Fréttablaðið - 09.05.2015, Side 96
9. maí 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 56
Skjaldborgarhátíðin verður hald-
in dagana 22.-25. maí í Skjald-
borgarbíói á Patreksfirði í 9. sinn.
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson
kvikmyndaleikstjóri, einn af upp-
hafsmönnum hátíðarinnar, segir
að það hafi verið magnað að fylgj-
ast með Skjaldborgarhátíðinni vaxa
fiskur um hrygg á þessum níu árum.
„Það vantaði í rauninni vett-
vang fyrir hátíð af þessu tagi og
þá var það Hálfdán Pedersen sem
datt niður á þetta frábæra hús sem
Skjaldborgarbíó er. Þar eru reynd-
ar bíósýningar vikulega sem er frá-
bært en nú er þetta líka heimavöllur
þessarar kvikmyndahátíðar. Fljót-
lega eftir að við byrjuðum að vinna
að þessu gengu heimamenn í lið með
okkur og það er alveg ljóst að þetta
hefði aldrei gengið án þeirra.“
Skjaldborgarhátíðin er orðin
mjög eftirsótt fyrir íslenska heim-
ildarmyndagerð og segir Hafsteinn
Gunnar að staðan sé nú orðin þann-
ig að það sé því miður ekki hægt að
koma öllum að. „Það er gríðarleg
gróska í íslenskri heimildarmynda-
gerð. Við höfum frá upphafi farið
þá leið að vera aðeins með íslenskar
myndir og frá öðru ári hátíðarinn-
ar hefur verið einn flottur erlendur
gestur sem kemur og sýnir kannski
tvær til þrjár af sínum myndum.
Kvennahátíð í ár
Í ár verða frumsýndar 16 glænýjar,
íslenskar heimildarmyndir og sýnt
úr fjórum myndum á vinnslustigi.
Heiðursgestirnir að þessu sinni
koma frá Danmörku og eru meðal
stofnenda og eigenda Danish Docu-
mentary sem er leiðandi á heims-
vísu á sviði skapandi heimildar-
mynda. Fyrirtækið hefur framleitt
yfir tuttugu heimildarmyndir sem
eru margar hverjar margverðlaun-
aðar en leikstýran Eval Mulvad
hefur t.a.m. unnið aðalverðlaun á
Sundance, IDFA og Karlovy Vary,
en heimildarmynd hennar The Good
Life verður opnunarmynd hátíðar-
innar í ár.“
Hafsteinn Gunnar bendir á að
dagskráin sé sérlega fjölbreytt í ár
og ánægjulegt hversu margar konur
eiga myndir á hátíðinni.
„Þá eru konur og kvennabarátta
áberandi og í því samhengi mætti
nefna Jóhanna: Síðasta orrustan
eftir Björn B. Björnsson. Halla
Kristín Einarsdóttir frumsýnir
Hvað er svona merkilegt við það?
Framhald heimildarmyndarinnar
Konur á rauðum sokkum sem hlaut
aðalverðlaun hátíðarinnar 2009.
Einnig verða frumsýndar mynd-
ir eftir Þórunni Hafstað, Jóhann
Jóhannsson, Kristján Loðmfjörð,
Huldar Breiðfjörð, Helenu Stefáns-
dóttur, Þór Ómar Jónsson o.fl. Dag-
skránni verður svo lokað með heim-
ildarmyndinni Finndið eftir Ragnar
Hansson og uppistandi með Hug-
leiki Dagssyni, en Finndið segir frá
ferð frændanna Hugleiks og Ara
Eldjárn á uppistandshátíð í Turku í
Finnlandi.“
Að vinna Einarinn
Skjaldborgarhátíðin er nokkuð sér-
stök á meðal kvikmyndahátíða fyrir
þær sakir að einungis ein verðlaun
eru veitt á hátíðinni og eru það
áhorfendaverðlaun. „Það er til mik-
ils að vinna Einarinn en svo kall-
ast áhorfendaverðlaun hátíðarinn-
ar. Verðlaunin eru hönnuð af Einari
Skarphéðinssyni, smíðakennara
á Patreksfirði, sem er mikill lista-
smiður. Kvikmyndin Salóme hlaut
þessi verðlaun á síðasta ári og frá
Patreksfirði fór hún á Nordisk Pan-
orama-hátíðina þar sem hún vann
einnig til fyrstu verðlauna.“
Frjálst og opið form
Hafsteinn Gunnar segist alltaf hafa
haft mikinn áhuga á þessu formi
kvikmynda. „Þetta form er í raun
mun frjálsara og opnara en hin
hefðbundna kvikmynd og maður
verður fyrir ákaflega miklum
áhrifum sem kvikmyndagerðar-
maður af því að horfa á heimildar-
myndir. Mike Leigh sagði eitthvað
í þá veru að maður þyrfti að gæta
þess að hafa smá af heimildarmynd
í skálduðu myndinni og öfugt – ég
held það sé ansi mikið til í því.
Svo má geta þess að það er allt-
af gríðarlega góð stemning og
mikið gaman á Skjaldborgarhátíð-
inni, enda Patró nafli alheimsins
í heimildarmyndagerð um hvíta-
sunnuhátíðina. Auk kvikmyndanna
þá er líka fullt af skemmtilegum
viðburðum á borð við plokkarann,
fiskiveisluna í Sjóræningjahúsinu
og hið löðrandi hressa dansiball er á
sínum stað. Þannig að nú er bara að
skella sér vestur á Patró um hvíta-
sunnuhelgina.“ magnus@frettabladid.is
Patró nafl i heimsins
Skjaldborgarhátíðin, hátíð íslenskra heimildarmynda, verður að vanda á Patreks-
fi rði um hvítasunnuhelgina og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, einn af upphafs-
mönnum hátíðarinnar, segir hana aldrei hafa verið eins eft irsótta og glæsilega.
