Fréttablaðið - 09.05.2015, Qupperneq 53
| ATVINNA |
Umsjón með starfinu hefur
Lind Einarsdóttir hjá Talent
Ráðningum, lind@talent.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um
starfið á heimasíðu Talent Ráðninga, www.talent.is
BL bílaumboðið leitar að kraftmiklu fólki til starfa
Hjá BL starfa rúmlega 150 starfsmenn auk samstarfs- og umboðsaðila um allt land
en félagið er með söluumboð fyrir BMW, Land Rover, Nissan, Hyundai, Subaru,
Renault, Dacia og Isuzu.
Starfsmaður í akstursþjónustu
Finnst þér gaman að vera á ferðinni? Við leitum að ábyrgum aðila á besta aldri til að sinna fyrir okkur akstursþjónustu.
Um er að ræða akstursþjónustu með viðskiptavini vegna bílaviðgerða og einnig keyrsla með gögn og fleira.
Afburða samskiptafærni er skilyrði. Vinnutími er frá kl. 08-18.
Starfsmaður í þjónustuver
Hefur þú áhuga á bílum og bílavarahlutum? Þá gæti þetta verið starf fyrir þig. Við leitum að aðila með mikla þjónustu-
lund og mjög góða tölvufærni í þjónustuverið okkar. Þú þarft ekki að vera bifvélavirki en áhugi á bílum og þekking á
grunnhugtökum er skilyrði. Starfið fer mikið fram í gegnum síma og tölvu. Vinnutími frá kl. 8/9-17/18.
Starfsmaður á skrifstofu
Ef þú hefur gaman af góðu skipulagi og ert talnaglöggur gæti þetta verið starf fyrir þig.
Starfið felst í umsjón með skráningargögnum nýrra bíla, tryggingum þeirra og verkbeiðnum
þeim tengdum. Viðkomandi hefur umsjón með samræmingu vinnubragða milli deilda
ásamt annarri bókhaldsvinnu og tilfallandi vinnu tengdri tollamálum. Vinnutími er frá kl. 9-18.
Linnetsstígur 1 | 220 Hafnarfjörður | talent@talent.is | Sími 552-1600
Umsjón með starfinu hefur
Lind Einarsdóttir hjá Talent
Ráðningum, lind@talent.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2015.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um
starfið á heimasíðu Talent Ráðninga, www.talent.is
Iðgjaldafulltrúi
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga óskar eftir að ráða fulltrúa í iðgjaldadeild sjóðsins. Við leitum að öflugum aðila sem er
talnaglöggur og góður í samskiptum. Viðkomandi þarf að vera opinn fyrir nýjungum og með góða skipulagshæfni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðurkenndur bókari eða háskólapróf í viðskiptafræði
• Haldgóð starfsreynsla hjá lífeyrissjóði, í launabókhaldi eða bókhaldi
• Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði í starfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni til að taka saman upplýsingar og greina
Helstu verkefni:
• Móttaka og skráning iðgjalda
• Ráðgjöf og samskipti við launagreiðendur
og sjóðsfélaga
• Mánaðarleg uppgjör iðgjalda
• Innheimta
• Afstemmingar
• Önnur tilfallandi verkefni
Linnetsstígur 1 | 220 Hafnarfjörður | talent@talent.is | Sími 552-1600
Óskum eftir að ráða rafvirkja til starfa.
Fjölbreytt vinna.
Umsóknir sendist á netfangið
rafstodin@simnet.is.
Rafstöðin ehf, Akranesi
Keyrsla.is óskar eftir bílstjórum bæði í sumarafleysingar og
framtíðarstörf. Starfið felur í sér að keyra sendi- og lyftubíla á
höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni ásamt öðrum verkefnum.
Keyrsla.is er með fasta þjónustusamninga við fyrirtæki með
vörudreifingu. Eins veitir keyrsla.is almenna sendibílaþjónustu.
Vinnutími er mismunandi eftir hverjum bíl fyrir sig.
Bæði leitum við eftir starfsmanni í næturvinnu og dagvinnu.
Hæfniskröfur:
- Sjálfstæð vinnubrög
- Hafa metnað í starfi
- Heiðarleiki og góð þjónustulund
- Heilsuhreysti
- Stundvís
- Ökuréttindi B fyrir sendibíla gott að hafa
líka (C1 – C1E) - Ökuréttindi B - C og C1E
fyrir lyftubíla
Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur til 18. maí. Lágmarksaldur umsækjenda er 18 ár.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína á starf@keyrsla.is
Frekari upplýsingar veitir Tómas A. í síma 820-3283
Vantar þig nætur- eða dagvinnu?
Miðstöð meltingarlækninga, Læknastöðinni
Glæsibæ, óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til
starfa frá 1. sept 2015 eða eftir nánara samkomulagi í
allt að 80 % starfshlutfall.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið
laeknastodin@laeknastodin.is fyrir 20.maí nk.
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Ólafsdóttir deildarstjóri á
kristin@laeknastodin.is
Læknastöðin · Álfheimar 74 · 104 Reykjavík
· sími: 5356800 · fax: 5356805
LAUGARDAGUR 9. maí 2015 5