Heimsmynd - 01.04.1993, Síða 43

Heimsmynd - 01.04.1993, Síða 43
Á næstu árum fóru vel- gengnistímabil í hönd hjá Jóni og árið 1981 var hann kjörinn Iþróttamaður ársins, var þá þegar orðinn átrúnaðargoð ís- lenskrar íþróttaæsku. Hjalti Ursus Árnason umgekkst Jón Pál mikið á þeim tíma sem hann hóf að æfa kraftlyftingar. „Eg leit upp til hans,“ sagði Hjalti. „Hann var þremur árum eldri og þegar ég byrja að æfa með honum í kringum 1980 var hans stjama að risa. Ég þekkti hann aðeins úr Árbæjarskól- anum og hann byrjaði einnig að æfa karate á sama stað og ég. En við urðum ekki vinir fyrr en í gegnum kraftlyftingamar. Það var heillandi hvað hann var alltaf glaðlyndur og gaman- samur og ég fann að honum voru allir vegir færir. Ef Jón Páll hefði ekki verið sá sem hann var hefði þessi íþrótt aldrei náð að þróast hér á landi. --------------- Hann var sú fyrirmynd sem okkur öllum var nauðsynleg. Hann stóð á toppnum í kraftlyftingum 1984 og þá var ég rétt að byrja minn feril. Um það leyti sem ég er kominn á fulla ferð er hann svo til hættur og búinn að snúa sér alfarið að kraftamótum. Þetta var orðin atvinna hans og hann hafði ekki lengur ráð á áhugasporti eins og kraftlyftingum. Það var því aldrei um að ræða neina samkeppni á milli okkar nema smá stríðni þegar ég gat skákað einhverjum gömlum metum hans. Hann hafði frekar gaman að því að einhver væri kominn fram á sjónarsviðið sem gat strítt honum dálítið.“ Það sauð hinsvegar aðeins upp úr vin- skapnum árið 1989 þegar Hjalti Úrsus hélt á íslandi keppni um sterkasta mann heims. Þá bar Jón Páll ennþá titilinn frá samnefndu móti í Finnlandi, en heiti mótsins er ekki lögverndað og fannst honum að sér vegið. Þetta var þó ekki í fyrsta sinn sem mönnum mislíkaði að titillinn væri ekki lögvemdaður. Kasmaier hafði farið í mál vegna þess að einhver maður í Bandaríkjunum kallaði sig sterkasta mann heims. Hann tapaði málinu. Jón Páll reiddist Hjalta og tók ekki þátt í keppninni en fljótlega eftir þessi leiðindi urðu þeir mestu mátar aftur. Jón Páll var óvenjulegur afreksmaður í íþróttum, setti tugi meta í kraftlyftingum en af þeim má nefna þrjá Norður- landameistaratitla, þar af einn í unglingaflokki, þrenn silfurverðlaun á Evrópumótum og ein á heimsmeistara- mótinu í kraftlyftingum í Calcutta á Indlandi árið 1981. Sama ár tók hann í fyrsta sinn þátt í keppninni Víkingur Norðurlanda og hafnaði þar í öðru sæti. Hann varð tvíveg- is íslandsmeistari í vaxtarrækt og árið 1983 varð hann þriðji sterkasti maður Evrópu á samnefndu móti. í framhaldi af því náði hann að skapa sér nafn á Transworld Intemational. Þetta sama ár varð hann annar í keppni um titilinn Sterkasti maður heims í Christchurh á Nýja Sjálandi. Mestri þyngd lyfti Jón Páll á Jötnamótinu í Jakabóli árið 1984 þegar hann lyfti samtals 970 kílóum sem jafnframt var Evrópumet. Mótinu var sjónvarpað í beinni útsendingu og á sama móti setti hann Evrópumet í Jón Páll ásamt Arnold Schwarzenegger og umboðsmanni sínum Douglas Edmonds. Myndin er tekin í London réttstöðulyftu og hafði yfir setninguna: „Þetta er ekkert mál fyrir Jón Pál.“ Setningin varð fleyg í munni allra sem fylgdust með mótinu í sjónvarpi. Á þessum tíma var Jóni Páli boðin þátttaka í helstu aflraunamót- urn heims og uppskar hann laun erfiðis síns ríkulega þegar hann hlaut titilinn Sterkasti maður heims eftir samnefnda keppni í Mora í Svíþjóð árið 1985, en fyrrum handhafi titilsins var Englendingurinn Geoff Capes. Jóni Páli var tekið sem þjóðhetju þegar hann kom til landsins eftir mótið. Hann tapaði titlinum aftur í hendumar á Capes í Portúgal árið eftir en þreytti þá keppnina illa upplagður eftir meiðsl á öðru móti. Hann dró sig þá dálítið í hlé eftir keppnina en var fljót- ur á fætur aftur. Hann byrjaði aftur að æfa kraftlyftingar og skellti sér síðan í Islandsmótið í vaxtarrækt með stuttum fyrirvara og hafnaði þar í öðru sæti. Mörgum fannst þó að hann hefði átt skilið fyrsta sætið. Hann náði titlinum aftur af Capes ári seinna og hlaut þennan sama titil alls fjórum sinnum. Eftir það brosti frægðarsólin við honum jafnt heima og erlendis. Það voru þó ekki aðeins fræki- legir sigrar hans sem öfluðu honum vinsælda heldur einnig lifandi framkoma og lífsgleði. Einn glæstasti sigurinn á öllum ferli Jóns var sigurinn yfir bandaríska kraftajötninum Bill Kazmaier á mótinu Sterkasti maður allra tíma sem haldið var í Skotlandi í júlí 1987. Sú keppni fékk umfjöllun í blöðum um allan heim. Islenski víkingurinn vakti þó hvarvetna athygli þar sem hann keppti fyrir Islands hönd. Á ferðalögum sínum erlendis var Jón Páll sífellt með nafn Islands á vörunum og það var landkynning sem hann fékk aldrei greitt fyrir. Hann naut heldur aldrei neinna fjár- framlaga frá Iþróttahreyfingunni utan Kraftlyftingasambandsins né heldur hlaut hann viðurkenningu stjómvalda. Vorið 1985 kom upp leiðindamál milli lyfjaeftirlitsnefndar ÍSÍ og kraftlyftingamanna. Jón Páll var þá kallaður í lyfjapróf ásamt öðrum íþróttamönnum en þannig vildi til að hann var staddur erlendis. Lyfjanefndin tók það óstinnt upp að Jón Páll skildi ekki mæta í lyfjaprófið en fékk þá skýringu að hann væri staddur HEIMS MYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.