Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 18

Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 18
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18 Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar er haldinn í sjöunda skipti í dag. Dagurinn er haldinn fyrir alla borgarbúa og Mannréttindaskrifstofa borgarinnar hvetur alla til að taka þátt, gleðjast, sýna sig og sjá aðra ásamt því að fagna því fjölbreytta sem borgin hefur upp á að bjóða. Þétt dagskrá verður í Tjarnar- bíói, Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur í dag þar sem alls kyns hópar og félagasamtök munu skemmta borg- arbúum. Þar á meðal er víetnamski danshópurinn Mua non sem saman- stendur af sex víetnömskum konum. „Þetta er hefðbundinn víet- namskur dans. Við æfðum atriði fyrir nýársgleði okkar sem var í enda febrúar og ætlum að sýna það,“ segir Helena Hue Thu Bui. „Við horfðum á Youtube til að læra dansinn. En þetta er ekki sérlega flókinn dans heldur frekar rólegur.“ Helena segir mikilvægt að halda í ræturnar frá Víetnam en hún hefur búið á Íslandi frá því að hún var eins árs. „Fjölmenningardagur- inn er mikilvægur fyrir okkur. Þá koma allir saman frá alls kyns löndum og maður getur lært ýmis- legt um fjarlæga menningu ásamt því að geta sýnt öðrum okkar menningararf. Svona aðeins að láta vita af okkur,“ segir Helena hlæjandi. Ræturnar eru mikilvægar Fjölmenningardagurinn er haldinn hátíðlegur í Reykjavík í dag. Uppákomur, sýningar og markaðs - stemming í miðbænum. Mannréttindaskrifstofan hvetur alla til að fagna fjölbreytileika borgarinnar. 13.00 Setning á Skólavörðuholti og fjölþjóðleg skrúðganga fer af stað sem endar í Ráðhúsinu. Þar verður markaður og sýningartorg og gestir geta fengið að prófa búninga, fengið sér henna-tattú og fleira. 14.30-17.00 Leiksýning fyrir börn á öllum aldri í Iðnó. 14.30-17.00 Söng- og dansatriði í Tjarnarbíói. Nánari upplýsingar á reykjavik.is FJÖLMENNINGARDAGUR REYKJAVÍKURBORGAR VÍETNAMSKUR DANS Thai Ha Nguyen, Khugen Thu Nguyen, Helena Hue Thu Bui, Karen Hien Thu Nguyen, Lísa Tu Thi Pham og Nhi Thuy Thi Dinh dansa í Tjarnarbíói í dag og er ókeypis aðgangur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@frettabladid.is Þórir Sæmundsson, leikari Reyni að vera almennilegur Ég ætla að fara með börnin mín á fótboltaæfingu og skákæfingu. Skella mér í sund, borða mexíkóskan mat, horfa á Liverpool skíta á sig, þrífa baðherbergið, fav-a og læka nokkra vel valda hluti, læra texta fyrir Hróa hött, borða cocopuffs í morgunmat, skæpa við fjölskyldu og reyna almennt að vera ógeðs- lega kurteis og almennilegur við náungann. Anna Svava Knútsdóttir leikkona Lætur barnið sofa Um helgina ætla ég að þramma með barnavagninn út um allar trissur. Sonur minn er nefnilega lúxusgæi sem sefur bara á hreyfingu. Aftur á móti sef ég ekki neitt. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur Ástir og ævintýri Í dag ætla ég að fara á Sólheima í Grímsnesi og flytja þar gestum og heimilisfólki á staðnum erindi um ástir og ævintýri. Á morgun fáum við Skottan mín vinafólk í heimsókn. Andrés Jónsson almannatengill Skrúfar saman rúm Ég reyni alltaf að troða alltof miklu inn í dagskrána um helgar. Ég er annars í miðjum rúmkaupum. Líklega væri nóg afrek að klára þau viðskipti og skrúfa rúmið saman. Svava Gunnarsdóttir gefur girnilega upp- skrift að pasta á mat- arbloggi sínu Ljúf- meti og lekkerheit. Hún segir þennan rétt vera fljótlegan en bragðast eins og veislumat, og henta því frábærlega þegar von er á saumaklúbb- um eða matargestum og allt er í hers hönd- um. Pasta með kjúklingi, sólþurrkuðum tóm- ötum og basilíku 400 g tagliatelle 600 g kjúklingabringur 1 laukur, hakkaður 8 sólþurrkaðir tómatar 1 dl vatn 1 kjúklingateningur 2 dl rjómi ½ msk. þurrkuð basilíka salt og pipar 2 dl parmesanostur, rifinn Fljótlegur og góður pastaréttur um helgina Svava Gunnarsdóttir matarbloggari gefur uppskrift að einföldu pasta sem bragðast eins og veislumatur. PASTA Best er að bera réttinn fram með ferskrifnum parmesan- osti og hvítlauks- brauði. Sjóðið pastað. Skerið kjúkling- inn í strimla og steikið á pönnu með hökkuðum lauk og tómötum. Bætið vatni, kjúklingateningi og rjóma á pönnuna og látið sjóða sam- an í fimm mínútur. Smakkið til með basilíku, salti og pipar. Hellið vatninu af pastanu. Hrærið pasta og parmes- anosti saman við kjúklinga- sósuna og berið fram með ferskrifnum parmesanosti og hvítlauksbrauði. HELGIN 9. maí 2015 LAUGARDAGUR FARÐU HLUSTAÐU LESTU HORFÐU... Á EVRÓPSKA ALÞÝÐUTÓN- LISTARVEISLU í Hörpu á morgun klukkan 20.00. Ókeypis aðgangur! Á NÝJAN DISK BELLEVILLE. Þar er að finna „musette“ tónlist sem leikin var á harmóníkuböllum í Frakklandi á fyrri hluta 20. aldar. MÖRK– SÖGU MÖMMU eftir Þóru Karítas Árnadóttur. Bók sem maður klárar á einu kvöldi. Á BAKK Í BÍÓ. Frábær sumarstemningsmynd!
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.