Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2019, Blaðsíða 58
58 18. október 2019STJÖRNUSPÁ
E
in heitasta piparjónka
landsins, áhrifavaldurinn
Sunneva Eir Einarsdóttir,
er gengin út ef marka má
nýjustu fregnir. Sá heppni heitir
Benedikt Bjarnason og er sonur
fjármálaráðherra. Ástarblossinn
er tiltölulega nýkviknaður og því
lék DV forvitni á að vita hvern-
ig þau Sunneva og Benedikt eiga
saman ef lesið er í stjörnumerkin.
Sunneva er ljón en Benedikt
er vatnsberi. Þau eru bæði mjög
kappsmikil og því einkennir mik-
il orka og metnaður þetta sam-
band. Þau eiga það til að fara í að-
eins of mikla samkeppni við hvort
annað sem gæti orðið til þess að
sambandið bíður hnekki en hins
vegar er aldrei leiðinlegt í kring-
um par ljóns og vatnsbera.
Þau eru bæði nýjungagjörn
og adrenalínafíklar sem skora
á hvort annað í alls kyns ævin-
týri. Það gefur sambandinu mik-
ið skemmtanagildi, þótt stundum
gleymist að horfa aðeins á dýpt-
ina. Bæði ljón og vatnsberi hafa
mikla þörf fyrir að láta dá sig og
dýrka og getur það stundum farið
út í öfgar. Ljónið getur hins vegar
virkað vel fyrir vatnsberann því
þótt hann fái fullt af hugmyndum
er hann ragur við að framkvæma
þær. Ljónið hefur hins vegar mik-
ið framkvæmdavit og þor.
Bæði merkin þrá að
vera sjálfstæð og
það er mikilvægt
að þau virði það
sem skilur þau
að. Ljónið get-
ur verið of
dramatískt
fyrir vatnsberann en vatnsberinn
getur líka virkað of óstöðugur
fyrir ljónið. Ef þau tala saman
um hvað þau virkilega vilja, gera
skýra verkaskiptingu á heimil-
inu og virða hvort annað þá getur
þetta samband orðið einstaklega
ástríðufullt, öruggt og gott. n
Lesið í tarot Jóns Gnarr
stjörnurnar
Spáð í Afmælisbörn vikunnarn 20. október Sigríður Vala Vignisdóttir lífskúnstner, 48 ára
n 21. október Ingibjörg Haraldsdóttir þýðandi, 77 ára
n 22. október Jón Óskar listamaður, 65 ára
n 23. október Þóra Karítas Árnadóttir leikkona, 40 ára
n 24. október Magnús Jónsson leikari, 54 ára
n 25. október Björn Þorfinnsson blaðamaður, 40 ára
n 26. október Gísli H. Guðjónsson réttarsálfræðingur, 72 ára
Stjörnuspá vikunnar
Naut - 20. apríl–20. maí
Fiskur - 19. febrúar–20. mars
Vatnsberi -
20. janúar–18. febrúar
Steingeit -
22. desember–19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember–21. desember
Sporðdreki -
23. október–21. nóvember
Vog - 23. sept.–22. október
Meyja - 23. ágúst–22 .sept.
Ljón - 23. júlí–22. ágúst
Krabbi - 22. júní–22. júlí
Tvíburi - 21. maí–21. júní
Gildir 20. – 26. október
Hrútar eru bara með tvo gíra – fimmta
og sjötta. Þeir fara annaðhvort hratt eða
ofurhratt í gegnum lífið og allt sem því
fylgir. Í þessari viku þarftu hins vegar að
setja þig í lægri gíra til að leysa ákveðið
verkefni sem krefst þolinmæði. Það er
ekki þín sterkasta hlið en stundum er
gott að koma sjálfum sér skemmtilega
á óvart.
Þú er ansi hreinskilin/n og það getur
oft verið mikill kostur. Nú lendur þú í
félagsskap fólks sem þú þekkir ekki nógu
vel til að koma hundrað prósent hreint
fram. Einhverjir í þessum félagsskap eru
hörundsárari en gerist og gengur og því
þarft þú að gæta orða þinna. Vissulega
finnst þér það erfitt en stundum þarf að
kyngja stoltinu til að komast lengra.
