Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 4
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
4.5.2015 ➜ 10.5.2015
10
MANNS
smituðust af HIV
árið 2014 hér á
landi.
200 SJÚKLINGUM
með lifrarbólgu C
stendur einungis til boða lyf sem þykja úrelt. 32%
ER FYLGI PÍRATA
samkvæmt nýjustu könnun MMR.
673 FRAMHALDSSKÓLANEMAR
hættu námi á haustönn 2014
30.500 MANNS
skrifuðu í vikunni undir áskorun til forseta
Íslands um að vísa makrílfrumvarpi sjávar-
útvegsráðherra í þjóðaratkvæðagreiðslu.10
0
kr
ab
ba
m
ei
ns
sj
úk
lin
ga
r
fe
ng
u
ek
ki
u
nd
an
þá
gu
til
a
ð
un
di
rg
an
ga
st
ra
nn
só
kn
ir
á
La
nd
sp
íta
la
nu
m 326 FLÓTTAMÖNNUM
bjargaði skip Gæslunnar,
Týr, af tveimur litlum
bátum norður af Líbíu.
3. SÆTIÐ ER ÍSLANDS
yfir hvar
best er að
vera móðir í
heiminum.
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
BORGARMÁL Skipulagsstofnun
efast um að eðlilegt geti talist að
forsætisráðherra sé falið það hlut-
verk að meta verndargildi byggð-
ar, eins og frumvarp Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar forsæt-
isráðherra um verndarsvæði í
byggð gerir ráð
fyrir.
Eðlilegra
hljóti að telj-
ast að mat
á verndar-
gildi liggi
hjá viðkom-
andi sveit-
arstjórn og/eða Minjastofnun
eins og áður. „Vandséð er einnig
við hvaða aðstæður það getur átt
við að ráðherra taki ákvörðun um
verndun byggðar án ráðgjafar eða
gegn ráðgjöf Minjastofnunar þar
um.
Að mati Skipulagsstofnunar
getur þetta fyrirkomulag haft í
för með sér að tekin sé ákvörð-
un um verndarsvæði sem bygg-
ist ekki á hlutlægum og faglegum
grundvelli,“ segir í umsögn stofn-
unarinnar um frumvarpið.
Á þetta benti Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri í gær.
Dagur skrifar: „Verði frum-
varpið að lögum hefur lögboðnu
samráði, kæruferli og bóta-
ákvæði skipulagslaga verið
kippt úr sambandi og stjórnsýsla
verndunarmála ferðast 50 ár
aftur í tímann.“ - shá
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri harðorður um frumvarp forsætisráðherra:
Vernd byggðar ekki til ráðherra
SIGMUNDUR
DAVÍÐ GUNN-
LAUGSSON
Verði frumvarpið að
lögum hefur lögboðnu
samráði, kæruferli og
bótaákvæði skipulagslaga
verið kippt úr sambandi
og stjórnsýsla verndunar-
mála ferðast 50 ár aftur í
tímann.
Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri Reykjavíkur
STJÓRNSÝSLA Átta sóttu um emb-
ætti ríkissáttasemjara en frestur
til að sækja um stöðuna rann út
í vikunni. Eygló Harðardóttir,
félags- og húsnæðismálaráðherra,
hefur skipað þriggja manna nefnd
til að skipa í embættið frá og með
1. júní 2015 til næstu fimm ára.
Fjórar konur og fjórir karlar sóttu
um embættið, þau Bryndís Hlöð-
versdóttir, Dagný Rut Haralds-
dóttir, Erna Einarsdóttir, Kolbrún
Ásta Bjarnadóttir, Guðjón Helgi
Egilsson, Guðmundur Halldórs-
son, Þorsteinn Þorsteinsson og
Þórólfur Geir Matthíasson. - kbg
Nýr ríkissáttasemjari í júni:
Átta sækjast
eftir starfanum
SVEITARSTJÓRNIR „Teljum við
að með þessu ákvæði sé verið
að útiloka lýðræðislega og opna
umræðu um verkefni sveitar-
félagsins,“ segja fulltrúar
minnihlutans í hreppsnefnd
Skaftárhrepps vegna ákvæðis í
ráðningarsamningi nýs sveitar-
stjóra um að hann haldi „reglu-
lega fundi með meirihluta sveit-
arstjórnar þar sem farið er yfir
stöðu helstu mála“. Minnihluta-
menn sátu af þessum sökum hjá
þegar sveitarstjórnin staðfesti
ráðningarsamning við Söndru
Brá Jóhannsdóttur. - gar
Nýr sveitarstjóri á Klaustri:
Sérstakir fundir
með meirihluta
SANDRA BRÁ Skyldur sveitarstjóra við
meirihluta eru gagnrýndar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VINNUMARKAÐUR Páll Matthías-
son, forstjóri Landspítalans, ótt-
ast um öryggi sjúklinga spítalans í
verkfallsaðgerðum BHM. Verkfall
félagsmanna fjögurra aðildarfélaga
BHM sem starfa á spítalanum hefur
nú staðið í þrjátíu og þrjá daga og
ekki sér fyrir endann á deilunni.
