Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 24
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Tengir við tunglið og sendir óskir Halla Frímannsdóttir notar stjörnuspeki til að fremja tunglgaldra. Hún hjálpar fólki að verða frjótt og opna hjarta sitt. Wicca er viss náttúrudýrkun þar sem trúað er á alheimsandann og náttúrugyðjan er dýrkuð. „Wicca er viss heiðni en ég á samt líka mína barnatrú. Ég er viss trúarlegur hræsnari,“ segir Indíana og bætir við að hún taki það sem henti henni úr hverjum trúarbrögðum og því sé heimili hennar fullt af krossum, fimm arma stjörnum og búddastyttum. „En náttúran er mín kirkja og ég er mjög tengd tunglinu. Ég nota kerti, jurtir og fleira og er mest í heilunar-, verndar- og hreinsunar- göldrum. Ég er ekki í ástargöldr- um eða einhverju slíku, enda vil ég ekki rugla í frjálsum vilja.“ Indíana segir marga dýrka Wicca á Íslandi þótt hvorki séu til formleg samtök né nornasam- komur skipulagðar. „Það eru stór samfélög úti í heimi og ég hef ekki tölu á þeim Wicca-grúppum sem ég er í á Facebook. Það er mikill áhugi á Íslandi því að hér er mikil trú á álfa og vættir og fólk er heillað af því að hér eigi að reisa ásahof.“ Indíönu finnst Íslendingar almennt vera afar frjálslynd- ir þegar kemur að göldrum og heiðinni trú. Það er eitthvað sem erlendar nornir öfunda þær íslensku af. „Fólk er ekkert að kippa sér upp við þetta. Jú, jú. Sumir halda að þetta sé tengt djöflinum eða eitthvað grín en fyrir mér er þetta full alvara og alls ekki frá djöflin- um. En það eru engir alvarlegir fordómar í gangi.“ Nornasamfélagið stórt úti í heimi Indíana Erna Þorsteinsdóttir er náttúrunorn sem tekur það sem hent- ar henni úr hverri trú. Hún segir nornafordóma vera litla á Íslandi. „Ég veit ekki hvort ég er norn en það eru vissulega einhverjir sem kalla mig það,“ segir Þórunn Elísa- bet. „En ég les í spil.“ Þórunn segir að maður ráði litlu þegar lesið er í tarotspil. Að maður sé bara í raun að lesa, eins og að lesa skáldsögu, og maður ráði ekki fram- haldinu. „Galdurinn er að opna á innsæi sitt. Í gamla daga var það kallað að nota brjóstvitið. Maður les með hjartanu, frekar en heil- anum. En maður þarf að vera opinn og vel tengdur nátt- úruöflunum. Ég sé stundum fyrir horn, ætli það sé ekki best að orða það þannig.“ En af hverju leitar fólk í að láta spá fyrir sér? „Það er kannski haldið valkvíða og leitar eftir leiðbeining- um. Hversu oft fær maður ekki lánaða dómgreind frá öðrum til að hlusta á sjálfan sig tala eða hugsa og taka ákvarðanir? Maður er að fá staðfestingu á eigin vilja og opinberunin er manns eigin.“ Galdurinn er að opna hjartað og á innsæið Þórunn Elísabet Sveinsdóttir sér stundum fyrir horn og lánar dómgreindina við tarotlestur. SPÁIR Í TAROT Þórunn Elísabet segist nota brjóstvitið þegar hún les í tarot- spilin. Lest- urinn komi ósjálfrátt og maður ráði ekki fram- haldinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Tunglganginn nýti ég mér einna mest og fylgi honum vel eftir,“ segir Halla sem hefur fengið vegna iðju sinnar við-urnefnið Halla Himin- tungl. Halla nýtir kunnáttu sína í stjörnuspeki til að haga lífi sínu og hegðun eftir tunglgangi – og þann- ig fá sem bestan árangur. Á þann hátt fremur hún galdur. „Á tómu tungli er best að losa sig við eitthvað, loka kafla eða sleppa tökunum. Svo næsta dag kemur nýtt tungl og þá opnar maður fyrir einhverju nýju. Ég sendi óskir á nýju og fullu tungli og einnig er mjög sterkt að vera með fyrirbænir í þessum tungl- afstöðum. Svo klippi ég neglur á vaxandi tungli því þá heldur orkan áfram að vaxa í stað þess að hún minnki á minnkandi tungli. Í dag og fram til 21. maí er sólin í nauts- merkinu og svo verður nýtt tungl í nauti þann 18. maí, þetta er góður tími til að vera í sjálfsrækt með líkamann og almennt heilbrigði.“ Skilningur Höllu á göldrum er að hjálpa einhverjum að koma lífi sínu til betri vegar. „Allir geta galdrað en þetta byggist á samvinnu og sam- krafti. Ég geri ekkert ein. Það sem ég aftur á móti get hjálpað við er tengingin við náttúruöflin, ég tala við þau og tengi síðan við andann.“ Halla hefur þannig aðstoðað fólk við að tengjast náttúrunni til að fá lausn á ýmiss konar vanda. „Ég hef aðstoðað konur við að verða frjórri. Þá gerum við einfalda og skemmtilega galdra saman niðri við hafið og þetta er eitthvað sem allir geta gert. Þá fer maður niður í fjöru, snýr sér í vesturátt og jarð- tengir fæturna við jörðina. Síðan stendur maður andspænis hafinu og andar í takt við öldugang hafs- ins. Inn í lungun og ofan í maga- stöðina og anda frá þegar sjórinn flæðir út. Þegar öndunin er komin í takt við bárur hafsins vaggar maður sér eins og tré sem blaktir áreynslu- laust í loftstraumi og fer þannig dýpra inn í eigin hugleiðslu. Um leið kallar maður á frjósemisorku jarð- arinnar og tengir hana við lífsork- una sem er staðsett í magastöðinni og er móðurstöð sköpunarkraftsins sem við eigum öll innra með okkur. Þannig geta konur orðið frjórri.“ Hefurðu séð árangur af þessu? „Já, og ég hef líka hjálpað fólki að opna hjartastöðina þannig að það verði ástfangið. En ég get ekki gefið upp þann galdur, hann er sérsaum- aður að hverjum og einum. En ég læt ekki einhvern verða ástfang- inn af ákveðinni manneskju. Það er svartigaldur og ég stunda hann ekki. Ástin er frjáls og hittir í mark þegar hugur og hjarta eru samstillt á að þiggja og njóta.“ GALDRAÐ Á GRÓTTU Halla sendi fyrstu óskina sína til tunglsins árið 1996 á Gróttu og hún rættist mánuði síðar. Síðan þá er Grótta eftirlætis galdrastaðurinn hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR TENGD KÖTTUM Indíana segir að nornir eigi sín dýr sem þær tengjast vel og hún er afar tengd köttum. Hér er hún með Krumma sem valdi hana sem eiganda á sínum tíma. Og já, hann er svartur með gul augu. FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR BRAGI Svo klippi ég neglur á vaxandi tungli því þá heldur orkan áfram að vaxa í stað þess að hún minnki á minnkandi tungli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.