Heimsmynd - 01.04.1993, Blaðsíða 24
Þar sem Maya-þjóðin tignaði áður sólina og tunglið flatmaga nú
bleiknefja sóldýrkendur eða snúa tánum upp í loft á himinbláu
ströndinni sem núna býður upp á allt það besta sem góður
sumarleyfisstaður hefur upp á að bjóða.
I sól og
sælu í
Cancun
Nú geta íslendingar farið með beinu leiguflugi á indjána-
slóðir í fylgd með ferðaskrifstofunni Heimsferðum sem
Andri Már Ingólfsson rekur. Sumarleyfisstaðurinn
Cancun er á Yucatan-skaganum í Mexíkó og liggur á
um tuttugu kílómetra löngu sandrifi við Karíbahafið.
Fyrir aðeins um tuttugu ámm var engin baðstrandar-
paradís að nafni Cancun, aðeins eyðileg snjóhvít strandlengja þekkt
sem la costa turquesa eða himinbláa ströndin vegna hins tæra bláma
frá Karíbahafinu. Þá voru einu gestimir fiskimenn og sæbarðir
pelikanar.
Það var tölva sem valdi Cancun sem heppilegan stað til að byggja
upp fyrsta flokks ferðaaðstöðu. Fyrstu hótelin opnuðu þar 1975 og
síðan hefur lítið lát orðið á uppbyggingu staðarins og núna heim-
sækja tæplega tvær milljónir ferðamanna staðinn árlega. íslendingar
munu innan skamms fylla þann fríða flokk ferðamanna þvr að
Heimsferðir hafa bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða upp á beint
leiguflug þangað. Að öðmm sumardvalarstöðum ólöstuðum er þetta
ákjósanlegasta sumarfríið sem ferðaskrifstofurnar bjóða
upp á í sumar. Þar kemur til viðráðanlegt verð, gisti- og
tómstundaaðstaða í sérflokki og skoðunarferðir um ná-
grennið sem veita innsýn í menningu hinnar fomu indjána-
þjóðar Maya. Orðið Cancun merkir í tungu Maya-þjóðar-
innar gullpottur og nafnið er ekki fjarri lagi, staðurinn er
gullpottur fyrir þá ferðamenn sem vilja velheppnað sumarfrí
og einnig fyrir innfædda en túristagullið er þeim ekki síður
mikilvægt.
Fyrstu hvítingjarnir sem drápu niður fæti á Yucatan-
skaganum var spænskur hópur skipreika sjóara árið 1511,
það var dapur hópur. Sálarástand þeirra átti þó eftir að
daprast til muna því þá rak beint í flasið á indjánunum
sem brytjuðu þá niður, alla utan tvo, og fómuðu guðunum.
Þar sem Maya-þjóðin tignaði áður sólina og tunglið flat-
maga nú bleiknefja sóldýrkendur eða snúa tánum upp í loft
á himinbláu ströndinni sem núna býður upp á allt það besta
sem góður sumarleyfisstaður hefur upp á að bjóða.
Fyrir utan fyrsta flokks hótel og aðstöðu eru menningar-
verðmæti í nágrenninu nær ótæmandi en þar ríkti hámenning
hundruðum ára áður en Spánverjar fundu Mexíkó. Maya-þjóðin
hafði tímatal sem var nákvæmara en okkar, bjó yfir þróuðu stærð-
fræðikerfí, byggði miklar borgir og lagði vegi en þessi mikla menn-
ing hnignaði og enn þann dag í dag eru menn litlu nær um ástæður
þess. En þó að veldi Maya-þjóðarinnar hafi fallið standa minnis-
varðarnir og ekki langt undan Cancun má finna menningar-
verðmæti svo sem Snákapýramídann í Chicken Itza og Stjömu-
skoðunarmiðstöðina sem bera vitni um ótrúleg menningar-
verðmæti og þekkingu sem Maya-þjóðin bjó yfir langt á undan
Evrópubúum. Chicken Itza er stærsta og þekktasta svæðið á
Yucatan-skaganum og liggur í 125 mílna fjarlægð frá Cancun en
ferðin milli þessara staða gefur innsýn í líf Maya í dag og litlu fer-
hymdu steinhúsin með moldargólfunum og stráþökunum minna
gesti áþreifanlega á að þessi upprunalega menning Maya-þjóðar-
innar lifir enn í gegnum afkomendur hennar. Rústimar í Chicken
Itza ná yfir um tíu ferkílómetra svæði og á því svæði gefur að líta
arfleifð þriggja ólíkra tímabila í sögu Maya-þjóðarinnar.
Annar helgistaður Maya í nágrenni Cancun er Tulum en hann er
einhver fegursti staður í Mexíkó. Þó að hann sé minni og verði seint
líkt við Chicken Itza hvað byggingarlist og mikilleika varðar, er
umhverfi Tulum engu að síður stórkostlegt í lítillæti sínu. Tulum
sem snýr út að Karíbahafinu var nefnt „Dama“ til foma eða borg
dögunarinnar og ljóðrænan í nafninu er skiljanleg í ljósi þess að
sólarupprásin og sólarlagið er himneskt í þessu umhverfi og það er
ferðarinnar virði að fylgjast með blíðum geislum sólarinnar þegar
hún kveikir varlega upp í eldgömlum steininum og gæðir hann lífi.
Paradísareyjan Isla Mujeres hefur einnig mikið aðdráttarafl og
fyrir viðráðanlegt verð bjóða Heimsferðir upp á flug og gistingu á
Kúbu fyrir gesti í Cancun. Það er þó aðeins fátt upp talið af
skemmtilegum skoðunarferðum um nágrennið. En Cancun er ekki
bara heppileg staðsetning fyrir þá sem vilja stökkva í allar áttir á vit
fomrar menningar. Cancun er í raun það sem þú vilt að hún sé. Þar
er allt til alls, og sé ætlunin að eyða peningum í sumarleyfi, fæst
mest fyrir þá í gullpottinum við Karíbahafið. ■
24
HEIMS
MYND