. Ýmsir spurðu hvaða erindi þessi fína frú ætti í ræðustól á svo virðulegum stað og höfðu meiri áhuga á að vita hverju hún hefði klæðst við tilefnið. Staðreyndin er hins vegar sú að hún var þá þegar búin að safna tíu milljónum dala fyrir flokkinn. Kínversk stjómvöld voru ekki í nokkrum vafa þegar þau báðu hana að taka sæti manns síns við fráfall hans í nefnd sem þau höfðu sett á laggimar. Þegar Raisa Gorbatsjov kom til Washing- ton drakk hún te með Pamelu og sat brosandi fyrir á myndum með henni en ekki forsetafrúnni sjálfri. En hver er þessi kona? Fædd Pamela Digby, gift Churchill, Hayward og loks Harriman. Hún er dóttir Digbys baróns af Dorset. Fyrsti eiginmaður hennar var blaðamaðurinn Randolp Churchill, drykkfelldur sonur Winstons. Hún var aðeins nítján ára gömul þegar hún játaðist honum eftir þrjú stefnumót en fékk lítið út úr hjóna- bandinu utan þess að eignast soninn Winston Churchill, verða náinn vinur tengdaföðurins sem að vísu kynnti hana fyrir Averell Harriman, síðar þriðja eiginmanni hennar. Eftir skilnaðinn við Randolph fluttist hin brúnhærða fegurðardís til Parísar þar sem hún hrærðist í hringiðu frægra einstaklinga eins og Elie de Rothschild, Gianni Agnelli, Frank Sinatra og Aly Kahn. Hún giftist Leland Hayward og loks Averell Harriman þegar hún var að nálgast fimm- tugt. Báðum þessum seinni mönnum reyndist hún góð eiginkona en ævisöguritari Harrimans segir að hún hafi gerbreytt viðhorfum hans til kynjanna. Harriman hafði áður vakið athygli fyrir karlrembu en eftir að hún kom til sögunnar skipti hann það litlu þótt hún tæki hans sæti við borðið. Þannig kynntist hún Bill Clinton, þá nýkjömum ríkisstjóra Arkansas, og skeggræddi við hann fram undir morgun og var þá eiginmaðurinn löngu genginn til náða. Harriman lést 1986 og skildi ekkjuna eftir með bú sem metið var á 75 milljónir dala. Stjómmálin og bandarísk þjóðmál eiga hug hennar allan. Hún er meira að segja með tvo síma í búningsherberginu sínu til að missa ekki af neinu. Hún grobbar sig af því að sækja aldrei konuboð og hún segist aldrei halda samkvæmi án pólitísks tilgangs. Heimili Harriman-hjónanna þar sem hin frægu Georgetown-samkvæmi em haldin þykir afar látlaust. Þó fer ekki á milli mála að þau eiga mikið málverkasafn, rósir eftir Van Gogh, mynd Picassos af móður og bami og verk eftir Matisse, Degas, Derain og Sargent. ■ 16 HEIMS MYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.