Fréttablaðið - 09.05.2015, Qupperneq 74
FÓLK|HELGIN
Parmaskinka er sérlega góð í ýmsa rétti. Parmaskinka er mikið notuð á Ítalíu í ýmsa
matargerð eða ein sér. Á Spáni
heitir slík hráskinka serrano, og
er sömuleiðis mikið borðuð þar.
Svínakjötið er þurrkað á sér-
stakan hátt og geymt að minnsta
kosti í eitt ár. Einungis héraðið
Parma á Ítalíu má nota nafnið
parmaskinka. Annars staðar á Ít-
alíu kallast hráskinka prosciutto.
Ekki má nota aukefni í þurrkaða
skinku á Ítalíu. Parmaskinku er
hægt að fá í verslunum hér á
landi, einnig spænska Serrano.
BESTA PITSAN
Pitsa með klettasalati og parma-
skinku er mjög vinsæl. Auðvelt
er að gera hana heima. Salatið og
skinkan er sett á pitsuna þegar
hún kemur úr ofninum.
PITSADEIG
340 g hveiti
1 tsk. salt
1 ½ tsk. þurrger
200 ml volgt vatn
3 msk. ólífuolía
Sigtið hveiti í hrærivélarskál
með salti og olíu. Hrærið aðeins.
Bætið þá þurrgeri í miðju deigs-
ins og vatninu, ekki öllu í einu.
Hnoðið vel saman og bætið vatni
eftir því sem þarf.
Breiðið plastfilmu yfir skál-
ina og látið deigið hefast í að
minnsta kosti 60 mínútur.
Þá er deigið mótað í pitsu og
lagt á vel smurða bökunarplötu.
Hitið ofninn í 220°C. Setjið pitsu-
sósu yfir deigið og rifinn ost.
Bakið í 15-20 mínútur.
Látið mesta hitann rjúka að-
eins úr pitsunni áður en kletta-
salati er dreift yfir og síðan
parmaskinkunni. Gott er að
setja ferskan mozzarellaost yfir í
litlum bitum og væta síðan með
góðri ólífuolíu.
SANNKÖLLUÐ VEISLA
Það er hægt að setja upp girni-
legan bakka með áleggi, ostum
og ávöxtum. Með góðu brauði
þarf enginn að fara svangur frá
slíku borði. Ef brauðið er útbúið
eins og Frakkar gera verður það
matarmeira. Hér kemur uppskrift
að því.
Það sem þarf:
SNITTUBRAUÐ
6 egg
2 ½ dl mjólk
25 g parmesanostur
½ tsk. dijonsinnep
½ tsk. salt
smávegis nýmalaður pipar
1 tsk. tabascosósa
2 msk. smjör
Hitið ofninn í 125°C. Þeytið
saman egg, mjólk, parmesan,
sinnep, salt, pipar og tabasco.
Dýfið brauðsneiðum í blönduna
og steikið á báðum hliðum upp
úr smjöri.
Gott er að setja steikta brauð-
ið á bökunarpappír á ofnplötu og
geyma í heitum ofnum þar til allt
brauðið er steikt.
4 tómatar, skornir í litla bita
2 msk. hökkuð steinselja
2 msk. ólífuolía
salt og pipar
200 g parmaskinka
Blandið öllu saman.
Berið brauðið á borð með tóm-
atasalatinu og parmaskinkunni.
PASTA CARBONARA
Pasta carbonara er góður og
klassískur ítalskur réttur. Beikon
er venjulega í þessum rétti en
vel má nota hráskinku í staðinn.
Uppskriftin miðast við fjóra.
400 g spagettí
OSTASÓSA
4 egg
1 ½ dl rjómi (eða matvinnslu-
rjómi)
4 msk. rifinn parmesanostur
ÞAÐ SEM FER Í RÉTTINN:
200 g hráskinka (eða beikon)
½ laukur, hakkaður
4 msk. steinselja, gróft hökkuð
nýmalaður pipar
Sjóðið pasta eftir leiðbeining-
um á umbúðum.
Ef notað er beikon er það
brúnað á pönnu. Mjög mikil-
vægt er að útbúa sósuna á
meðan pastað er soðið þar sem
það verður að vera brennheitt
þegar blandan er sett saman
við. Þeytið saman egg, rjóma
og parmesan. Sumir gera þetta
undir vægum hita í örlitla
stund. Eggin mega þó ekki
skilja sig. Stundum er gott að
setja örlítið pastavatn saman
við. Setjið spagettí í skál og
hrærið blönduna strax saman
við. Bætið lauk og beikoni eða
hráskinku út í. Dreifið steinselju
yfir. Má líka nota basil. Malið
pipar yfir.
SALAT MEÐ DJÚPSTEIKTUM
GEITA OSTI, PERUM OG HRÁ-
SKINKU
Þetta salat er víða þekkt á fínum
bístróveitingahúsum. Frábærlega
góður réttur. Uppskriftin miðast
við fjóra.
GEITAOSTARÚLLA
1 bolli gott brauðrasp
1 msk. steinselja, smátt söxuð
1 tsk. sinnep
salt og nýmalaður pipar
1 stórt egg
2 msk. sérríedik
1 ½ tsk. hlynsíróp
¼ bolli hnetuolía
blandað salat
rauð vínber
ristaðar hnetur
grænmetisolía til steikingar
Skerið ostinn í fjórar góðar
sneiðar. Setjið í frysti í 10 mín-
útur. Blandið því næst saman
brauðraspi, steinselju, sinnepi,
salti og pipar. Setjið síðan egg
ásamt einni matskeið af vatni í
aðra skál og þeytið örlítið.
Setjið hverja ostsneið í eggið
og veltið síðan upp úr brauð-
raspinu. Þetta er gert tvisvar við
hverja sneið.
Hitið grænmetisolíu í potti.
Djúpsteikið ostinn í 3-4 mínútur.
Setjið á eldhúspappír.
Blandið saman ediki, hlyn-
sírópi, salti og pipar og hrærið
vel saman. Bætið loks hnetuolíu
saman við.
Setjið blandað salat á hvern
disk. Setjið ost í miðju sal atsins
og dreifið hnetunum í kring.
Hnetuolíudressing er höfð til
hliðar.
Gott er að bæta peru eða
eplum við þennan rétt.
elin@365.is
HUGMYNDIR AÐ
MAT Í VERKFALLI
MATARGLEÐI Margir velta því eflaust fyrir sér hvað eigi að elda þegar nær
allt kjöt er að klárast í verslunum. Það þarf hins vegar ekki alltaf að vera stór-
steik í matinn. Vel má nærast á öðrum hlutum. Hér eru nokkrar hugmyndir.
PITSA Ljúffeng pitsa með klettasalati og
hráskinku.
PARMASKINKA Hægt er að nota
parmaskinku á margvíslegan hátt í matar-
gerðinni.
CARBONARA Pasta er alltaf gott og það
þarf ekkert endilega að vera kjöt í því.
SALAT MEÐ GEITAOSTI Geitaostur er
ótrúlega góður í salatið.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Ég mæli með því að konur velji
náttúrulegu leiðina gegn þrálátum
sýkingum og sem forvörn
Valbjörg Þórðardóttir
hjúkrunarfræðingur
“
Gegn sveppasýkingu,bakteríusýkingu
og þvagfærasýkingu
”
LIFÐU
í NÚLLINU!
Til hvers að flækja hlutina?
365.is | Sími 1817