FRUMKVÖÐULL Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndaleikstjóri er einn af upphafsmönnum Skjaldborgarhátíðarinnar á
Patreksfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Lífeyrissjóður starfsmanna
Reykjavíkurborgar
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar
verður haldinn miðvikudaginn 27. maí kl. 16.00
í húsakynnum BSRB, Grettisgötu 89, Reykjavík.
Allir sjóðsfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi
stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og
tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
Reykjavík, 5. maí 2015
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar
Dagskrá
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
2. Önnur mál löglega upp borin
Yfirlit yfir afkomu árins 2014
Efnahagsreikningur 2014 2013
Breyting á hreinni eign 2014 2013
Kennitölur 2014 2013
Starfsemi sjóðsins á árinu
Starfsemi sjóðsins var með hefðbundnum hætti á árinu 2014. Rekstrarkostn-
aður ársins 2014 var 75,3 m.kr. en var 70,4 m.kr. á árinu 2013 og var
kostnaðurinn um 0,1% af hreinni eign í árslok. Fjárfestingagjöld námu um
101,7 m.kr. en 99,3 m.kr. árið á undan. Enginn starfsmaður var á launaskrá
hjá sjóðnum, en Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga hefur frá 1. júní
1999 annast daglegan rekstur sjóðsins.
Sjóðsfélagar
Á árinu 1998 var sjóðnum lokað fyrir nýjum sjóðsfélögum. Þeim einum sem
greiddu til sjóðsins á þeim tíma er heimilt að greiða áfram til hans, enda hafi
iðgjald verið greitt til sjóðsins óslitið frá þeim tíma. Þetta eru þeir sem
greiddu iðgjöld vegna starfa hjá Reykjavíkurborg, stofnunum borgarinnar,
sjálfseignastofnunum eða félögum skrásettum í Reykjavík sem sveitar-
félagið á aðild að og voru iðgjaldaskyldir til sjóðsins.
Ársfundur 2015
Í stjórn sjóðsins eru: Björk Vilhelmsdóttir, formaður, Ása Clausen,
Heiðar Ingi Svansson, Hildur Sverrisdóttir og Þorgrímur Hallgrímsson.
Framkvæmdastjóri er: Gerður Guðjónsdóttir.
Verbréf með breytilegum tekjum 6.965.516.393 6.083.221.044
Verðbréf með föstum tekjum 59.447.017.653 57.949.188.656
Veðskuldabréf 697.577.217 908.270.146
Bankainnistæður 407.813.241 768.775.503
Kröfur 261.574.639 58.091.334
Aðrar eignir 356.759.829 171.477.232
Skuldir (59.287.354) (104.441.267)
Hrein eign til greiðslu lífeyris 68.076.971.618 65.834.582.648
Iðgjöld 2.048.809.816 1.901.414.603
Lífeyrir (3.211.977.342) (2.928.971.761)
Fjárfestingatekjur 3.582.623.031 5.107.562.822
Fjárfestingagjöld (101.739.568) (99.343.019)
Rekstrarkostnaður (75.326.967) (70.449.070)
Aðrar tekjur 0 0
Hækkun á hreinni eign á árinu 2.242.388.970 3.910.213.575
Hrein eign frá fyrra ári 65.834.582.648 61.924.369.073
Hrein eign til greiðslu lífeyris 68.076.971.618 65.834.582.648
Nafnávöxtun 5,2% 8,0%
Raunávöxtun 4,1% 4,2%
Raunávöxtun 5 ára meðaltal 3,5% 3,4%
Skuldir umfram áfallnar skuldbindingar -18,7 -17,8
Fjöldi sjóðsfélaga 562 613
Fjöldi lífeyrisþega 3109 3027
Til hvers að flækja hlutina?
365.is | Sími 1817
SJÁLFKRAFA
í BESTA ÞREP!
Boðið er til evrópskrar alþýðutón-
listarveislu í Hörpu á sunnudags-
kvöldið. Aðgangur er ókeypis en
miðapantanir á harpa.is og í miða-
sölu Hörpu. Fram koma íslenska
Balkansveitin Skuggamyndir frá
Býsans ásamt hljómsveitinni Full-
Set frá Írlandi sem er ein sú allra
vinsælasta á sviði þjóðlagatón-
listar.
Sérstakur gestur er söngkonan
Ragnheiður Gröndal og tónleika-
stjóri og kynnir Guðni Franzson.
Á tónleikunum verður flutt
sérlega fjölbreytt og skemmti-
leg alþýðutónlist frá Austur- og
Vestur-Evrópu. Skuggamyndir frá
Býsans er íslenskum tónlistarunn-
endum að góðu kunn fyrir tónlist
sem ólgar af tilfinningahita í bland
við austurlenska dulúð. FullSet er
að verða ein vinsælasta hljómsveit
alþýðutónlistar á Írlandi. Tónlist
hennar er fjörug og skemmtileg
og hefur hljómsveitin hlotið fjölda
verðlauna og er eftirsótt til tón-
leikahalds.
- mg
Þegar hjörtun slá í þjóðlagatakt
Það er öllum boðið til evrópskrar þjóðlagaveislu í Hörpu á sunnudagskvöld
ÞJÓÐLAGAFJÖR FullSet frá Írlandi
spilar í Hörpu á sunnudagskvöldið.
MENNING