Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Síða 16
16 18. október 2019FRÉTTIR N ý rannsókn, sem birt er í Læknablaðinu, hverfðist um það að kanna þróun ávísana á þunglyndis­ lyf, róandi lyf og svefnlyf í Heilsugæslu höfuðborgarsvæð­ isins á tímabilinu hjá einstak­ lingum 18 til 35 ára, 2006 til 2016, fyrir og eftir bankahrun. Rannsóknin sýnir auknar ávísanir á svefnlyf og róandi lyf í aðdraganda efnahagshrunsins, þá sérstaklega meðal karl­ manna. Athygli vekur að á sama tíma sést ekki sams konar aukn­ ing á ávísuðu magni þunglyndis­ lyfja. Eru þær ályktanir dregnar í rannsókninni að þetta bendi til að skammvirkum, fljótvirkum lyfjum hafi verið ávísað í tengsl­ um við erfiðar persónulegar ástæður í kringum hrunið. „Þetta verður að teljast nokk­ uð rökrétt miðað við virkni lyfj­ anna og gætu þau því verið lausn á vandamáli sjúklings sem leysa þarf hratt og var ef til vill talið tímabundið,“ stendur í rannsókninni. Aftur á móti er áberandi aukning í skömmtun þunglyndislyfja, róandi lyfja og svefnlyfja á seinni hluta rannsóknartímabilsins, frá ár­ inu 2013. „Hvað veldur þessari aukningu er óljóst, til dæmis hvort hana megi rekja til ytri að­ stæðna í íslensku samfélagi,“ er tekið fram. Aukning milli ára Rannsóknin náði til allra ávís­ ana á þunglyndislyf, róandi lyf og svefnlyf hjá 18 til 35 ára skjól­ stæðingum Heilsugæslu höfuð­ borgarsvæðisins á tímabilinu 2006 til 2016. Um 55 þúsund einstaklingar í þessum aldurs­ hópum voru búsettir á höfuð­ borgarsvæðinu á þessu tímabili. Í rannsókninni voru gögn fengin úr Sögu, rafrænu sjúkraskrár­ kerfi heilsugæslunnar, fyrir tæp­ lega 23 þúsund einstaklinga. Ásvísuðum dagskömmtum róandi lyfja fjölgaði að meðal­ tali um þrjú prósent á milli ára á rannsóknartímabilinu, svefn­ lyfja um 1,6 prósent og þung­ lyndislyfja um 10,5 prósent. Á árunum 2008 til 2009 fjölg­ aði ávísuðum dagskömmtum róandi lyfja um tæp 23 prósent, þar af tæp 13 prósent hjá konum og tæp fjörutíu prósent hjá körl­ um. Af þeim körlum sem fengu ávísað róandi lyfjum árið 2009 höfðu 35 prósent ekki fengið ávísað lyfjunum áður. Á tímabil­ inu 2006 til 2008 var að meðal­ tali tæp 13,6 prósenta aukning á milli ára í útskrifuðum dag­ skömmtum svefnlyfja, þar af rúmlega 24 prósenta aukning hjá körlum og tæplega átta pró­ senta aukning hjá konum. Konur í meirihluta Á rannsóknartímabilinu, frá 2006 til 2016, fengu tæplega 23 þúsund manns á aldrinum 18 til 35 ára ávísað einu eða fleiri lyfjum úr flokki þunglyndislyfja, róandi lyfja og svefnlyfja. „Árið 2006 fengu 4.005 manns eina eða fleiri ávísanir á ofangreind lyf og árið 2016 hafði þeim fjölgað um tæp 66% og voru þá orðnir 6.645. Hluti þessa fólks fékk ávísað lyfi úr fleiri en einum lyfjaflokki. Eldri einstaklingar fengu fleiri ávísan­ ir en þeir yngri en mesta aukn­ ingin varð á ávísunum til 18 ára einstaklinga, úr 48 í 155, eða um tæp 223%,“ stendur í rannsókn­ inni. „Þegar ávísanir fyrir þessa þrjá lyfjaflokka eru skoðaðar kemur í ljós að mesta fjölgunin varð á þeim sem fengu ávísað þunglyndislyfjum, eða um tæp­ lega 87% frá 2006–2016. Þá fengu tæplega 75% fleiri einstak­ lingar ávísað róandi lyfjum árið 2016 borið saman við árið 2006,“ stendur þar enn fremur. Hlutfall karla og kvenna sem fengu ávísað þunglyndislyfjum og róandi lyfjum hélst stöðugt á rannsóknartímabilinu. Konur voru í meirihluta öll árin, tvær