Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Síða 28
Öðruvísi jólagjafir 18. október 2019KYNNINGARBLAÐ POLE SPORT: Eitthvað fyrir alla í Pole Sport Heilsurækt Pole Sport er ný og spennandi líkamsrækt hér á Íslandi og er fullkomin fyrir alla þá sem vilja stunda öðruvísi líkamsrækt sem samtvinnar þokka, styrk og þol. Það geta allir komið í Pole Sport Heilsurækt því við bjóðum upp á námskeið fyrir byrjendur og lengra komna í afar fjölbreyttri líkamsrækt. Þá erum við með Pole Sport fyrir byrjendur, miðlungsreynda, lengra komna og svo framhaldshópa. Einnig er námskeið í Flex liðleikaþjálfun fyrir þá sem vilja liðka sig og til dæmis komast í splitt, spíkat og bæta bakfettuna. Svo eru námskeið fyrir byrjendur og lengra komna í Pole Fabric, Pole Dance, Lyra Loftfimleikum, Silki námskeið og fjölmargt fleira. Það er eitthvað fyrir alla í Pole Sport Heilsurækt. Pole Sport Heilsurækt var opnuð árið 2011 af Halldóru Kröyer og hefur studíóinu heldur betur vaxið fiskur um hrygg. Þjálfarar Pole Sport hafa margs konar kennsluréttindi, m.a. í Pole Fitness Instructor, einkaþjálfararéttindi, Yoga- réttindi, Fit Pilates, Zumba, VauLT Aerial Lyra™, TRT Kennararéttindi, Þrekþjálfararéttindi, Spin City Pole & Lyra svo eitthvað sé nefnt. Þjálfarar og nemendur heilsuræktarinnar hafa meðal annars staðið sig með eindæmum prýðilega á alþjóðlegum íþróttamótum. Nefna má 2. sæti í Pole Sport í Evrópu sem hún Sól Stefánsdóttir þjálfari landaði. Stórskemmtileg heilsurækt í jólapakkann Það er alltaf gaman að ögra sér og prófa eitthvað nýtt. Og hver veit, kannski er Pole Sport eitthvað fyrir þig, en þú veist það ekki fyrr en þú prófar. Hægt er að kaupa stakt skipti á eitthvert af þeim fjölmörgu námskeiðum sem Pole Sport Heilsurækt býður upp á. Einnig er hægt að gefa „Unlimited beginner“- kort sem gildir í sjö daga. Þá hefur handhafi tækifæri til að prófa alla tímana sem eru í boði hjá Pole Sport Heilsurækt til þess að finna hið fullkomna námskeið fyrir sig. Stakt skipti í Pole Sport Heilsurækt kostar 2.900 kr. og sjö daga ótakmarkað kort kostar 4.990 kr. Allir sem kaupa gjafabréf fá 1000 kr. gjafabréf í kaupbæti frá www.diva.is sem er skóverslun sem sérhæfir sig í brúðarskóm, fitnessskóm, dansskóm og fleira. Hópefli / Óvissuferðir / Afmæli Ertu að leita að skemmtilegu hópefli? Óvissuferð? Afmæli? Gæsun? Steggjun? Komdu með hópinn til okkar! Þið fáið sal og þjálfara frá okkur sem leiðir ykkur í skemmtilegan tíma. Hægt er að velja á milli þess að vera með krefjandi eða léttari tíma, taka listdans-, súludans- eða sporttíma. Við sníðum tímann að ykkar þörfum. Pole Sport Heilsurækt er staðsett að Stangarhyl 7. Nánari upplýsingar má nálgast á www.polesport.is Bókanir og verðtilboð eru í síma 778-4545 og á tölvupóstinum okkar polesport@polesport.is Fylgstu með á Facebook: Pole Sport Heilsurækt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.