Fréttablaðið - 09.05.2015, Síða 90
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 50
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
LÁRUS JÓHANNSSON
Kirkjuvegi 31,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 5. maí. Útförin fer fram frá
Selfosskirkju þriðjudaginn 12. maí kl. 13.30.
Sigríður Sveinsdóttir
Elín Arndís Lárusdóttir Guðmundur Jósefsson
Jónína Lárusdóttir Sigurður Traustason
Sveinn E. Lárusson Guðbjörg Eiríksdóttir
Jóhanna Lárusdóttir
Ásmundur Lárusson Matthildur E. Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar,
JÓNATHAN SVEINBJÖRN ÁRNASON
lést í svefni á heimili sínu í Höganäs í Svíþjóð
18. apríl.
„Guð er meiri en hjarta vort og þekkir alla
hluti.“ 1. Jóhannesarbréf 3:20.
Minningarathöfn hefur verið haldin innan fjölskyldunnar.
Árni Sveinbjörnsson
Marianne Lindkvist Sveinbjörnsson
vinir og ættingjar.
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
VALDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR
andaðist á Ísafold, hjúkrunarheimili,
þriðjudaginn 5. maí. Útför hennar fer fram frá
Vídalínskirkju í Garðabæ miðvikudaginn
20. maí kl. 13.00.
Friðrik Ingvar Friðriksson Þuríður Sigurðardóttir
Guðjón Erling Friðriksson Fanney Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín, mágkona og frænka,
MARGRÉT RÚN
SIGURMUNDSDÓTTIR
Flókagötu 60, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans 4. maí.
Úlfur Sigurmundsson og Sigríður Pétursdóttir
Halla Steingrímsdóttir
og bræðrabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför okkar ástkæra
föður, tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS ÞÓRÐARSONAR
Hólavegi 17, Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir færum við nágrönnum hans
og starfsfólki við Heilbrigðisstofnunina á
Sauðárkróki fyrir aðstoð og umhyggju sem hann naut.
Anna Kristín Gunnarsdóttir Sigurður Jónsson
Birna Þóra Gunnarsdóttir Sölvi Karlsson
Fríður Finna Sigurðardóttir Jón Rafnar Benjamínsson
Gunnar Sigurðsson Ásdís Nordal Snævarr
Kristín Una Sigurðardóttir
Sigyn Björk Sigurðardóttir
Gunnar Karl Sölvason
Þórður Sölvason
Ingibjörn Sölvason
og langafabörnin Emelía Rut, Bera og Anna Gunnhildur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður og tengdaföður,
ÞÓRHALLS HALLDÓRSSONAR
frá Arngerðareyri,
Árskógum 6, Reykjavík.
Sigrún Sturludóttir
dætur og tengdasynir.
Elskuleg föðursystir okkar,
HALLDÓRA INGIBJÖRNSDÓTTIR
kennari
frá Flankastöðum,
er látin. Útför hennar fer fram frá Útskálakirkju
mánudaginn 11. maí kl. 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ingvar Björn Ólafsson
Jón Árni Ólafsson
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
VALGERÐUR STEFÁNSDÓTTIR
Sóleyjarima 3,
lést að morgni 7. maí.
Vilhjálmur Árnason
Helga Vilhjálmsdóttir Sigurjón Gunnarsson
Gunnar Snorri Valdimarsson Jill Gideon
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við
andlát og útför móður okkar,
STEINUNNAR JÓNSDÓTTUR
frá Flateyri,
sem lést 16. mars.
Guðrún Nanna Guðmundsdóttir
Jón Guðmundsson
Ágústa Guðmundsdóttir
Eyjólfur Guðmundsson
Greta S. Guðmundsdóttir
Svanhildur Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri
BJÖRN GUNNAR ÞORLEIFSSON
lést á heimili sínu í Sviss þriðjudaginn
14. apríl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni,
mánudaginn 11. maí kl. 13.00.
