Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Qupperneq 38
Öðruvísi jólagjafir 18. október 2019KYNNINGARBLAÐ
JÓLAHLAÐBORÐ STRACTA HÓTELS:
Veisla í sunnlenskri
náttúrufegurð
Í hjarta Suðurlands á Hellu er Stracta Hótel í námunda við einar fegurstu náttúruperlur sem Ísland
hefur upp á að bjóða. Út frá hótelinu
er tilvalið að skella sér í dagsferðir.
Allt hótelið er á einni hæð, að
undanskilinni þjónustubyggingu sem
er á tveimur hæðum. Þar er að finna
stórkostlegt útsýni yfir Suðurland.
Heitir pottar og norðurljós
Í garði í miðju hótelsins eru heitir
pottar og gufubað sem stendur
öllum gestum til boða. Lýsingu við
hótelið er þannig háttað að hún
lýsir öll niður svo að hún truflar ekki
norðurljósaskoðun gesta sem geta
notið þeirra í garði hótelsins og í
heitu pottunum.
Jólatilboð
Nú býður Stracta Hótel upp sérstakt
jólatilboð. Tilboðið inniheldur gistingu
í tveggja manna herbergi með
morgunverði ásamt jólahlaðborði og
kostar þetta einungis 16.720 kr. á mann.
Jólahlaðborðin eru þessa daga:
23. nóvember og 30. nóvember, 7.
desember og 14. desember – sem
eru allt laugardagar. Þá verður
lifandi tónlist undir borðhaldi.
Girnilegur matseðill
Í aðalrétt er meðal annars
kryddhjúpað og grillað lambalæri,
ofnbakaður lax í sítrónu og jurtabeði,
grænmetisréttur í reyktu tómatmauki
og jurtum, purusteik elduð að
dönskum hætti og margt fleira. Mikið
úrval er af köldum réttum.
Af meðlæti má nefna Waldorf
Salat/Epla Salat með vínberjum og
ananas, rauðkál,
sykurbrúnaðar
kartöflur og kartöflur
í uppstúf, sveppa-
og rauðvínssósu.
Eftirréttirnir
eru svo rúsínan
í pylsuendanum
og verður í boði
meðal annars Ris
à la mande með
kirsuberjasósu,
ferskir ávextir
og dýrindis
súkkulaðitrufflur.
Sjá nánar matseðil
hér á vefsíðunni
stractahotels.is
Stracta Hótel,
Rangárflatir 4,
850 Hella.
Upplýsingar og bókanir
eru í gegnum netfangið
info@stracta.is eða í
síma 531-8010.
Facebook: Stracta
Hotels