Fréttablaðið - 09.05.2015, Page 46
FÓLK|HELGIN
Sjónvarpsþættirnir Doctor Who skipa stóran sess í breskri sjónvarpssögu en þeir
hófu göngu sína á BBC árið 1963.
Þættirnir voru sýndir við miklar
vinsældir fram á miðjan níunda
áratug síðustu aldar en vinsæld-
irnar döluðu nokkuð næstu árin.
Sýningum þeirra var hætt árið 1989
en þættirnir voru endurvaktir árið
2005 og hafa síðan þá notið mikilla
vinsælda um allan heim, meðal
annars hér á landi. Íslenska leik-
konan Jónína Ólafsdóttir kom við
sögu í þáttunum en hún lék í fjórum
þáttum árið 1977 sem til samans
mynduðu söguna The Sun Makers.
MARGIR AÐDÁENDUR
Doctor Who-þættirnir eiga stóran
aðdáendahóp um allan heim og
einn þeirra, Bretinn Steve Hall,
hafði um margra ára skeið reynt
að fá eiginhandaráritun frá Jónínu.
„Áhuga minn má rekja til sýningar
sem ég fór á árið 1976 en þar voru
búningar og munir úr þáttunum
sýndir. Í dag á ég yfir 3.000 eigin-
handaráritanir frá leikurum og
starfsmönnum þáttanna og fylgist
enn með þeim með barnabörnum
mínum.“
FRÁ KEFLAVÍK
Jónína fæddist í Keflavík árið 1943
og hóf nám í Leiklistarskóla Reykja-
víkur. Þaðan útskrifaðist hún árið
1963 og flutti ári síðar til Bretlands
þar sem hún hóf nám við leiklistar-
skóla í London. Á öðru námsári
sínu hlaut hún verðlaun sem efni-
legasti nemandinn og lék í sjón-
varpi og leikhúsi víða um Bretland
eftir útskrift. Hlutverkið í Doctor
Who fékk hún í gegnum umboðs-
skrifstofu sína. „Jónína lék hlut-
verk Marn sem var í slagtogi með
aðalskúrki þáttanna sem bar nafnið
the Gatherer. Hlutverkið var skrifað
fyrir karl en leikstjóri þáttanna,
Pennant Roberts, breytti því. Hann
átti til að taka slíkar ákvarðanir
en þau Jónína, ásamt eiginkonu
Roberts, urðu mjög góðir vinir.“
VONDA KONAN
Sem fyrr segir nutu þættirnir mik-
illa vinsælda enda löngum sýndir
á besta tíma á laugardagskvöldum.
„Þetta var sá tími vikunnar þegar
öll fjölskyldan sameinaðist fyrir
framan sjónvarpið enda eignuðust
þættirnir trygga áhorfendur sem
um leið gátu verið mjög gagnrýnir
á framvindu þeirra.“ Sem dæmi um
vinsældir þáttanna, þá lenti dóttir
Jónínu í því að nokkrir skólafélagar
hennar í London neituðu að leika
við hana í frímínútum þar sem móð-
ir hennar lék vonda manneskju. Það
breyttist þó þegar þegar karakter
hennar skipti um lið í síðari þáttum
og varð „góð“.
EITT BRÉF ENN
Jónína bjó í London í 20 ár og
kynntist verðandi eiginmanni
sínum, David Scott, sem ber
leikaranafnið David Ashton, í leik-
listarskólanum en saman eignuðust
þau eina dóttur, Sonju Scott. Eftir
Doctor Who-ævintýrið lék hún í
ýmsum leikritum, kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum í Bretlandi og á Ís-
landi auk þess að taka að sér ýmis
verkefni á þessu sviði.
Jónína og David skildu árið 1979
og fjórum árum síðar skipti Jónína
um kúrs og hóf þriggja ára nám í
Alexandertækni. Eftir að náminu
lauk um áramótin 1986-1987 fluttu
mæðgurnar heim til Íslands þar
sem Jónína kenndi Alexandertækni
í Leiklistarskólanum í þrettán ár
auk þess að sinna ýmsum verkefn-
um tengdum leiklist.
HEIMÓKN
Jónína greindist með Alzheimer-
sjúkdóminn árið 2005, þá 61 árs,
og dvelur nú á hjúkrunarheimilinu
Skjóli. „Ég var búinn að senda Jón-
ínu bréf í langan tíma en þau fóru
oftast ólesin í ruslið. Því prófaði ég
að senda eitt bréf enn, stílað á kór
sem hún söng í, en þá var orðið
ljóst að við hjónin vorum að heim-
sækja Ísland. Bréfið endaði í fórum
dóttur hennar sem hafði samband
og í sameiningu skipulögðum við
fund degi fyrir heimför okkar. Sonju
leist ekkert sérstaklega vel á að
hitta mann sem lagði svona mikið
á sig til að hitta leikkonu sem lék í
þáttum fyrir 40 árum en sem betur
fer gekk þetta upp.“
Sökum veikindanna var Jónína
ekki viss í fyrstu hvaða fólk þetta
var en þegar minnst var á Doctor
Who lifnaði greinilega yfir henni
að sögn Steve. „Ég var með gamlar
myndir úr þáttunum á spjaldtölv-
unni og það lifnaði yfir henni þegar
hún sá þær og búningana sem hún
klæddist. Jónína hafði ekki skrifað
í langan tíma en dóttir hennar
fann gamla stílabók sem hún hafði
skrifað nafn sitt utan á og gaf mér.
Það þótti mér virkilega vænt um og
met mjög mikils.“ ■ starri@365.is
LÉK Í DOCTOR WHO OG
FÉKK ÓVÆNTA HEIMSÓKN
FRÆGIR SJÓNVARPSÞÆTTIR Jónína Ólafsdóttir lék í bresku þáttunum
Doctor Who árið 1977 sem nutu mikilla vinsælda. Tæplega 40 árum síðar
heimsótti aðdáandi hana óvænt til Íslands og urðu miklir fagnaðarfundir.
BJARGVÆTTURINN Enski leikarinn Tom Baker lék fjórða Doctor Who árin 1974–81 en
Jónína lék á móti honum árið 1977. MYND/AFP
LANGÞRÁÐUR FUNDUR Steve hitti loks Jónínu á Íslandi. Hann á yfir 3.000 eigin-
handaráritanir frá leikurum og starfsmönnum þáttanna. MYND/ÚR EINKASAFNI
TVÍEYKIÐ Illmenni þáttanna ásamt
Jónínu sem lék Marn. MYND/ÚR EINKASAFNI
LEIKKONAN Jónína stundaði nám og
vann sem leikkona í London í nær aldar-
fjórðung. MYND/ÚR EINKASAFNI
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
TU
N
.IS
P
R
E
N
TU
N
IS
Bestu meltingargerlar
sem ég hef prófað
”
“Víðir Þór Þrastarsson,
íþrótta- og heilsufræðingur
frá Háskóla Íslands.
Save the Children á Íslandi