konur á móti einum karli. „Á tímabilinu varð breyting á kynjahlutfalli þeirra sem fengu ávísað svefnlyfjum í þá átt að það varð jafnara en þó voru kon­ ur alltaf fleiri,“ stendur í rann­ sókninni. Vafasamt met Mikið hefur verið fjallað um lyfja­ notkun Íslendinga síðustu ár og samkvæmt skýrslu NOMESCO, norrænu heilbrigðistölfræði­ nefndarinnar, fyrir árið 2017 eig­ um við ansi mörg vafasöm met þegar að því kemur í samanburði við hin Norðurlöndin. Í skýrsl­ unni kemur fram að Íslendingar notuðu nærri þrjátíu prósentum meira af tauga­ og geðlyfjum en Svíar árið 2016, og mest af öll­ um Norðurlandaþjóðunum. Enn fremur kom fram að róandi og kvíðastillandi lyf eru mest notuð á Íslandi af Norðurlöndunum, en sala hér á landi er tíu prósentum meiri hér í samanburði við næstu þjóð. Varðandi svefnlyf þá not­ um við einnig mest af þeim og er notkunin 22 prósentum hærri en hjá næstu Norðurlandaþjóð. Notkun þunglyndislyfja er hæst á Íslandi miðað við OECD­lönd og samanborið við Norðurlöndin er notkunin 25 prósentum hærri en hjá næstu þjóð. n Um rannsóknina Rannsóknin er lýsandi þversniðsrannsókn sem náði til ellefu ára tímabils frá 1. janúar 2006 til 31. desember 2016. Tölur um íbúafjölda einstaklinga 18 til 35 ára á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík, Kópa­ vogi, Seltjarnarnesi, Garðabæ, Hafnarfirði, Sveitarfélaginu Álftanesi og Mosfellsbæ, voru fengnar á heimasíðu Hagstofu Íslands. Tölfræði­ leg marktæknimörk voru sett við p­gildi <0,05. Vísindasiðanefnd samþykkti framkvæmd rannsóknarinnar og Persónuvernd gerði ekki athugasemdir við leyfisveitingu nefndarinnar. Einnig fékkst leyfi frá vísindanefnd Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Háskóla Íslands. „Helsti styrkleiki þessarar rannsóknar er stórt rannsóknarþýði en það voru tæplega 23.000 einstaklingar á aldrinum 18–35 ára sem fengu ávísað einu eða fleiri lyfjum úr ofangreindum flokkum á tímabil­ inu 2006–2016. Fjöldi íbúa höfuðborgarsvæðisins á sama aldri á þessu tímabili var rúmlega 55.000. Gögnin sem notuð voru til úrvinnslu voru fengin úr Sögukerfi HH og tengd lyfja­ávísunum lækna. Sambærilegar íslenskar rannsóknir hafa nýtt gögn úr lyfjagagnagrunni Embættis landlæknis, sem á þeim árum sem hér voru skoðuð hafði verið gagn­ rýndur fyrir óáreiðanleika,“ stendur í rannsókninni. „Í rannsókninni voru aðeins skoðaðir þeir sem sóttu þjónustu HH og því endurspeglar hún þá þróun sem hefur orðið í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu. Hins vegar nær rannsóknarþýðið til um 2/3 allra einstak­ linga á Íslandi á þessum aldri á rannsóknartímanum.“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Fljótvirkum lyfjum ávísað fyrir hrun n Ný rannsókn kannaði þróun ávísana á þunglyndislyf, róandi lyf og svefnlyf meðal ungs fólks fyrir og eftir bankahrun n Áberandi aukning í þunglyndislyfjum frá 2013 „Þetta verður að teljast nokk- uð rökrétt miðað við virkni lyfjanna og gætu þau því verið lausn á vandamáli sjúklings sem leysa þarf hratt og var ef til vill talið tímabundið Svefnvandamál Á tímabilinu 2006 til 2008 var að meðaltali tæplega 13,6 prósenta aukning á milli ára í útskrifuð- um dagskömmtum svefnlyfja. Mikil aukning Rannsóknin sýnir auknar ávísanir á svefnlyf og róandi lyf í aðdraganda efnahagshrunsins, þá sérstaklega meðal karlmanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.