Fréttablaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 38
9. maí 2015 LAUGARDAGUR38 | HELGIN TÆKNI |
knýja vél, til dæmis geimskip, án
drifkrafts.
Nokkur óheppileg vandamál blasa
við. Fyrst og fremst sú staðreynd að
hugmynd Shawyers virðist byggjast
á lögmálum framandi alheims þar
sem grundvallarhugmyndir á borð
við orkugeymd og varðveislu skrið-
þunga eru ekki til. Annað vandamál:
Tækið virðist virka.
Fyrirgefðu, Newton
Þrjár litlar en þó marktækar til-
raunir hafa verið gerðar með þetta
undarlega tæki, sem Newton myndi
líklega kalla orgel skrattans. Tvær
tilraunir voru gerðar, tvær hjá
NASA Eagleworks-tilraunastofunni
og ein hjá kínverska Northwestern-
tækniháskólanum. Allar sýndu þær
fram á að EmDrive framleiðir kraft.
Nýjasta tilraunin fór fram fyrr á
þessu ári hjá NASA og var nákvæm-
ari en hinar. Tækið framkallaði 50
míkrónewton. Hlægilega lítill kraft-
ur, en kraftur engu að síður. Aukið
fjármagn hefur fengist og nú geta
nauðsynlegar tilraunir hafist, von-
andi í lofttæmi og helst á lágbraut
um Jörðu.
Það er í sjálfu sér móðgun við
blessaðan Newton að draga hann
inn í þetta enda þverbrýtur tækið
þriðja aflfræðilögmál hans: Gagn-
stætt sérhverju átaki er ávallt jafn-
stórt gagntak. Lögmál hans um
varðveislu skriðþunga er fengið af
þessu. Þar sem ekkert eldsneyti
losnar við hröðun í EmDrive, þá er
ekkert sem jafnar út breytingu á
skriðþunga tækisins. Nú væri ráð-
lagt að draga fram námsefnið úr
eðlisfræði 101.
Varfærin bjartsýni
„Ef þú ert með þrjár tilraunir sem
mælt hafa nettókraft, þá bendir það
til þess að það sé eitthvað á ferðinni
þarna,“ segir Sveinn Arnórsson.
Hann lærði flugvélaverkfræði við
Stanford-háskóla. „Menn gefa sér
að þarna séu sýndaragnir sem verið
er að æsa eða framkalla. Agnir sem
eru ómælanlegar og hverfa eftir
örskamma stund.“
Ekki er hægt að segja að þess-
ar niðurstöður hafi valdið miklum
titringi meðal eðlisfræðinga. Eðlis-
fræði EmDrive er einfaldlega frá-
leit. Sveinn er á sama máli en bendir
á hversu mikilvægt það er að taka
niðurstöðurnar alvarlega.
„Hlutirnir geta virkað þó að þú
getir ekki útskýrt af hverju. Næsta
skref er að færa þetta yfir á annað
stig tilrauna,“ segir Sveinn. „Heims-
mynd okkar hlýtur að taka breyt-
ingum eftir því sem vitneskjan
verður meiri. Jafnvel þó að eðlis-
fræðingarnir séu ósáttir við að þetta
samrýmist ekki þeirra heimsmynd.
Þeir verða bara að útskýra hvernig
hlutirnir virka.“
Margir hafa freistað þess að
gera einmitt það frá því að niður-
stöður úr tilraunum voru kynnt-
ar fyrr á árinu. Svo virðist sem
rannsakendur hafi ekki fylgt ýtr-
ustu rannsóknarkröfum. Hér eru
breytur á ferð. Að auki er kraftur-
inn svo smávægilegur að minnsta
truflun (rúta sem ekur fram hjá
rann sóknar stofunni) getur mögu-
lega skekkt niðurstöðurnar.
Draumurinn
Virki EmDrive mun það hafa
margvísleg áhrif á tilvist okkar.
Fjarlægðirnar verða ekki svo
langar lengur. Það mun taka 4
klukkustundir að fara til tunglsins
og á hraða sem er um 10% af ljós-
hraða mun það taka 130 ár (á brems-
unni í 40 ár) að fara til stjarnanna
næst okkur. Við sjáum hvað setur.
„Það er mikilvægt að deyða ekki
draumana. Því næsta kynslóð getur
sett sér markmið sem við getum
ekki tekið undir í dag,“ segir Sveinn
og bætir við: „Það er alltaf í lagi að
leyfa þeim að dreyma.“
Alheiminum er stjórnað af altækum, óhagganlegum reglum. Lögmálum sem við erum enn að kynnast og munum halda áfram að útfæra um ókomna
tíð. Engu að síður fylgja því viss
ónot þegar eitthvað nýtt og fram-
andi fær okkur til að efast. Vísinda-
legur forsendubrestur, ef þið viljið.
Slík vandamál eru þó nauðsynlegur
hluti hinnar vísindalegu aðferðar
þar sem óvæntar niðurstöður kalla
á svör.
Tökum ljóseindir sem dæmi. Þær
tilheyra flokki öreinda. Ódeilanleg-
ar agnir og eftir því sem við best
vitum verða hlutirnir einfaldlega
ekki einfaldari. Ljóseindir eru jafn-
framt massalausar. Þær æða því um
alheiminn á ljóshraða, fylla hann af
ljósi sem við bæði sjáum og sjáum
ekki (allt frá gammageislum til
innrauðra). Þrátt fyrir massaleysi
hafa ljóseindir skriðþunga og geta
því sett agnarsmáan þrýsting á það
sem þær skella á.
Hvað ef?
Er hægt að nota þennan þrýsting
ljóseindanna til að framkalla kraft?