Páll gagnrýnir Félag geisla-
fræðinga harðlega og segir undan-
þágunefnd félagsins ekki láta lækn-
isfræðilegt mat ráða för þegar
undanþágubeiðnir eru metnar hjá
félaginu. „Á Landspítala má búast
við sveiflum í starfseminni og því
ríður á að læknisfræðilegt mat sé
forsenda undanþága frá verkföllum.
Þetta hefur að mestu gengið eftir
hér, þó með þeirri undantekningu
að Landspítali hefur gert alvarlegar
athugasemdir við afgreiðslu undan-
þágubeiðna Félags geislafræðinga.
Mikilvægt er að þeir hnökrar sem
orðið hafa þar leysist strax, það má
ekki dragast,“ segir Páll.
Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra segir ekki koma til
greina að setja lög á verkföll eins og
staðan er í dag en gagnrýnir einnig
undanþágunefnd geislafræðinga.
„Læknar óska ekki eftir undanþág-
um nema í algjörum undantekning-
artilvikum því þeir virða rétt stétta
til að fara í verkföll. Það er skilning-
ur hjá okkur fyrir því að reyna að
gera verkfallið sem léttbærast fyrir
okkar allra veikustu einstaklinga,“
segir Kristján Þór.
„Verkfall af þessu tagi hefur
veruleg áhrif á starfsemi spítalans,“
segir Páll. „Ljóst þykir að áhrifin
eru umtalsvert meiri og alvarlegri
en af nýyfirstöðnu læknaverk-
falli. Yfirstandandi verkfall, sér-
staklega geislafræðinga sem eru í
ótímabundnu verkfalli, hefur valdið
verulegum áhrifum á meðferð sjúk-
linga,“ segir Páll. Fresta hefur þurft
fjölda skurðaðgerða, þúsundum
rannsókna og hundruð koma sjúk-
linga á dag- og göngudeildir hafa
fallið niður vegna verkfalls BHM.
Ekkert miðar áfram í kjara-
deilunni. Deilan skapar mikil og
alvarleg vandræði á sjúkrahúsum
landsins og er staðan orðin hrika-
leg að mati Gunnars Bjarna Ragn-
arssonar, yfirlæknis á krabba-
meinsdeild Landspítalans. Páll
Halldórsson, formaður BHM, seg-
ist vonast til að sjá einhver spil á
næsta fundi BHM með samninga-
nefnd ríkisins.
„Næsti fundur er settur á mánu-
daginn. Síðasta fundi var slitið með
þeim orðum að ekki yrði boðað til
nýs fundar fyrr en ríkið hefði eitt-
hvað fram að færa á fundinum. Hins
vegar veit ég ekkert hvaða spil það
eru sem ríkið mun leggja á borðið
og það verður bara að koma í ljós,“
sagði Páll.
Páll Matthíasson segir vinnuað-
stæður á Landspítalanum grafal-
varlegar og mikið liggja við. Lík-
legt er að sjúklingar bíði skaða af
verkfallsaðgerðum BHM. „Hvað
meðferð krabbameinssjúkra varð-
ar þá er staðfest að tafir hafa orðið
í lyfjameðferðum, biðlistar fyrir
geislameðferðir hafa lengst fram
úr hófi og rof hefur orðið í meðferð
sjúklinga. Niðurstaða okkar helstu
sérfræðinga er að mikil hætta sé
á því að krabbameinssjúklingar í
rannsóknum, meðferð eða eftirliti á
Landspítala geti orðið fyrir skaða.“
sveinn@frettabladid.is
Öryggi sjúklinga ekki tryggt
Forstjóri Landspítalans fer hörðum orðum um Félag geislafræðinga. Mikilvægt sé að leysa þá hnökra sem hafi
orðið á afgreiðslu undanþágubeiðna. Öryggi sjúklinga sé stefnt í hættu. Læknisfræðilegt mat verði að ráða för.
LANDSPÍTALINN Undanþágubeiðnum sem lagðar hafa verið fyrir Félag geislafræðinga hefur flestum verið hafnað. Forstjórinn
er óánægður með stöðuna og segir öryggi sjúklinga ótryggt á spítalanum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Yfir-
standandi
verkfall,
sérstaklega
geislafræðinga
sem eru í
ótímabundnu
verkfalli, hefur valdið
verulegum áhrifum á
meðferð sjúklinga.
Páll Matthíasson,
forstjóri Landspítalans