Heimsmynd - 01.04.1993, Blaðsíða 44
Bill Kasmaier, GeoffCapes ogJón Páll, en myndin er tekin
á Kastalamótinu í Skotlandi þegar kempurnar reyndu með
sér í keppninni Sterkasti maður allra tíma.
Jón Páll á heimili foreldra sinna Dóru Jónsdóttur og Sveins Guðmundssonar, ásamt
systkinum sínum, Júlíönnu, Guðrúnu, Sveini, Hlín og Sœrúnu Dögg.
erlendis. Þegar Jón Páll kom til landsins voru kraft-
lyftingamenn gengnir úr ÍSÍ og búnir að stofna sín eigin
samtök undir forystu Olafs Sigurgeirssonar. Er Jón Páll
kom til landsins barst annað skeyti frá íþróttasamband-
inu þess efnis að honum bæri að mæta í lyfjapróf. Nú
hafði hinsvegar ÍSÍ ekki lögsögu lengur yfir Jóni Páli að
dómi kraftlyftingamanna og málið leystist upp í deilur
milli þessara tveggja aðila. ÍSÍ brá á það ráð að dæma
Jón Pál í keppnisbann en það bann hafði engin áhrif þar sem kraft-
lyftingamót voru haldin á vegum Sambands kraftlyftingamanna.
Það sannaði hann sjálfur með því að taka þátt í íslandsmóti í kraft-
lyftingum eftir þetta og sigra í sínum flokki og verða jafnframt
stigahæstur keppenda. Keppnisbannið var síðan tekið fyrir í
Bæjarþingi Reykjavíkur og fellt úr gildi. En þama lauk kraftlyft-
ingaferli Jóns Páls engu að síður því að hann vildi snúa sér heill og
óskiptur að aflraunamótum. Eftir á sámaði honum mest að ÍSÍ hafði
aldrei samband við hann sjálfan í kringum þetta mál. Hann sá það
fyrst í sjónvarpsfréttunum að hann hefði verið settur í keppnisbann.
Þó að flest gengi í haginn fyrir Jóni Páli á keppnisvellinum blés
ekki alltaf byrlega í einkalífinu. íþróttimar tóku mikinn tíma og það
voru ómældir fjármunir sem þurfti til að standa straum af stöðugum
keppnisferðum og því líferni sem fylgdi. Hann kynntist fyrrum
sambýliskonu sinni og barnsmóður, Ragnheiði Jónínu Sverris-
dóttur, þegar hann var dyravörður á Hótel Borg og þeirra samvistir
urðu alls fjögur ár auk tilrauna til að taka upp þráðinn þar sem slitn-
aði og vináttu meðan Jón Páll lifði.
,J»að var ekki alltaf auðvelt að búa með manni eins og Jóni Páli
þó að það væri oftar en ekki skemmtilegt. Það þurfti alveg sérstakan
skilning á íþróttinni og öllu sem hún krafðist. Við konumar í lífi
hans höfðum sjálfsagt ekki nægilegan þroska til að axla þessar kröf-
ur. Það má segja að líf okkar hafi verið undirlagt af æfingum og
sérstöku mataræði auk þess sem við áttum bam og vorum að reyna
að festa kaup á íbúð og lífíð var, má segja, æfingar og vinna,“ sagði
Ragnheiður Jónína. „Dagurinn byrjaði ósjaldan þannig að ég hljóp
upp á Landspítala þar sem ég vann sem læknaritari og þar var ég til
tveggja ára gamall. Þá var komin önnur kona í spilið. Gift kona sem
átti eftir að koma töluvert við sögu í lífi Jóns Páls næstu árin. „Það
var farið að hrikta í stoðum sambandsins áður en hún kom til og ég
bar því engan kala til hennar,“ segir Ragnheiður Jónína. En árið
1987 fór hann í sambúð með Halldóru Sverrisdóttur og stóð hún um
nokkum tíma.
ann naut mikillar kvenhylli enda óvenju glæsi-
legur maður,“ sagði Jóhann Möller. „Hann fékk
bréf og bónorð frá konum hvaðanæva úr heim-
inum, fátækum og ríkum, sem vildu hreinlega
kaupa hann. Allt þetta er ótrúlegt en satt og varð þó
aldrei til þess að hann ofmetnaðist. Hann sýndi
mér stundum eitt og eitt bréf og við furðuðum
okkur saman á mannlegu eðli. Þetta er eitthvað
sem maður heldur ekki að fyrirfinnist á Islandi en samt komu líka
svona bréf frá íslenskum konum. Þó að þessi ástarsambönd Jóns
hafi hlotið misjafnan endi þá veit ég ekki hversu mikið það var
honum að kenna. Þetta er starf sem krefst töluverðrar eigingimi ef
vel á að vera. Það þarf til dæmis að setja skýrar reglur um mataræði
og svefn. Hann átti í fáum lengri samböndum við konur og þau sam-
bönd tók hann mjög alvarlega. Hann var enginn kvennabósi. Það er
líka erfitt að vera frægasti Islendingurinn. Það eru örugglega fáar
konur sem halda út að eiga unnusta sem er á stöðugum ferðalögum
erlendis. Það eitt hefur örugglega haft sitt að segja.“ „Það er mikill
egoismi fylgjandi þessu starfi,“ sagði Ragnheiður Jónína. „Jón Páll
vildi hafa spegla allt í kringum sig, og hann var sífellt að sitja fyrir í
myndatökum, hnyklandi vöðvana í þessari eða hinni stöðunni, og þá
eitt um daginn. Þegar ég kom heim voru Jón Páll og Hjalti Úrsus að
fá sér í svanginn í eldhúsinu ásamt Sigmari syni okkar. Eftir það
fóru þeir á æfingu og þaðan beint á Hótel Borg í dyravörsluna. Við
hittumst mestmegnis í dyrunum þennan tíma. Sigmar sonur okkar
eyddi fyrstu árum sínum á líkamsræktarstöðvum og það lýsir kann-
ski ástandinu best að fyrstu jólin hans Sigmars vorum við foreldr-
amir mjög spenntir að sjá hann opna pakkana. Hann hnyklaði hins
vegar bara vöðvana og lyfti svo pökkunum upp fyrir höfuð í
réttstöðu. Hann drakk þetta allt í sig með móðurmjólkinni.“
Ragnheiður Jónína og Jón Páll skildu þegar Sigmar sonur þeirra var
44
HEIMS
MYND