Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Síða 15
18. október 2019 FRÉTTIR 15
lýsa samningi, því segir hann
ítrekað hafa verið lofað og jafn
oft svikið. Hann gat því aldrei sótt
um húsaleigubætur, sem reyndist
honum þungbært.
„Ég held að hún hafi ekki verið
að gefa leiguna upp, eða ekki vilj-
að að yfirvöld vissu að hún væri
að leigja út bílskúrinn því ég ef-
ast um að það sé löglegt að leigja
svona út sem íbúðarhúsnæði,“
segir Ali. Vert er að taka fram að
löglegt er að leigja út bílskúr sem
íbúðarhúsnæði að uppfylltum
skilyrðum, svo sem að leigutekjur
séu gefnar upp til skatts.
Linda ekki eigandi
Þinglýsing húsaleigusamnings er
forsenda þess að húsnæðisbætur
fáist greiddar. Til þess að hægt
sé að þinglýsa húsaleigusamn-
ingi þarf leigusali samkvæmt
samningi að vera þinglýstur eig-
andi eignarinnar, eða hafa ein-
hverja sannanlega heimild um að
hafa lagalegan rétt til að ráðstafa
afnotarétti af eigninni með leigu-
samningi.
Þegar Sjávargötu er flett upp í
fasteignaskrá sést að Linda hef-
ur ekki verið eigandi eignarinn-
ar síðan árið 2015. Þá seldi hún
eignina til fransks ríkisborgara
fyrir 48 milljónir króna. Fast-
eignamat eignarinnar er í dag
tæpar áttatíu milljónir króna.
Kaupandinn var búsettur er-
lendis og þurfti því að skrifa und-
ir yfirlýsingu þess efnis að hann
hygðist sjálfur búa í eigninni eða
nýta hana sem orlofsbústað, en
slíka yfirlýsingu verða íbúar EES-
svæðisins að undirrita er þeir
kaupa fasteignir á Íslandi.
Kaupandinn er barnsfaðir Lindu
Kaupandinn samkvæmt fast-
eignaskrá, Mohammad Azab, og
er egypskur krabbameinslækn-
ir sem starfar hjá lyfjafyrirtæki í
Ameríku. Í viðtali við Loga Berg-
mann í mars á þessu ári lýsti
Linda barnsföður sínum, sem
hún hefur aldrei nafngreint op-
inberlega, með eftirfarandi hætti:
„Hann er egypskur krabba-
meinslæknir og vísindamað-
ur, búsettur í Bandaríkjunum að
uppgötva og selja lyf við krabba-
meini. Hann er þroskaðri og að-
eins eldri en ég.“
Ísabella ber eftirnafnið Azab
samkvæmt Þjóðskrá og því má
leiða líkur að því að umræddur
Mohammad, kaupandi Sjávar-
götu, sé barnsfaðir Lindu. Í sama
viðtali greindi Linda frá því að
samskipti Ísabellu við föður sinn
væru afar takmörkuð, og hún hafi
til að mynda aldrei gist hjá hon-
um.
Mæðgurnar eru búsettar er-
lendis, en lögheimili þeirra sam-
kvæmt Þjóðskrá er eftir sem áður
að Sjávargötu. Ekki er því að sjá að
Mohammad hafi haft þar bústað
eða orlofsveru, þvert á yfirlýsingu
hans þar um. Í yfirlýsingunni er
tekið fram að röng yfirlýsing varði
refsingu samkvæmt íslenskum
hegningarlögum.
Seldi rétt fyrir í gjaldþrot
Þegar Linda seldi eignina árið 2015
var hún illa stödd fjárhagslega og
var hún úrskurðuð gjaldþrota í
Héraðsdómi Reykjaness þann
12. nóvember. Líkamsræktar stöð
hennar, Baðhúsinu, var lokað í
desember 2014 og var í kjölfarið
úrskurðað gjaldþrota. Aðeins 2,1
milljón fékkst upp í þær rúmlega
180 milljóna króna kröfur sem
voru gerðar í þrotabú Baðhússins.
Gjaldþrotaskiptum Lindu sjálfrar
lauk í apríl 2016 og nam heildar-
krafa í búið 56 milljónum króna.
Búið var eignalaust og því fékkst
ekkert upp í kröfur.
Eins og áður segir er fasteigna-
mat Sjávarsíðu í dag tæpar áttatíu
milljónir króna. Eignin var seld
fyrir 48 milljónir, rétt fyrir gjald-
þrot Lindu.
Löglegur húsaleigusamningur?
Samkvæmt leigusamningnum
við Ali er leigusali Linda Péturs-
dóttir. Hvergi kemur fram í samn-
ingnum að Linda sé ekki eigandi
eignarinnar. Hún er ekki titluð
umboðsmaður eiganda, þvert á
móti er skráður umboðsmaður
fyrir hana, leigusalann. Engum
leigusamningi milli Mohammads
og Lindu er þinglýst á eignina og
leigusamningurinn við Ali hvergi
kallaður framleigusamningur.
Líklegt verður að telja að Lindu
verði ekki stætt á að leita laga-
legra úrræða til að fá Ali dæmd-
an til að greiða fullan uppsagnar-
frest.
Samkvæmt húsaleigulögum
hefur hún tvær vikur í viðbót til
að gera kröfu í tryggingarfé sem
leigusali, en til þess að slíkt geti
gengið eftir verður að liggja fyrir
úttekt á húsnæðinu áður en Ali
flutti inn, og úttekt sem gerð var
eftir að hann flutti út sem Ali eða
umboðsmanni hans væri boðið
að vera viðstaddur.
Linda lokaði á samskipti við
Ali sama dag og hann skilaði
lyklunum. Upprunalega ætlaði
hún að fara eftir húsaleigulögum
og gefa honum 24 klukkustundir
til að bæta úr annmörkum á við-
skilum húsnæðisins, en dró það
boð strax til baka og vísaði á lög-
mann sinn.
Kærir til að fá tryggingu til baka
Ali hefur leitað til kærunefnd-
ar húsamála til að fá trygginguna
sína til baka, hann sá enga aðra
leið færa í stöðunni. Í kærunni
segir meðal annars: „Það var pínu-
lítill gluggi í bílskúrnum og skol-
plögn sem lyktaði og gerði lífsað-
stæðurnar óviðunandi. Leigusali
hafði lofað að þinglýsa leigusamn-
ingnum svo leigjandi gæti feng-
ið húsaleigubæturnar sínar. Síð-
an neitaði leigusalinn að þinglýsa
og leigjandi lét þá munnlega vita
að hann segði leigunni upp sam-
kvæmt 3ja mánaða uppsagnar-
frest. […] Lífsaðstæður í bílskúrn-
um voru ekki manni bjóðandi og
leigjandi gat ekki sofið og hafði
lent í vinnuslysi vegna örmögn-
unar.“
Ekki náðist í Lindu Péturs-
dóttur við vinnslu greinarinnar
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. n
„Það var pínulítill gluggi
í bílskúrnum og skolp
lögn sem lyktaði og gerði lífs
aðstæðurnar óviðunandi
Sjávargatan á Álftanesi: 200 fermetra einbýli úr
timbri auk rúmlega fimmtíu fermetra bílskúrs.
Ali Taha Falih vill bara trygginguna sína til baka.
Linda P í leigustríði