Heimsmynd - 01.04.1993, Blaðsíða 72

Heimsmynd - 01.04.1993, Blaðsíða 72
sr<s# tlisabet Hjattadottir og tmar Guojinnsson asamt börn- itm sínum átta. Til vinstri situr Hildur en til hægri Halldóra. Frá vinstri í efri röð standa Pétur Guðni sem rekur flutningafyrirtœki, Jón Friðgeir, byggingarmeistari og verslunareigandi, Guðmundur Páll yfirverkstjóri, Jónatan forstjóri, Hjalti framkvœmdastjóri SH og Guðfinnur forstjóri. Guðfinnur og Einar Guðfinnsson sem situr með alnafna sinn ífanginu, nú alþingismann. son hafi ekki lagt í vana sinn að skammast á vinnustöðunum en það hafi hins vegar engum leynst ef honum fannst illa staðið að verki og hann lét það þá í ljósi nema honum mislíkaði mikið. Þá gekk hann í burtu þegjandi og svipþungur með hendur á baki og fjallaði ekki um málið fyrr en honum fór að renna reiðin. Séra Gunnar Björnsson, sem um árabil var sóknarprestur á staðn- um, segir skemmtilega sögu af slíku tilviki: inhverju sinni var það um morguntíma í Bolungarvík að mér var gengið með Einari niður á Brimbrjót. Þar var þá fyrir einn af stafn- búum Einars, fyrirliði í at- vinnurekstri hans. Sá var geðríkur í góðu meðallagi eins og margir Vestfirðingar. Maður sá gekk að Einari og las honum reiðilestur vegna einhverra atvika er gerst höfðu fyrr um morguninn. í Bolungarvík verða fagrir vetrarmorgnar með stóru tungli er stafar hvítri birtu á dal og hól. Einar hlýddi á sinn kæra samstarfsmann flytja ræðuna til enda. Síðan setti hann í brýrnar, lagði hendur á bak sér og gekk burt. En þegar hann var kominn steinsnar upp á Malirnar, hóf hann lágum rómi að svara verkstjóra sínum, ávarpaði hann fjarstaddan nokkrum vel völdum orðum, efnislega á þá leið að vera kynni að eigi væri eins sök, er tveir deildu, að sumir skyldu líka passa sjálfan sig og enginn væri nú fullkominn og þannig áfram í sama dúr nokkra hríð. Kosturinn við þessa aðferð Einars var sá að viðmælandinn var löngu úr kallfæri og heyrði auðvitað ekki eitt einasta orð sem Einar Guðfinnsson sagði þennan vetrar- morgun í henni Bolungarvík. Enda eins gott. Niðurstaðan var sú að enginn varð móðgaður, það urðu engin vinslit, allt var jafngott og áður og stafnbúinn löngu kominn í sólskinsskap í tíukaffinu þann sama morgun.“ Það orð lék á að Einar Guðfinnsson réði öllu í Bolungarvík allt til æviloka. Þegar Bolvíkingurinn Karvel Pálmason var óvænt kjörinn á þing árið 1971 sagði kona nokkur á Austfjörðum: „Hvernig stendur á því að hann Einar leyfir þetta.“ Mikill ættgarður er nú frá Einari Guð- finnssyni kominn. Böm hans voru öll vanin á að vinna fyrir fyrirtækið svo snemma sem aldur leyfði. Einhvern tíma meðan synir hans voru ungir segir sagan að skipstjóri sem var á skipi sínu við Brjótinn að ferma skip sitt hafi vikið sér að unglingspilti sem var að vinna í skipinu: „Hverra manna ert þú, piltur minn?“ „Einar Guðfinnsson á mig,“ segir dreng- urinn. „Já, hann á margt hér, hann Einar,“ segir skipstjórinn, og svo fór hann upp á Brjót- inn og er að ráfa þar um og fylgjast með útskipuninni. Hann gekk að bflnum sem verið var að afhlaða og spurði piltinn sem var á bílpallinum: „Hver á þig?“ „Eg er sonur Einars Guðfinnssonar,“ var svarið. „Skipstjórinn lét þetta gott heita, en í því kemur bílstjórinn út úr bflnum til að rétta úr sér, og skipstjórinn segir glottandi: „Hann Einar á náttúrlega þig líka?“ „Já, Einar Guðfinnsson á mig,“ sagði bílstjórinn. Skipstjórinn var nú farinn að hafa gaman af þessu og hélt þetta vera eitthvað glens í strákunum, af því að Einar væri svo stór karl í plássinu, þá þættust þeir allir vera synir hans. í þessum svifum bar að pilt með kost skipsins og skipstjórinn spurði hann hins sama og fékk sama svarið: „Eg er sonur Einars Guðfinnssonar.“ Þá fannst skipstjóranum nóg komið af þessu gamni og sagði: „Nei, strákar mínir, ég veit að Einar á flest í þessu plássi og er mikill dugnaðar- maður, en að hann eigi öll böm sem fæðast hér, því trúi ég ekki.“ Einar Guðfinnsson var kynsæll maður. Hann og Elísabet kona hans eignuðust sex syni og tvær dætur og bamabömin, sem nú eru öll uppkomin, eru 35. Guðfinnur Einarsson er elstur barn- anna, fæddur 1922 og því kominn á áttræðisaldur. Hann lauk prófi frá Verslunarskólanum 1941 og vann síðan að fyrirtækjunum, fyrst sem bókhaldari, síðan hafði hann umsjón með sfldarkaupum og síldarsöltun á Siglufirði. Loks varð hann framkvæmdastjóri allrar útgerðarinnar og hraðfrystihússins. Guðfinnur hefur einnig komið mjög fram fyrir hönd þeirra feðga út á við. Hann hefur verið í stjórn Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna, Tryggingamið- stöðvarinnar hf„ Jökla hf„ Sfldarverk- smiðju ríkisins og Síldarútvegsnefndar og verið stjómarformaður Coldwater í Bandaríkjunum. Heima fyrir sat hann meðal annars í stjóm Sparisjóðs Bolungarvíkur og Vélsmiðju Bolungar- víkur. Hlutafélagið Einar Guðfinnsson hf. HEIMS 72 MYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.