Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Qupperneq 55
FÓKUS 5518. október 2019
breyting á honum var án efa fyrir
kvikmyndina The Machinist árið
2004, en fyrir hana léttist hann
um tæplega þrjátíu kíló. Hann var
aðeins 55 kíló þegar hann var sem
grennstur.
„Það er stórkostleg reynsla að
upplifa þetta,“ sagði hann í við-
tali við The Guardian. „Maður
öðlast skýra hugsun þegar mað-
ur er svo horaður að maður getur
varla gengið upp nokkrar tröppur.
Það er eins og maður yfirgefi lík-
amann.“
Mataræði hans á degi hverjum
samanstóð af vítamínum, einu
epli og túnfiskdós.
„Ég varð forvitinn að sjá, í
mínu öfugsnúna eðli, hvort ég
gæti farið lengra en það sem var
öruggt og í lagi og sjá hvort ég
gæti farið út fyrir mörkin,“ sagði
Christian Bale enn fremur.
„Ég sá bara bein“
Eins og sést var þyngdartapið í
augum þessara leikara „áhuga-
verð“ og „spennandi“ tilraun. Það
er hins vegar ekki raunin þegar
leikkonur ganga í gegnum svip-
að ferli.
Black Swan-leikkonurnar
Natalie Portman og Mila Kun-
is æfðu stíft og fóru eftir ströngu
mataræði þegar þær undirbjuggu
sig fyrir að túlka ballettdansara.
Þær hafa báðar sagt að þetta ferli
hafi tekið sinn toll, sér í lagi and-
lega.
„Ég sá af hverju þessi iðnaður
er svona brenglaður því ég horfði
á mig í spegli og hugsaði: Guð
minn góður. Ég er ekki með nein-
ar línur, engin brjóst, engan rass,“
sagði Mila við Daily Mail. „Ég sá
bara bein. Og ég hugsaði: Þetta er
ógeðslegt.“
Hún sagði síðar í viðtali við
Howard Stern að hún hefði létt-
ust verið 43 kíló. Hún náði því
með því að borða tólf hundruð
hitaeiningar á dag og reykja síga-
rettur. „Ég mæli ekki með því.
Þetta var hræðilegt.“
Natalie Portman hlaut Óskar-
inn fyrir hlutverk sitt í myndinni.
Hún léttist um tæplega tíu kíló
og sagði við EW að sumar nætur
hafi hún haldið að hún væri að
fara að deyja. Í viðtali við Daily
Mail sagðist hún hafa borðað lítið
sem ekkert og æft sextán klukku-
stundir á dag.
„Þetta var í fyrsta sinn sem ég
skildi hvernig maður gat týnst í
hlutverki og það eyðilagt þig.“
Logandi hrædd
Sumar leikkonur upplifa að slík
umbreyting fyrir hlutverk geti
ýtt undir átröskun eða komið á
óheilbrigðu sambandi við mat.
Lily Collins glímdi við átröskun
á yngri árum og tók að sér hlut-
verk stúlku með lystarstol árið
2017 í kvikmyndinni To the Bone.
Hún sagði í viðtali við Shape að
hún hefði verið dauðhrædd við
áhrifin sem myndin hefði á henn-
ar eigin bata.
„Ég var logandi hrædd um að
hlutverk mitt í myndinni myndi
þýða afturför fyrir mig persónu-
lega en ég varð að minna mig á að
ég var ráðin til að segja sögu, ekki
að vera í ákveðinni þyngd. Að lok-
um var það gjöf að geta stigið til
hliðar í sporin sem ég var í, en nú
sem þroskaðri einstaklingur.“
Ógnvekjandi
Zoë Kravitz, sem er hvað þekktust
í dag fyrir leik sinn í Big Little Lies,
hefur einnig opnað sig um átrösk-
un og það sem heillaði hana við
að taka að sér hlutverk konu með
lystarstol í kvikmyndinni The
Road Within árið 2014.
„Ég glímdi við átröskun í mið-
skóla og fram á þrítugsaldurinn.
Sá partur laðaðist að hlutverkinu.
Ég held að það sé mikilvægt að
tala um líkamsímynd og barátt-
una við mat, sem margar konur
heyja – sérstaklega í skemmtana-
iðnaði. Ég tengdi við persónuna
á margan hátt,“ sagði hún í við-
tali við Nylon. Í viðtali við Com-
plex sagði Zoë að hún hefði glímt
við bæði lystarstol og lotugræðgi
á yngri árum og kallaði þetta
„hræðilega sjúkdóma“. Hún segir
að farið hafi um foreldra henn-
ar þegar hún grenntist fyrir hlut-
verkið í The Road Within en hún
varð léttust aðeins fjörutíu kíló.
„Maður sá beinin í brjóstkass-
anum mínum. Ég var að reyna að
grennast meira fyrir kvikmyndina
en sá ekki að ég var búin að því og
þurfti að hætta. Þetta var ógnvekj-
andi.“ n
Leikarar hylltir - Leikkonur í rúst
n Karlkyns leikarar fá mikið lof í Hollywood ef þeir umbreyta líkamanum með ýktum aðferðum n Sama gildir ekki um leikkonur
Ekki afrek
Þessi umbreyting fyrir kvikmyndir virðist því hafa talsvert meiri
og alvarlegri áhrif á konur en karla. Konur nota fremur orð eins og
„ógnvekjandi“ og „hræðilegt“ þegar ferlinu er lýst. Einnig er um-
breytingu þeirra ekki jafn stíft fagnað og karlleikaranna og því virð-
ist það ekkert sérstakt afrek fyrir konur að breyta líkama sínum á svo
dramatískan hátt. Burt séð frá því þá má ekki gleyma að átröskun
er alvarlegur sjúkdómur sem hægt er að halda í skefjum og lækna.
Ef grunur er um átröskun getur verið gagnlegt að byrja á að leita á
heilsugæsluna. Þar getur heimilislæknir metið vandann og sent til-
vísun í átröskunarteymið með samþykki sjúklings. Einnig er tekið
við tilvísunum frá fagfólki innan og utan LSH, skólum og öðrum fag-
aðilum. Fólk getur einnig haft sjálft samband við átröskunarteymið
með því að senda tölvupóst á atroskun@landspitali.is. Í kjölfarið
hefur starfsmaður átröskunarteymis samband símleiðis og metur
þörf fyrir beiðni um meðferð.
„Ég sá af
hverju þessi
iðnaður er svona
brenglaður því ég
horfði á mig í spegli
og hugsaði: Guð
minn góður. Ég er
ekki með neinar
línur, engin brjóst,
engan rass.
Rúm fimmtíu kíló Jared
Leto var bara skinn og bein.
Treysti á tyggjó Jake
Gyllenhaal í Nightcrawler.
Andlega erfitt Mila
Kunis í hlutverki ballett-
dansara í Black Swan.
Eyðilögð Það tók á
Natalie Portman að
leika í Black Swan.
Á vigtinni Lily
Collins í kvikmyndinni
To the Bone.
Gamlir djöflar Zoë Kravitz
glímdi við átröskun frá unga aldri.