Þú ert búin/n að vera í góðu jafnvægi
undanfarið en allt í einu er líkt og stormur
skelli á sálina og þú sveiflast á milli gleði
og depurðar. Þú skalt hafa hugfast að oft
geta veggir verið með eyru. Ef þú deilir
heimili með öðrum, tala nú ekki um lítil
börn sem heyra allt, skaltu gæta orða
þinna og hvernig þú talar um náungann.
Þú ert svo dásamlegur að eðlisfari, elsku
krabbi, og ert boðinn og búinn að veita
hjálparhönd. Það eru sérstaklega margir
í þessari viku sem þurfa öxl að gráta á
og auðvitað ert þú fyrsta manneskjan
á staðinn. Þú þarft samt að passa þig.
Góðmennska þín og samkennd er ekki
botnlaus. Stundum þarft þú líka að vera
góð/ur við þig sjálfa/n.
Þú hefur verið að vinna að verkefni með
ákveðnum aðila, hvort sem það er í vinnu
eða einkalífi, og kemst á snoðir um að
þessi aðili sé ekki allur þar sem hann
er séður. Það er sárt, enda skiptir þessi
manneskja þig miklu máli. Þú skalt halda
spilunum aðeins að þér og sjá hvernig
rúbertan spilast áður en þú grípur til
aðgerða.
Það kemur ekki á óvart að meyjur eru
fullkomnunarsinnar en þú ert einstaklega
óhaggandi í þessari viku. Þú vilt bara
að hlutirnir séu gerðir rétt (lesist: á þinn
hátt). Þú skalt varast að skjóta ekki hug-
myndir niður og hafðu frekar samskipti
við vinnufélaga og fjölskyldu með opnum
huga. Stundum hefur þú nefnilega ekki
rétt fyrir þér.
Þig langar að breyta til á heimilinu
en þú skalt varast að fara í stórtækar
breytingar sem kollvarpa öllu og gera
heimilið að vígvelli. Þú skalt fremur ein-
beita þér að einu herbergi eða afmörkuðu
svæði til að dytta að í rólegheitum. Þú
þarft nefnilega að gera þér grein fyrir
þínum takmörkunum, bæði hvað varðar
tíma og fjármagn.
Það nægir ekki að plástra vandamálin
svo þau hverfi. Þetta veist þú mætavel.
Hins vegar freistast þú oft til að loka
vandamálin inni í staðinn fyrir að tala um
þau. Í vikunni skaltu temja þér að tala um
það sem þér liggur á hjarta. Það er aldrei
gott að byrgja hluti inni því þá stækka
þeir á methraða, svo mikið að plássið
dvínar afar skjótt.
Þú skalt velja þinn félagsskap afar
vandlega, kæri bogmaður. Þú skalt einnig
varast baktal og ekki tala um persónuleg
mál í opnu rými. Haltu þínu fyrir þig og
þína nánustu og varastu að verða of
náin/n manneskju sem þú þekkir lítið. Ef
þig vantar stuðning þá skaltu ávallt leita
til þeirra sem hafa þekkt þig lengi og þú
treystir fyrir lífi þínu.
Þú ert full/ur metnaðar og hefur auga-
stað á vissri stöðu sem gæti komið sér vel
fyrir þig í framtíðinni. En þú þarft að berj-
ast um þessa stöðu og ef það er eitthvað
sem þú kannt þá er það að berjast og það
á heiðarlegan hátt. Heiðarleikinn á eftir
að koma þér á þann stað sem þú vilt vera
á og er sá eiginleiki sem þú mátt aldrei,
aldrei gleyma.
Ef það að þóknast öðru fólki takmarkar
þinn þroska þá skalt þú hætta að reyna
að þóknast því sí og æ. Þetta er ekkert
flókið. Vatnsberinn vill hafa alla góða en
stundum þarf maður að slíta sig úr því
mynstri til að ná einhverjum framförum.
Þú skalt líka fara vel yfir náin sambönd
þín við fólk því sum þeirra gætu verið afar
óheilbrigð.
