Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Page 22
22 18. október 2019FRÉTTIR
Í
kjölfar umfjöllunar DV um elti-
hrellinn á Akranesi nú í sept-
ember stígur önnur kona fram
með sambærilega sögu. Hún
vill njóta nafnleyndar vegna ótta
við umræddan mann en hún vill
með frásögn sinni styðja við þær
staðhæfingar sem koma fram í
viðtalinu við Ölmu Dögg Torfa-
dóttur sem lýsti með hrollvekj-
andi hætti stöðugri áreitni af
hálfu mannsins sem hefur elt
hana uppi í átta ár. Báðar greina
konurnar frá mikilli hræðslu í
kjölfar óhugnanlegrar hegðunar
mannsins og miklu úrræðaleysi
þegar kemur að lögum í málum
sem þessum.
Titraði, skalf og stamaði
Saga umræddrar konu hófst fyrir
tveimur árum. „Þetta var í maí
2017 og við maðurinn minn vor-
um í örvæntingarfullri leit að
húsnæði. Ég var þarna ófrísk að
seinna barni okkar og við bjugg-
um á vægast sagt óbarnvænum
stað í samvist við sprautufíkla
sem við fundum reglulega um-
merki um í garðinum. Við vildum
því eðli málsins samkvæmt kom-
ast burtu þaðan sem allra fyrst.
Sonur okkar var kornungur og
dóttir okkar rétt ókomin í heim-
inn svo neyðin var mikil. Kona
nokkur setti sig í samband við
mig eftir að hafa séð ákall frá okk-
ur um húsnæði og sagðist vita um
fjögurra herbergja íbúð sem hún
vissi að væri laus til útleigu. Hún
bauðst til að sýna okkur íbúðina
sama kvöld, sem við þáðum með
þökkum. Hún tók á móti okkur
ásamt eiginmanni sínum og tjáði
okkur að sonur þeirra ætti íbúð-
ina. Við vildum strax taka íbúðina
og hjónin lofuðu að útbúa leigu-
samning, síðar myndum við svo
hitta son þeirra, skrifa undir og
fá lyklana afhenta,“ segir konan.
Þótt hún hefði heyrt af eltihrelli
á Akranesi bjóst hún ekki við að
lenda í honum.
„Það voru háværar sögusagnir
um eltihrelli á Akranesi á þess-
um tíma en okkur grunaði aldrei
að það yrði leigusalinn okkar.
Íbúðina fengum við leigða, en
sjálfur bjó maðurinn í geymsl-
unni og nýtti bílskúrinn undir
dótið sitt. Við samþykktum þetta
fyrirkomulega enda bráðvant-
aði okkur íbúð. En svo það komi
líka fram þá var faðir mannsins
með umboð fyrir undirskrift son-
ar síns og var hann því líka skráð-
ur fyrir leigusamningnum ef ske
kynni að eigandi íbúðarinnar yrði
ekki í stakk búinn til þess að taka
ákvörðun um eitthvað sjálfur.“
Áður en langt um leið hafði
leigusalinn samband við hana.
„Svo gerðist það að maðurinn
setti sig í fyrsta skipti í samband
við mig. Hann kvaðst vera með
aukalykil að íbúðinni sem hann
vildi láta mig fá. Ég var stödd í
vinnunni og bað hann að koma
með hann þangað sem hann og
gerði. Þetta var bara byrjunin á
öllu því sem átti eftir að gerast.
Hann fór að hringja í mig á vinnu-
tíma, mæta til mín í vinnuna
og fá sér að borða. Að endingu
var hann farinn að banka upp
á heima, í raun bara til þess að
athuga hvort við værum heima en
hann var alltaf með einhverja af-
sökun um að hann þyrfti að kíkja
á eitthvað, koma með eitthvað
eða ræða einhver mál við okkur.
Hann átti það sömuleiðis til að
banka upp á hjá okkur að kvöldi
til og vilja „kíkja á okkur“, við buð-
um honum þá yfirleitt bara inn
þar sem hann grandskoðaði alla
íbúðina eins og hann væri að leita
að öryggiskerfi eða öðru slíku. Í
hvert skipti sem hann talaði við
mig þá titraði hann allur, skalf og
stamaði. Hann var farinn að segja
fólki að við værum rosalega góðir
trúnaðarvinir og spjölluðum oft
lengi saman í síma.“
Augljóslega búið að liggja í
rúminu
Þegar þarna var komið sögu hafði
parið gert sér grein fyrir því hver
þessi maður var og hvað hann
hefði gert. Það var þó ekki hlaup-
ið að því fyrir ungt fólk með tvö
lítil börn að finna sér aðra íbúð
þar sem framboð á Akranesi á
leiguíbúðum er mjög takmarkað.
Seint á síðasta ári tók atburða-
rásin þó óvænta stefnu.
„Ég tók eftir því að nærfötin
mín hurfu hægt og rólega úr nær-
fataskúffunni. Mér fannst þetta
mjög furðulegt enda höfðum við
farið í verslunarferð um sumarið
þar sem ég keypti óhemju mikið
af nærfötum. Ég nefndi þetta við
manninn minn en hugsaði svo
ekkert meira út í þetta. Við fór-
um svo að taka eftir því að matur
úr ísskápnum okkar var farinn að
ALRÆMDUR
ELTIHRELLIR
Á AKRANESI
n Fleiri konur stíga fram n Braust inn og stal nærfötum
n Léttvæg viðbrögð lögreglu n Hafa báðar flúið land
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is