Margir hafa velt þessari spurningu
fyrir sér. Fyrir áratug kynnti breski
flugvélaverkfræðingurinn Roger
Shawyer hugmyndir sínar um tæki,
EmDrive, sem gerir einmitt það og
á síðasta ári hófust tilraunir.
Þetta er hugmynd Shawyers: Ljós-
eindum (í þessu tilfelli örbylgjum)
er kastað um hola og lokaða járn-
tunnu sem mjókkar í annan endann
þar sem þrýstingur margfaldast.
Þetta framkallar nettókraft í lok-
uðu kerfi, án þess að eitthvað yfir-
gefi tunnuna. Þannig er hægt að
UPPÁHALDS
ÖPPIN8
Þorsteinn B.
Friðriksson
framkvæmda-
stjóri Plain
Vanilla
3G 9:41 AM
Google Maps Messenger App Store
Outlook Asana
Uber
ASANA
Næstum öll innanhússsamskipti í
Plain Vanilla fara í gegnum Asana.
QUIZUP
Ég varð auðvitað að hafa QuizUp
á listanum. Núna spila ég aðallega
nýja prufuútgáfu af QuizUp sem
kemur á markað innan skamms.
APP STORE
Á hverjum fimmtudegi hleð ég
inn í símann minn 10-20 nýjum
öppum í símann til að prófa það
nýjasta á markaðnum.
UBER
Mitt uppáhaldsfyrirtæki. Með
Uber get ég pantað mér leigubíl
hvar sem er í heiminum (nema á
Íslandi) og bíllinn finnur mig út
frá minni staðsetningu.
OUTLOOK
Apple gerir frábæra síma en innbyggða
póstforritið í iPhone er frekar slappt. Það
er ótrúlegt að mest notaða appið í sím-
anum mínum sé búið til af Microsoft.
CHROME
Allar upplýsingar veraldarvefsins
aðgengilegar í lófanum á þér. Chrome
er hraður vafri sem samstillir sig við far-
tölvuna mína.
MESSENGER
Flest öll persónuleg samskipti fara víst
orðið í gegnum Facebook. Ég nota
Facebook-appið sjálft mun minna
en Messenger-appið.
GOOGLE MAPS
Ég skil eiginlega ekki hvernig
fólk gat ferðast fyrir tíma
Google Maps.
AUDIO TECHNICA
MH50x ★★★★★
Audio Technica
MH50x heyrnar-
tólin fóru á
markað seint á
síðasta ári og
hafa fengið lof
gagnrýnenda
víða. Þegar ég
fékk heyrnar-
tólin í hendurnar
til að dæma þau
vissi ég af því
lofi sem þau
höfðu fengið,
en hafði aldrei
prófað heyrnartól frá fyrirtækinu.
Skemmst er frá því að segja að fátt
hefur heillað mig jafn mikið á jafn
skömmum tíma og breytt jafn miklu á
jafn lúmskan hátt.
Eftir að hafa notað heyrnartólin í
tvær vikur fann ég að ég var nánast
orðinn háður þeim. Þéttur bassinn
og kristaltær hljómgæðin breyta því
hreinlega hvernig maður upplifir
tónlistina. Mikilvægt er þó að huga
að gæðunum á þeim hljóðfælum sem
maður hlustar á. Til þess að stillingar
upptökustjórans skili sér sem best er
256 kbs algjört lágmark. Best er að
gæðin séu meiri.
Á þessum tíma sem ég notaði
heyrnartólin gerðist tvennt frábært. Í
fyrsta lagi gaf Gísli Pálmi út plötuna
sína og var einstakt að hlusta á hana í
þeim hljómgæðum sem heyrnartólin
bjóða upp á. Í öðru lagi fylltist ég
fortíðarþrá og fór að rifja upp gömlu
plötur Prodigy. Aftur komu heyrnar-
tólin sterkt in.
Audio Technica MH50x liggja vel að
höfðinu og halda þéttingsfast utan um
eyrun. Heyrnartólin eru nánast eins
og peltorar, hljóðeinangrunin er slík.
Þegar maður leggur þau saman með
tónlistina í botni heyrist varla neitt,
sem er mjög áhugavert.
Stysta snúran sem fylgir með hent-
ar vel þegar heyrnartólin eru not uð
með síma og sú lengsta þegar horft
er á sjónvarp eða spilað á leikjatölvu.
Óhætt er að mæla með þessum
heyrnartólum, þau eru frábær. - kak
Upplifði tónlist-
ina á nýjan hátt Að leyfa sér að dreyma
Tæki sem virðist þverbrjóta lögmál eðlisfræðinnar gæti orðið næsta stóra skref mannkyns. Reynist vís-
indin traust mun það auðvelda okkur að kanna vetrarbrautina. En getum við tekist á við afl eiðingarnar?
FARARSKJÓTI IXS Enterprise er hugmynd að geimskipi NASA sem hefur að geyma framandi orkugjafa. MYND/NASA
EMDRIVE Tækið sem um ræðir. Lítur út eins og örbylgjuofn frá Viktoríutímabilinu.
Það er mikilvægt að
deyða ekki draumana.
Því næsta kynslóð getur
sett sér markmið sem
við getum ekki tekið
undir í dag.
Sveinn Arnórsson flugvélaverkfræðingur
Kjartan Hreinn
Njálsson
kjartanh@365.is
Chrome Quizup
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Bodrum &
Marmaris
Bókaðu sól á
SÉRTILBO
Ð
& allt að 20.000 kr.
bókunara
fsláttur á
mann
Valdar dag
setningar,
valin hótel
.