Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 32

Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 32
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Gyða LóaÓlafsdóttir gydaloa@frettabladid.is U PPÁH ALD S Í H O SILÓ SO N JA BJÖ RK RAGN ARSD Ó TTIR IN N AN H Ú SSARKITEKT ➜ STAÐURINN UPPÁHALDSSTAÐURINN Eldhúsið og stofan eru samtengd rými og gluggar eru á öllum austurveggjum íbúðarinnar. Í stofunni stendur rúmgott eldhúsborð en Sonja segir að uppáhaldsstaðurinn í íbúðinni sé við borðið þar sem hægt er að sitja í rólegheitum, drekka kaffi og njóta útsýnisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sonja Björk og sambýlis-maður hennar Jökull flutti inn í íbúðina í sept-ember, þrátt fyrir að hún sé ekki nema 40 skráð-ir fermetrar er hún vel skipulögð og rýmið nýtist vel. Sólin skín inn um stóra gluggana og Sonja, sem er mennt- aður innanhússarkitekt, á alls konar fallega muni. Hún segist þó ekki vera allt of vandlát á hvaða hlutir fái fastan stað á heimilinu. „Mér finnst mjög gaman að fá eitthvað gefins og mér finnst allir hlutir eiga heima einhvers stað- ar,“ segir hún eftir smá umhugs- un og bætir við að hún tengi gjafir við þann sem gefur. Það getur verið hægara sagt en gert að komast yfir kræsileg- ar leiguíbúðir en Sonja og Jökull duttu svo sannarlega í lukkupott- inn. „Þegar við fórum og skoðuð- um íbúðina var Jökull búinn að segja við mig að gera mér ekki of miklar vonir. Við vissum bara að hún væri lítil og svo komum við hingað upp og fórum bara að hlæja,“ segir hún glöð í bragði og tekur til við að sýna okkur fimm uppáhaldshlutina sína. Handmalar kaffibaunir í þakíbúð á Skólavörðustíg Sonja Björk Ragnarsdóttir innanhússarkitekt býr í þakíbúð á Skólavörðustíg ásamt kærastanum. MYNDLIST Það getur oft reynst þrautin þyngri að ákveða hvar skal hengja upp listaverk og málverk. „Þetta var eitt af verkunum sem við hengdum fyrst upp,“ segir hún en verkið er eftir grafíska hönnuðinn Kríu Benediktsdóttur. KAFFIKVÖRN Hér eru kaffibaunir handmalaðar í gamalli kaffikvörn á hverjum morgni. „Þetta er svo mikil stemning, svo er maður líka með útsýnið,“ segir Sonja og hlær. ÞRÍVÍDDAR- PRENTARINN Á eldhúsborð- inu stendur vígalegur þrí- víddarprentari. „Við keyptum hann í pörtum og settum hann svo saman, þegar allir voru að púsla um jólin vorum við að setja saman 3D-prentara.“ HANDSMÍÐ- AÐAR HILLUR Handsmíðaðar viðarhillur eru undir gluggunum í stofunni, hill- urnar teiknaði Sonja og fékk í þrítugsafmælis- gjöf frá Jökli en þær eru smíðaðar af húsgagnasmíða- nemanum Jóni Hinriki Höskulds- syni. ALMANAK Sonja á afmæli rétt fyrir jól og fékk í afmælis- gjöf dagatal sem inniheldur 365 listaverk eftir ís- lenska listamenn. „Þetta er svona eins og að opna pakka á hverjum degi,“ segir Sonja.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.