Arnar Breki Helgason
Camilla Guðbjörg Thim
Evamarie Else Bauer
Þorleifur Júlíus Matthíasson Nang Matthíasson
Matthías Þorleifsson
Andri Þorleifsson Anna Lilja Marshall
Hrönn Fanndal Magnús Jónasson
Tómas Matthias
og systkinabörn.
Styrktarfélagið Göngum saman efnir
til árlegrar vorgöngu á morgun, mæðra-
daginn, en gengið verður á fimmtán
stöðum um land allt.
„Þetta er í áttunda skipti sem svona
stór ganga er haldin um land allt,“ segir
Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður
Göngum saman, glöð í bragði.
Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki
gefst kostur á að styrkja rannsóknir
á brjóstakrabbameini með frjálsum
framlögum og hægt verður að kaupa
varning frá Göngum saman, meðal
annars boli og höfuðklúta hannaða af
Guðmundi Jörundssyni og fjölnota inn-
kaupapoka sem hannaðir eru af Sigur-
borgu Stefánsdóttur.
„Við söfnum fé í rannsóknir á brjósta-
krabbameini og göngurnar eru bæði
notaðar til þess að vekja athygli á mál-
staðnum og líka bara á göngum sem leið
til heilsueflingar,“ segir hún en Göng-
um saman er grasrótarfélag og renna
öll framlög óskipt í styrktarsjóð félags-
ins.
„Við erum búnar að styrkja íslenska
vísindamenn um fimmtíu milljónir frá
árinu 2007 og við stefnum að því að veita
10 milljónir í haust, það er á stefnunni í
október sem er mánuður sem er helgað-
ur baráttunni við brjóstakrabbamein.“
Gunnhildur segir gönguna henta allri
fjölskyldunni. Í Reykjavík verður geng-
ið frá Háskólatorgi þar sem göngufólki
gefst kostur á að spjalla við vísinda-
menn en gengið verður um miðbæinn.
„Á Háskólatorgi gefst fólki tæki-
færi á að hitta þá vísindamenn sem við
höfum stutt og fræðast um rannsókn-
irnar,“ segir Gunnhildur en ekki verð-
ur um skipulagða fyrirlestra að ræða
heldur óformlegt spjall þar sem gest-
ir eiga kost á að fræðast og fá svör við
spurningum.
„Nú bara hugsar maður við búum á
Íslandi og það er ekkert sérstaklega
hlýtt úti en maður bara klæðir sig eftir
veðri og tekur þátt í göngunni,“ segir
Gunnhildur hress og hvetur sem allra
flesta til að taka þátt.
Landssamband bakarameistara tekur
einnig þátt í fimmta skipti og í bakarí-
um landsins má finna brjóstabollur
en hluti af andvirði sölunnar rennur
í styrktarsjóðinn. Göngurnar hefjast
allar klukkan 11.00 og gengið verður í
Reykjavík, Borgarnesi, Stykkishólmi,
Patreksfirði, Ísafirði, Hvammstanga,
Siglufirði, Akureyri, Vopnafirði, Egils-
stöðum, Neskaupstað, Fáskrúðsfirði,
Höfn, Vestmannaeyjum og Selfossi.
Nánari upplýsingar um hvern stað er
hægt að nálgast á vefsíðu félagsins,
gongumsaman.is.
gydaloa@frettabladid.is
Fimmtán staðir taka
þátt í Göngum saman
Árleg vorganga styrktarfélagsins Göngum saman verður á morgun. Gengið verður á
fi mmtán stöðum víðsvegar um landið og bakarí selja brjóstabollur um helgina.
GÖNGUM SAMAN Gunnhildur Óskarsdóttir, formaður Göngum saman, hvetur alla til að klæða sig eftir veðri og ganga með félaginu á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Við söfnum fé í rann-
sóknir á brjóstakrabbameini
og göngurnar eru bæði
notaðar til þess að vekja
athygli á málstaðnum og
líka bara á göngum sem leið
til heilsueflingar