Fréttablaðið - 09.05.2015, Page 82

Fréttablaðið - 09.05.2015, Page 82
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 42 TEIKNAR ÞÚ FLOTTAR MYNDIR? Sendu okkur myndina þína í pósti til Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is Bragi Halldórsson 147 „Jæja þá, sudoku gáta,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að leysa sudoku að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa hana,“ bætti hún við. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“ sagði hann. „Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg til í keppni. „Við glímum öll við hana og þá kemur í ljós hversu klár þú ert orðin,“ sagði hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En ég vara ykkur við, ég er orðin mjög klár,“ sagði hún montin. Heldur þú að þú getir leyst þessa sudoku gátu hraðar en Kata? 7 4 6 2 4 2 8 5 7 8 7 2 1 3 1 6 7 8 9 9 5 1 2 8 4 6 9 7 1 5 7 6 4 2 4 5 7 3 2 8 3 9 6 Brandarar Hvað sagði fáninn við hinn fánann? Ekkert, hann veifaði bara. Hvers vegna spurði apinn gíraffann af hverju hann væri með svona langt andlit? Því hann hélt að hálsinn væri andlitið hans. Hvað sagði 0 við 8? Mikið ertu með flott belti. Hvaða trjátegund er algengust við Mývatn? Mígreni. Af hverju kom fór strákurinn með stiga í skólann? Af því að hann langaði að fara í háskóla. Magnús Atlason, 7 ára teiknaði þessa mynd fyrir Fréttablaðið. KRÚTTLEGT Nýfædda lambið fær blíðar móttökur hjá börnunum á leikskólanum Laugasól. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Þessa dagana er mikið um að vera í Húsdýragarðinum þar sem sauðburður stendur sem hæst. Einnig eru komnir litlir kiðlingar, grísir og kanínuung- ar. Jón Gíslason, yfirdýrahirðir Húsdýragarðsins, sagði okkur allt um nýja ungviðið í garð- inum. Hvað eru margir kiðlingar og lömb? Kiðlingarnir eru þrettán og af þeim eru tólf hafrar og ein huðna. Ætli lömbin verði ekki um níu. Svo eru hér fjórir litlir grísir og kanínuungar. Svo koma selkópar í byrjun júní. Hvernig gengur það fyrir sig þegar þau eru að fæðast? Við erum allan daginn og nætur- vörður sem fylgist með á nótt- unni. Þau eru fyrstu dagana ein með móður sinni. Er alltaf einhver að hugsa um þau? Það eru alltaf næturverðir sem passa dýrin. Fá dýrin nöfn? Nei, við höfum yfirleitt ekki nefnt þau nema þau sem eru alltaf hjá okkur. Mega þau fara strax út eða verða þau að vera inni? Þau fara út á hverjum degi og núna eru allar geiturnar komnar saman í einn hóp og kiðling- arnir eru að skoppa um. Það er mikið líf og fjör hjá okkur núna og þetta er alltaf frábær árstími, vorið. Hvað borða dýrin? Þau fá eins mikið hey og þau geta étið en við gefum þeim líka fóður frá okkur svo mæðurnar mjólki vel. Og þegar er komið nóg gras úti þá bíta þau grasið þegar þau eru úti yfir daginn. Líf hjá ungviðinu í Húsdýragarðinum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.