Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 10

Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 10
„Tilraunin með ohf.-fyrirbærinu er sú að reyna að líkja eftir því fyrirkomu- lagi sem er á einkamarkaði. Ríkisút- varpið á ekki að reyna að líkja eftir því. Það á ekki að reyna að lúta þeim lögmálum sem rekstur annarra fjöl- miðla lýtur,“ segir Illugi Gunnars- son, mennta- og menningarmála- ráðherra. Þetta var meðal þess sem fram kom í Föstudagsviðtali Frétta- blaðsins sem hlusta má á í heild sinni inni á Vísir.is. Þar ræddi Illugi meðal annars tengsl sín við Orku Energy og samskiptin við fjölmiðla. Hann minnist á deilur um skipan stjórnar RÚV eftir síðustu kosningar. „Það stóð til að breyta því hvernig stjórnin yrði skipuð. Hagsmuna- samtök úti í bæ áttu að eiga fulltrúa í stjórn og annað slíkt. Ég var þeirrar skoðunar að eini aðilinn sem ætti að skipa fólk í þá stjórn væri Alþingi. Ábyrgðin væri stjórnmálamann- anna. Og þeir væru kosnir og hefðu ábyrgð gagnvart kjósendum, fólkinu sem borgar þetta með skylduáskrift.“ Framlagið skiptir ekki öllu Illugi segir að RÚV eigi ekki að vera í samkeppni við aðra miðla á aug- lýsingamarkaði. „Það er vaxandi vandamál. Það sem er að gerast á fjölmiðlamarkaðinum er að dreifing á efni er að verða önnur en hún var. Sjáið fyrirbæri eins og Netflix sem er að koma á markaðinn. Ég spái því að stóru breytingarnar verði þegar fyrirbæri eins og Facebook og Google fara að verða efnisveitur af alvöru. Þá held ég að það muni þróast þannig að það verði komið framboð af efni sem er miklu meira en við þekkjum í dag. Þá er spurning hver verði staða Ríkisútvarpsins í því samhengi. Ég held að það sé miklu stærri spurning sem við verðum að fást við og ræða heldur en kannski akkúrat hvort framlagið til RÚV sé þessum milljónum hærra eða lægra.“ Hann segist þó þeirrar skoðunar að enn sé þörf á almannaútvarpi og -sjónvarpi, einkum -útvarpi. „Ég held að þessi þróun muni hafa þau áhrif að kaup Ríkisútvarpsins á til dæmis erlendu afþreyingarefni hljóta að dragast fljótt saman. Ég get ekki ímyndað mér að það geti verið hlut- verk Ríkisútvarpsins að bjóða upp á slíkt. Það er augljóst hvað mun gerast, línulegt áhorf svokallað, þar sem fólk sest niður þegar það ætlar að horfa á eitthvað, fer minnkandi og mun fara hratt minnkandi á næstu árum.“ Hann heldur áfram: „Þá finnst mér að Ríkisútvarpið eigi að sinna frekar því hlutverki að búa til íslenskt efni. Það er kjarnahlutverk Ríkisútvarps.“ Hann segir að einnig megi velta fyrir sér fréttastofunni. „Það má benda á að magn af fréttum í dag er margfalt meira en var fyrir örfáum árum. Aðgengi okkar að erlendum fréttamiðlum er allt annað og meira en áður var. Eins líka eru möguleikar til þess að koma á framfæri skoðun- um orðnir aðrir en var hér þegar eina leiðin var í gegnum Ríkis útvarpið og flokksmálgögn. Nú geta allir komið sínum skoðunum fram með marg- víslegum hætti. Ég held að þessar breytingar séu það sem við þurfum að ræða.“ Hann segir alltaf hafa verið miklar pólitískar deilur um RÚV. „En ég ætla að leyfa mér að hafa þá von í brjósti að við getum rætt um framtíðina án þess að lenda strax í skotgröfum.“ Illugi segir RÚV taka of mikið pláss á auglýsingamarkaði. Láti ríkisframlag sér nægja „Dagskrárgerðin endurspeglar það. Að menn séu að horfa eftir áhorfinu til þess að geta náð sér í auglýsinga- tekjurnar. Á síðasta kjörtímabili horfði maður á hlutfall auglýsinga- tekna og síðan ríkisframlagsins, hlutfall auglýsingatekna hækkaði töluvert. Það er ekki jákvætt. Spurn- ingin sem menn standa frammi fyrir er hvort fólk sé tilbúið til að halda RÚV í sama umfangi, en taka það út af auglýsingamarkaði. Bæta við frá skattgreiðendum því sem munar. Geta menn séð fyrir sér að RÚV þyrfti að færa rekstur sinn niður í bara ríkisframlagið? Ég vil gjarnan sjá þá þróun.“ Illugi vill sjá minna af rekstrarfé RÚV koma frá auglýsingum. „Ég held að við hljótum öll að geta verið sam- mála um það. Ég tel að RÚV eigi ekki að vera í samkeppni við einkaaðila um efni.“ Breytist mikið á næstu árum? „Við skulum bíða niðurstöðu nefndar sem sett var á laggirnar í vor og er að skoða rekstur og rekstrar- umhverfi RÚV. Þar mun væntan- lega koma fram einhver mynd á það hvernig við höfum komist á þennan stað sem við erum á í dag í rekstrin- um. Ég held að í framhaldinu þurfum við að efna til þessa samtals um hvert við viljum stefna.“ RÚV eigi ekki að keppa við aðra miðla Illugi Gunnarsson segir Ríkisútvarpið taka of stórt pláss á auglýsingamarkaði. RÚV eigi ekki að líkja eftir fyrirtækjum á einkamarkaði. Illugi segir hljóta að draga úr kaupum RÚV á erlendu afþreyingarefni. Fréttablaðið/Anton Brink Geta menn séð fyrir sér að RÚV þyrfti að færa rekstur sinn niður í bara ríkisframlagið? Ég vil gjarnan sjá þá þróun. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra ROKIÐ REYNIST VEL Nú hafa vindmyllur Biokraft í Þykkvabæ snúist í heilt ár með frábærum árangri. Á tímabilinu október 2014 - sep- tember 2015 framleiddu vindmyllurnar 4.425 MWh. af rafmagni. Meðalnýtingin er 42,1% en til samanburðar er meðalnýting á heimsvísu á bilinu 28-30%. Þessi raforka dugar til að: • knýja 920 heimili árlega • keyra rafbíl 610 sinnum umhverfi s jörðina • fullhlaða nýjustu rafhlöðu iPhone 6s í 423.000.000 skipti! ORKA NÁTTÚRUNNAR Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is Orka náttúrunnar er annað stærsta orkufyrirtæki landsins. Fyrirtækið byggir á mikilli þekkingu og reynslu í orkuvinnslu. Leiðarljós okkar er að bjóða rafmagn á samkeppnishæfu verði til allra landsmanna. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Viktoría Hermannsdóttir viktoriah@365.is 1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.