Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Qupperneq 39

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Qupperneq 39
FÓKUS 3918. október 2019 S öngkonan Bríet hefur á skömmum tíma getið sér gott orð innan tónlistar­ geirans bæði hér heima sem og erlendis. Hún segir söng­ ferilinn hafi byrjað með þeirri ákvörðun að segja já frekar en nei. „Ég hef aldrei verið feimin við að prófa nýja hluti, en ég hef líka alltaf verið mjög ákveðin í því sem ég ætla mér. Ég hef enga sérstaka tónlistarmenntun og lærði aldrei söng hjá neinum sérstökum söngkennara, en ég hef lært mik­ ið á því að spila djass á veitinga­ stöðum. Þar er enginn í raun að pæla í manni og þannig fær mað­ ur frelsi til að leika sér og dvelja í sínum eigin heimi. Í seinni tíð hef ég svo lært mikið af minni eigin sviðsframkomu og þá sérstaklega þeim mistökum sem ég hef gert á leiðinni.“ Alltaf að leita að nýjum drullupolli Þrátt fyrir að lýsa sér sem afar söngelsku barni segist Bríet aldrei hafa kæft fjölskyldu sína með tónleikahaldi í stofunni eins og tíðkast gjarnan hjá tónelskum börnum. „Ég var aldrei týpan sem stóð uppi á matarborði og bað fjölskylduna um að þegja með­ an ég stæði fyrir söngatriðum. Ég var miklu meira í því að hlusta á pabba minn spila á gítar og æfa mig með honum. Svo læddist ég inn á baðherbergi til þess að taka sjálfa mig upp syngja Wonder­ wall. Ég átti alveg frábæra æsku, enda var ég mjög lífsglöð stelpa, alltaf að leita að nýjum drullu­ polli til að hoppa í. Ég ólst upp í Grafarvogi og hélt meðal annars um tíma að ég væri álfadrottning. Við erum fimm systkinin og ég er í dag mikil fjölskyldukona. Ég held að það að mamma mín hafi leitt mig í það að stunda „svett“ sem barn hafi mótað mig mjög og sé í raun skýringin á því hver ég er í dag. Ég hef aldrei viljað falla inn í hópinn, en frá fjórtán ára aldri hef ég verið dugleg að fara á milli flóamarkaða og finna mér notuð föt. Nú þegar ég er orðin tvítug heyri ég mömmu enn spyrja í forundran hvort ég ætli virkilega að klæðast þessum fötum eða benda mér góðfúslega á að sumt af því sem ég fer í sé kannski að­ eins of lúðalegt. Mér finnst ótrú­ lega gaman að nýta stöðu mína sem sviðslistakona með áber­ andi fötum og fá að vinna með og vekja athygli á upprennandi fata­ hönnuðum.“ Að gera áhorfendur að aðdáendum Bríet var valin Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum sem og Söngkona ársins. Hún segir tilfinninguna að stíga á svið í fyrsta sinn hafa verið spennu­ þrungna en hún fái sjaldnast sviðsskrekk. „Ég man sérstaklega eftir tilfinningunni hvað ljósin voru sterk þegar ég steig í fyrsta skipti á svið. Ég hugsaði bara af hverju eru ljóskastararnir svona sterkir, ég sé ekki neitt. Ofar öllu var ég þó bara yfirdrifið spennt að fá að spila fyrir fullum sal af fólki. Ég myndi ekki segja að ég finni fyrir kvíða áður en ég stíg á svið en auðvitað set ég pressu á mig um að gera eins vel og ég get í hvert skipti og stundum finn ég kannski aðeins of mikið fyrir þessari pressu. Ég finn samt mikinn mun á að spila hér heima og erlendis, því úti kann fólk síður lögin og er jafnvel að heyra þau í fyrsta skipt­ ið. Þá skiptir öllu að fanga athygli áhorfendanna og