Heimsmynd - 01.04.1993, Page 37

Heimsmynd - 01.04.1993, Page 37
svöng að þau svimaði. Þau fengu matargjafir frá bæjar- yfirvöldum og smám saman vék stoltið. Malcolm litli leitaði þangað sem mat var að finna. Hann stal einnig mat. Félagsmálayfirvöld fóru að falast eftir bömum Louise Little. Þau töldu hana ekki færa um að sjá þeim farboða. Malcolm skyldi tekinn fyrstur enda sekur um þjófnað. Móðirin barðist hart við yfirvöld. Hún vildi halda hópnum sínum saman. Loks höfðu yfirvöld betur. Börnin voru tekin og þeim komið fyrir hér og þar en Louise var sett á hæli. Taugar hennar höfðu brostið í erfiðri baráttunni og bömin vom samkvæmt úrskurði dómara nú böm hins opinbera - löglegir þrælar, eins og Malcolm orðaði það síðar. Þetta var árið 1937. Malcolm var komið fyrir hjá einni fjölskyldu á eftir annarri en einhvem veginn tókst systkinunum að halda sambandi þrátt fyrir að- skilnaðinn. Þegar hann var þrettán ára var honum komið fyrir á heimili fyrir vandræðabörn og í skóla fyrir slíka unglinga. Svo einkennilega vildi til að þar lenti Malcolm í höndunum á vinsamlegu hvítu fólki. En það sat í honum alla tíð hvernig þau töluðu um negra þegar hann var að sópa gólfin í kringum þau, líkt og þau tækju ekki eftir honum. En Malcolm stóð sig vel og hann var sendur í venjulegan gagnfræða- skóla. Þar sýndi hann strax námsárangur sem hvítum unglingi hefði verið umbunað fyrir en þar sem hann var svartur fékk hann ekki hrós frá kennaranum. Engu að síður viðraði Malcolm þá skoðun sína við kennarann að sig langaði til að ganga menntaveg- inn og verða lögfræðingur. Kennarinn brosti umburðarlyndur og benti honum á að það væri vissara fyrir hann að gerast smiður. Það var þá sem eitthvað brast hið innra með hinum lítt harðnaða ungl- ingi. Og á þeirri stundu má segja að framtíð hans hafí verið ráðin. Sumarið 1940 ákvað Malcolm, þá fimmtán ára, að fara til Ellu hálfsystur sinnar í Boston. Ella bjó í Roxbury, Harlem Boston, og hafði Malcolm aldrei áður séð svo marga blökkumenn á einu svæði. Ella systir hans var forkur dugleg og afar virk í félagsmálum svartra. Seinna sagði Malcolm að flutningur hans til Boston hefði verið örlagaríkasta skrefið sem hann steig á ævi sinni. „Ef ég hefði búið áfram í Lansing hefði ég endað sem einn af þessum heila- þvegnu negrum, í mesta lagi orðið smiður eða burstað skó í fína klúbbnum og þökk sé Allah að kennarinn hvatti mig ekki til að verða lögfræðingur því þá hefðu örlög mín orðið ömurleg. Eg hefði orðið einn af þessum snobbuðu svertingjum í kokteilboðum með það eitt að markmiði í lífinu að þéna meira.“ Ella bjó í skásta bæjarhlutanum í Roxbury, þar sem karlmenn- irnir státuðu sig af því að starfa í bankakerfinu sem þýddi í raun að þeir væru í mesta lagi húsverðir. Malcolm þræddi allar götur Boston og lýsti stórborginni í bréfum til systkina sinna í Lansing. Og þrátt fyrir mótmæli Ellu fór Malcolm að sækja félagsskap í gett- óin. Hann var bráðþroska og leit út fyrir að vera eldri en hann var í raun. Töffaramir heilluðu hann og fljótlega komst hann í kynni við einn að nafni Shorty. í kjölfarið fékk Malcolm starf við að bursta skó á karlasalemi á stórum skemmtistað. Hann kornst fljótt MALCOLM ÁSAMT MEISTARANUM Elijah Muhammad (Al Freeman jr.) sem síðar sveik hann. Hann leit á Muhammad sem heilagan mann og þjón- aði honum í tólfár. Malcolm giftist Betty Shabazz (Angela Bassett) 1958 og eignaðist með henni fjórar dœtur. að raun um að starfið bauð upp á fleiri möguleika, til dæmis að útvega hvítum körlum svartar gleðikonur og smokka. Og Malcolm fór að drekka áfengi, reykja sígarettur og maríúana. Hann klæddi sig að hætti hinna svertingjanna í jakka með axlapúðum og víðar buxur sem þrengdust niður. Fötin keypti hann út á krít. Og hann gekk í gegnum miklar þjáningar við að slétta á sér hárið að hætti harðjaxla gettóanna, allt í þeim tilgangi að afneita blökku- mannslegu útlitinu. Hann eignaðist vinkonur og ástmey sem var hvít. Þau kynni áttu eftir að reynast honum örlagarík. Malcolm var sextán ára þegar hann ákvað að reyna fyrir sér í New York og leið hans lá til Harlem. Hann átti kost á að komast þangað því hann hafði fengið starf við járnbrautirnar. Honum fannst hann kominn til himna. Hann stundaði barina, ákveðna staði, komst í kynni við dólgana, dópistana og dópsalana. Hann drakk burbon, reykti maríúna og hraðferð hans niður í ræsið var hafin. Þessi unglingsár Malcolms einkenndust af spennu næturlífs- ins, losta og löstum. Hann fór að starfa undir vemdarvæng glæpa- manns frá Vestur-Indíum að nafni Archie sem síðar fyrir misskiln- ing grunaði Malcolm um græsku og slapp hann naumlega frá því að falla fyrir byssukúlu Archies og frá því að verða sjálfur manni að bana. Malcolm sökk æ dýpra í eiturlyf, seldi þau sjálfur og var á kafi í vændisbransanum. Hann stundaði næturklúbbana og kynntist mörgu þekktu tónlistarfólki eins og Billie Holiday sem varð fómarlamb eiturlyfja og áfalla, eins og Malcolm orðaði það sjálfur. „Hún ein söng með sál negranna, túlkaði aldalanga þjáningu þeirra og sorg. Hvílík synd að þessi stórkostlega blökkukona skyldi aldrei fá að njóta sín í lifanda lífi.“ Allan tímann sem hann dvaldi í Harlem hélt hann sambandi við Sophiu, hvítu konuna í Boston, en hún var þá gift. Og þegar honum 37 MYND HEIMS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.