Einhleypir fiskar eiga von á því að hitta
töfrandi manneskju sem gjörsamlega
heillar þá upp úr skónum. Þú skalt njóta
daðursins og spennunnar en einnig hafa
hugfast að þetta er ekki samband til
framtíðar og þú veist það. Það þýðir
ekki að það sé ekki hægt að skemmta
sér – sérstaklega á köldum og löngum
vetrarkvöldum.
Hrútur - 21. mars–19. apríl
Áhrifavaldur og ráðherrasonur
– Svona eiga þau saman
Sunneva Einars
Fædd 7. ágúst 1996
Ljón
n hugmyndarík
n ástríðufull
n örlát
n fyndin
n hrokafull
n þrjósk
Benedikt
Fæddur: 11. febrúar
1998
Vatnsberi
n sjálfstæður
n mannvinur
n samkvæmur
sjálfum sér
n framsækinn
n tilfinningalega
lokaður
n fjarlægur
Gæti sest á valdastól
fyrr en hann grunar
J
ón Gnarr, spéfugl og fyrr-
verandi borgarstjóri, hefur
marga fjöruna sopið og
margir bíða spenntir eftir
því sem hann tekur sér næst fyrir
hendur. DV ákvað því að leggja
fyrir hann tarotspil til að sjá
hvað framtíðin ber í skauti sér,
en áhugasamir lesendur DV geta
dregið sín eigin tarotspil á vef DV.
Góður við sjálfið
Fyrsta spilið sem kemur upp
hjá Jóni er Sólin. Í hans lífi rík-
ir mikil gleði, mýkt
og jafnvægi
og einkenn-
ist af sköpun,
gleði, allsnægtum og fullnægju.
Jón gerðist nýlega vegan og hefur
það breytt lífsstíl hans og líðan til
muna. Hann nýtur einmitt þeirrar
blessunar að hann hugsar ávallt
vel um innra jafnvægi og er með-
vitaður um að fylla líf sitt af kær-
leik. Hann er góður við sjálfið og
það sést. Jón á sér stóra drauma
og vinnur jákvætt og markvisst
að þessum draumum einmitt á
þessum tíma. Hann hefur mik-
inn metnað og er hvergi banginn.
Óskir hans eru sannarlega raun-
hæfar og verða þær að veruleika
fyrr en hann grunar. Hann mun
öðlast það vald sem hann sækist
eftir og mun þetta nýja verkefni
gefa honum mikla hamingju.
Sár fortíð
Þetta verkefni gæti
vel tengst póli-
tík þar sem
næsta spil
hjá Jóni er
9 stafir.
Það spil
er um
margt mjög
táknrænt. Bæði
táknar það léttleikann
sem einkennir Jón á efri
árum, enda veit hann að of mik-
il alvara þjónar engum tilgangi,
og einnig fortíðina, sem hefur oft-
ar en ekki verið stormasöm. Þessi
sára reynsla fortíðarinnar drífur
Jón áfram í að öðlast velgengni í
starfi. Hann hefur upplifað þján-
ingu og vandamál í æsku en þau
efla kjark hans. Jón býr yfir styrk
á við heilan her. Hann kann líka
að læra af reynslunni og ætlar að
nýta öll mistök fortíðarinnar til
góðs í þessu nýja verkefni.
Heppinn
Loks er það Hamingjuhjólið. Það
er líkt og heillastjarna skíni yfir
Jóni. Hann er mjög heill mað-
ur og því gefur hann af sér gleði
og kærleik og fær það tífalt til
baka. Hann þarf að einhverju
leyti að gefa sig á vald örlaganna
því framtíðin mun koma honum
skemmtilega á óvart og færa hon-
um betri tíma. Hann er heppinn
og hamingjuhjólið snýst honum í
hag. Almenn vellíðan er framtíðin
og enginn tími fyrir erfiðleika og
ónot. Jón veit að göfgi verður að
fylgja göfugum tilgangi og skref-
in sem hann stígur um þessar
mundir vísa honum á næstu skref
inn í hamingjuna. n