gera þá von­ andi að nýjum aðdáendum. Mín reynsla hefur í flestum tilfellum verið góð og alltaf mikið fjör, fólk duglegt að dilla sér og hlusta á til­ finningaþrungnu sögurnar á bak við ástarlögin mín. Þó hafa öll gigg sína kosti og galla, mitt versta gigg var sennilega í Svíþjóð þegar ég kom fram á lestarstöð. Þetta var á nítján ára afmælisdaginn minn og ég var fárveik. Ég er ansi hrædd um að ég hafi ekki safnað mörgum aðdáendum í það skipti, svona ef ég dæmi út frá undirtektum hóps­ ins. Það var hins vegar ótrúlegt egóbúst að vinna þessa titla og um leið ákveðin staðfesting á að harkan og vinnan hafi borgað sig. Það sem ég kunni mest að meta við verðlaunin var sú staðreynd að þau voru ekki ákvörðuð af ein­ hverri fámennri dómnefnd held­ ur var það lýðurinn sem átti valið. Það var góð tilfinning.“ Erfitt samstarf við Frikka Dór? Textana semur Bríet bæði á ís­ lensku og ensku enda vill hún höfða til sem flestra. „Ég reyni að hafa jafnt hlutfall laga en hug­ myndir að textunum geta kom­ ið við ótrúlegustu aðstæður. Oft spretta þær frá skrítinni tilfinn­ ingu, atviki eða einfaldlega ein­ hverju sem ég vil koma frá mér. Öll lög sem ég í samvinnu við besta vin minn, Pálma Ragnar. Ferlið er síðan aldrei eins og það er alltaf ráðgáta hvernig blómið muni blómstra. Stundum taka lög meira á en önnur meðan önnur koma eins og þeim hafi verið snýtt úr nös. Þegar ég var að semja Feim­ in(n) kom aldrei neitt annað til greina en að fá Aron Can til liðs við mig. Ferlið gekk eins og í sögu enda er Aron náttúru­ lega bara æði og algjör Já­mann­ eskja. Þegar orkan er þannig í stúdíóinu rúllar boltinn nán­ ast sjálfkrafa. Það var hins vegar mjög erfitt að vinna með Frikka Dór,“ segir Bríet og skellir upp úr. „Nei, að öllu gríni slepptu var alltaf stutt í brosið þegar við tók­ um upp lagið Hata að hafa þig ekki hér. Reyndar vissi ég ekki að við værum að taka upp lagið, ég hélt við værum að fara á æfingu fyrir tónleikana hans. Í bílnum á leiðinni spurði Frikki mig svo í hálfkæringi hvort ég væri ekki til­ búin fyrir upptökuna og hvernig lagið væri að leggjast í mig. Það gekk auðvitað glimrandi vel og við vel sátt við útkomuna. Það er aldrei eins að vinna með tón­ listarfólki því allir hafa sínar að­ ferðir. Stundum er maður ekki á sömu bylgjulengd og þá nær það ekki lengra en mér finnst vera mikil gróska í tónlistarsenunni og mikil fjölbreytni í gangi sem gaman er að fylgjast með og fá að vera partur af. Það hefur átt sér stað mikil lýðræðisvæðing hjá ís­ lensku tónlistarsenunni sem hef­ ur opnað leikvöllinn fyrir hvern sem er að senda frá sér efni og spreyta sig. Ég væri samt til í að sjá fleiri stelpur stíga fram. Mað­ ur er alltaf að læra af tónlistar­ fólkinu í kring og tileinka sér það sem heillar mann. Það sem ég læri mest af er reynsla og mistök annarra.“ n Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Bríet hélt að hún væri álfkona „Ég læri mest af mistökum annarra“ n Textarnir spretta frá skrítnum tilfinningum n Vill að fleiri stelpur stígi fram„Maður er alltaf að læra af tónlistar- fólkinu í kring og tileinka sér það sem heillar mann Íris Hauksdóttir iris@dv.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.