Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Qupperneq 54
54 FÓKUS 18. október 2019
S
tórmyndin Jókerinn hefur
hlotið misjafna dóma en
margir eru sammála um að
Joaquin Phoenix eigi stór
leik sem hinn seinheppni Arthur
Fleck. Joaquin léttist um tæp 25
kíló fyrir hlutverk sitt í myndinni
og hefur hlotið mikið lof fyrir,
jafnvel komið af stað flökkusög
um um Óskarstilnefningu.
„Nánast ómennskur, hann
er svo grannur, húðin svo þröng
yfir bakinu að sést í hryggjarsúl
una og rifbeinin. Phoenix túlkar
karakter sem er meira framandi
og tilviljunarkenndari en áður
hefur sést,“ stendur til að mynda
í gagnrýni A.V. Club um myndina.
Joaquin Phoenix er mærður
fyrir þyngdartapið og telja gagn
rýnendur útlitsbreytingar hans
spila stóra rullu í stórleik hans. Að
sama skapi er leikarinn heillaður
af þeim áhrifum sem þyngdar
tapið hafði á líf hans meðan á tök
um stóð.
„Það breytist allt þegar mað
ur kemst í þá þyngd sem maður
stefndi að,“ sagði Joaquin í viðtali
við The Associated Press. „Það
verður erfitt að vakna og maður
fær nokkur grömm til og frá á
heilann. Maður þróar með sér
röskun. En ég held að það áhuga
verða fyrir mig hafi verið tilfinn
ing óánægju, hungurs, varnar
leysis og veiklu sem ég hafði
búist við með þyngdartapinu.
En ég bjóst ekki við þeirri tilfinn
ingu sem ég fann líkamlega sem
er best lýst sem flæði. Mér fannst
ég geta hreyft líkama minn á vegu
sem ég gat ekki áður.“
Grínast með átröskun
Þá dásamaði hann þyngdartap
ið á léttu nótunum hjá spjall
þáttastjórnandanum Jimmy
Kimmel og bætti við að hann
hefði forðast að horfa á sjónvarp
ið til að komast hjá því að sjá aug
lýsingar fyrir mat. Allt á léttu nót
unum, líkt og um grín væri að
ræða. Jimmy Kimmel hlóð einnig
í ýmsar skrýtlur um þyngdartap
ið og þessa átröskun sem Joaquin
var greinilega haldinn er hann
bjó sig undir hlutverk Jókersins.
Það virðist vera ákveðin lína dreg
in í sandinn um upplifun leikara
annars vegar og leikkvenna hins
vegar þegar kemur að dramatísku
þyngdartapi fyrir kvikmyndahlut
verk. Í grein á E! Online er því
velt upp hvort þessi röskun sem
Joaquin talar um hefði ekki verið
rædd á talsvert alvarlegri nót
um ef um leikkonu hefði verið
að ræða, sérstaklega í ljósi þess
að samkvæmt rannsókn frá árinu
2011 voru átta milljónir manna í
Bandaríkjunum með átröskun –
sjö milljónir af þeim konur.
„Staðfesta“ og „metnaður“
Joaquin er langt frá því að vera
fyrsti leikarinn sem talar um
þyngdartap fyrir hlutverk á svo
léttvægan máta. Það er ákveðin
tilhneiging í Hollywood að hylla
þá leikara sem ná að létta sig svo
óhugnanlega mikið fyrir hlutverk
og oftar en ekki fá þeir tilnefningu
til fjölda verðlauna vegna „stað
festu“ og „metnaðs“ til að breyta
útliti sínu á svo dramatískan hátt.
Bæði Matthew McConaughey
og Jared Leto hlutu Óskarinn árið
2013 fyrir hlutverk sín í Dallas
Buyers Club, þar léku bæði Matt
hew og Jared eyðnismitaða menn,
sem áttu stoðir í raunveruleikan
um. Því grenntust þeir mikið í
tökuferlinu. Jared, sem alla jafna
er grannur, léttist um fimmtán
kíló og var rétt rúm fimmtíu kíló
þegar hann var léttastur.
„Ég bara borðaði ekki neitt,“
sagði hann í viðtali við E! News
og bætti við að þyngdartapið
hefði verið nauðsynlegt. „Ég hafði
gert svipaða hluti með þyngdina
en þetta var öðruvísi. Það þurfti
staðfestu í þetta hlutverk. Þetta
snerist um hvaða áhrif þyngdin
hefði á hvernig ég gekk, hvernig
ég talaði, hver ég var, hvernig mér
leið. Mér leið eins og ég væri brot
hættur, viðkvæmur og óöruggur.“
Matthew gekk skrefinu lengra
og léttist um tæp 23 kíló. Hann
sagði sjálfur að mataræðið sem
hann fór eftir til að verða ríflega
65 kíló hafi verið afar strangt.
„Ég léttist um þrjú kíló á viku,“
sagði hann við Daily Mail. „Ég
fékk mér Diet Coke, tvær eggja
hvítur á morgnana, smá kjúkling
og síðan aðra Diet Coke. Það var
erfitt,“ bætti hann við. Þá æfði
hann líka mikið meðan á tökum
stóð til að brenna fleiri hitaein
ingum.
Þrýstingur frá leikstjóra
Það er vinsælt stef hjá leikurum
að halda því fram að þyngdar
tapið sé nauðsynlegt fyrir söguna
og leikstjórar hvetja oft til þess
að leikarar leggi mikið á sig til
að umbreyta sér. Leikstjórinn
Martin Scorsese vildi til dæmis
að aðalleikararnir Andrew Gar
field og Adam Driver í myndinni
Silence frá árinu 2016 litu út eins
og þeir hefðu gengið þrauta
göngu. Það endaði þannig að
Adam léttist um rúmlega tuttugu
kíló og Andrew um rúmlega
átján. Martin Scorsese lét hafa
eftir sér að hungrið hefði gert
frammistöðu þeirra í myndinni
stórkostlega. Því var síðan ljóstr
að upp í viðtali við E! News að sér
stakur þjálfari hefði verið á töku
stað til að kenna leikurunum að
stjórna hungrinu.
„Það er ekki gaman,“ sagði
Andrew. „En þegar til lengdar
lætur er það mjög, mjög ánægju
legt og fullnægjandi. Maður lærir
mikið á því að tæma sig.“
Eitt epli og túnfiskdós
Leikarinn Jake Gyllenhaal léttist
um tæp fjórtán kíló fyrir myndina
Nightcrawler og uppskar lof fyrir.
Hann leitaði sér ekki sérfræði
hjálpar heldur hætti bara að
borða. Hann tuggði tyggjó í gríð
og erg til að blekkja líkamann.
„Ég reyndi að borða eins fáar
hitaeiningar og hægt var. Ég vissi
að ég var á réttri leið ef ég var
svangur,“ sagði hann í viðtali við
Variety. „Árangurinn var sýni
legur líkamlega en þessi vegferð
var enn meira heillandi andlega.
Þetta varð að innri baráttu.“
Ókrýndur konungur þyngdar
tapsins í Hollywood er hins vegar
Christian Bale. Óhugnanlegasta
Leikarar hylltir - Leikkonur í rúst
n Karlkyns leikarar fá mikið lof í Hollywood ef þeir umbreyta líkamanum með ýktum aðferðum n Sama gildir ekki um leikkonur
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Bilaður Joaquin
Phoenix ku standa
sig ágætlega í hlut-
verki Jókersins.
Óþekkjanlegur
Matthew McConaughey
í Dallas Buyers Club.
Grannir Úr
kvikmyndinni
The Silence.
Óhugnanlegt Christian
Bale í The Machinist.