Fréttablaðið - 10.10.2015, Side 24
Fótbolti Íslenska landsliðið verður
án fyrirliða síns á móti Lettum í
Laugardalnum í kvöld þegar liðið
spilar síðasta heimaleik sinn í
undankeppni EM 2016. Aron Einar
Gunnarsson fékk rauða spjaldið í lok
síðasta leik liðsins á móti Kasakstan
og tekur út leikbann í dag.
Íslenska landsliðið hefur ekki
tapað á heimavelli í undankeppni
síðan í júní 2013 og í raun aðeins
tapað tveimur alvöruleikjum síðan
Lars Lagerbäck tók við liðinu. Báðir
leikirnir eiga það sameiginlegt að
liðið var án Arons Einars annað
hvort allan eða stóran hluta leiksins.
Í tapinu á móti Slóvenum í Laugar-
dalnum 7. júní fór Aron Einar af
velli eftir að hafa farið úr axlar-
lið eftir 50 mínútna leik. Þá var
staðan 2-2 en íslenska liðið tap-
aði síðustu 40 mínútum leiks-
ins 2-0 og þar með leiknum 4-2.
Haustið áður hafði íslenska liðið
spilað án Arons Einars á móti Sviss
og þrátt fyrir góða frammistöðu
þurfti liðið að sætta sig við 2-0 tap
á móti verðandi öruggum sigurveg-
urum riðilsins.
„Það hafa allir séð að Aron
hefur verið að spila vel í þessari
undankeppni. Það væri alltaf
best að geta valið úr öllum leik-
mannahópnum. Ég segi alltaf,
ekki horfa á vandamálin heldur
einblínið frekar á lausnirnar,“
sagði Lars Lagerbäck um fjarveru
Arons á blaðamannafundi í gær.
„Ég vona það að við getum sýnt
það á móti Lettlandi að við getum
fundið góðan mann fyrir hann.
Aron hefur samt spilað virkilega
vel og hann kemur með mikilvægt
jafnvægi inn í liðið. Menn þurfa
að spila marga leiki með liðinu
til að ná valdi á slíku hlutverki
sem og að spila fyrir liðið og lesa
leikinn vel. Þetta er því vissu-
lega ekki auðveldasta staðan
til að fylla,“ sagði Lagerbäck.
Það er hægt að taka undir þau
orð.
Ísland vann síðast keppnis-
leik án Arons Einars fyrir rúmum
fjórum árum þegar liðið vann 1-0
sigur á Kýpur í Laugardalnum í
byrjun september 2011. Líklegast
er að Emil Hallfreðsson komi inn á
miðjuna við hlið Gylfa Þórs Sigurðs-
sonar. – óój
Í dag
olís-deild karla
Haukar ÍR 38-23
Markahæstir: Tjörvi Þorgeirsson 10, Janus
Daði Smárason 9/2, Heimir Óli Heimisson
5, Einar Pétur Pétursson 4 - Arnar Birkir
Hálfdánsson 9, Bjarni Fritzson 4.
Haukar unnu afar öruggan sigur
og náðu toppsætinu aftur af
Valsmönnum. Haukaliðið hefur
unnið 6 af fyrstu 7 leikjum sínum.
16.00 Kasakstan - Holland Sport
16.00 Aserbaísjan - Ítalía Sport 3
16.00 Noregur - Malta Sport 2
18.45 Tékkland - Tyrkland Sport
18.45 Bosnía - Wales Sport 2
18.45 Króatía - Búlgaría Sport 3
21.45 Ísland - Lettland (e.) Sport
01.30 Presidents Cup Golfstöðin
10.30 Formúla 1 Sport
15.00 PSG - Zagreb Sport
16.00 Serbía - Portúgal Sport 3
16.00 Færeyjar - Rúmenía Sport 4
16.00 Finnland - N-Írland Sport 2
18.45 Þýskaland - Georgía Sport 4
18.45 Pólland - Írland Sport 3
18.45 Gíbraltar - Skotland Sport 2
20.00 Cowboys - Patriots Sport
10.30 Formúla 1 Sport
16.00 Ísland - Þýskaland Vodafone
17.00 KR - Stjarnan Stykkishólmur
19.15 Snæfell - Grindavík Stykkish.
Nýjast
Klopp Kynntur til leiKs
Þjóðverjinn Jürgen Klopp var í gær
kynntur til leiks á Anfield sem nýr
knattspyrnustjóri Liverpool. Klopp
fór á kostum á blaðamannafundi þar
sem hann lýsti sjálfum sér sem hin-
um venjulega. „Ég er bara venjulegur
maður frá Svartaskógi í Þýskalandi.
Ég var miðlungsfótboltamaður og
gerðist þjálfari hjá mjög
sérstökum félögum. En
ég er algjörlega venju-
legur maður. Ég er sá
venjulegi,“ sagði Klopp
sem stefnir að því að
vinna titil með
Liverpool innan
fjögurra ára.
Á morgun
Bjarni aftur til eyja
Bjarni Jóhannsson var í gær ráðinn
þjálfari ÍBV en hann skrifaði undir
þriggja ára samning við Eyjaliðið.
Bjarni þekkir vel til í Eyjum en
hann þjálfaði ÍBV á árunum
1997-99 og gerði liðið tvívegis að
Íslandsmeisturum og einu sinni að
bikarmeisturum. Bjarni tekur við
starfinu af Jóhannesi Harðarsyni og
Ásmundi Arnarssyni en þeir stýrðu
ÍBV á síðasta tímabili.
Hræddur um að þetta
Klopp ævintýri sé frábært
fyrir LFC. Vona samt
innilega að ég hafi rangt fyrir
mér eins og oft áður.
Teitur Örlygsson
@teitur11
indriði Kominn heim í Kr
Indriði Sigurðsson, fyrirliði Viking
Stavanger í norsku
úrvalsdeildinni,
skrifaði í gær
undir tveggja ára
samning við KR.
Indriði er uppalinn
hjá KR en hann varð
Íslands- og bikarmeistari með
liðinu 1999 áður en hann fór út í
atvinnumennsku þar sem hann
hefur verið síðan.
Framherjapör íslenska liðsins í undankeppni em 2016
Kolbeinn sigþórsson og jón daði Böðvarsson 520 mínútur
Markatalan: +8 (10-2) Íslenskt mark á 52 mínútna fresti
Kolbeinn sigþórsson og eiður smári Guðjohnsen 70 mínútur
Markatalan: +2 (2-0) Íslenskt mark á 35 mínútna fresti
Kolbeinn og jóhann Berg Guðmundsson 63 mínútur
Markatalan: 0 (1-1) Íslenskt mark á 63 mínútna fresti
eiður smári og jón daði Böðvarsson 27 mínútur
Markatalan: 0 (0-0) Ekkert íslenskt mark
Kolbeinn og alfreð finnbogason 13 mínútur
Markatalan: +1 (1-0) Íslenskt mark á 13 mínútna fresti
alfreð finnbogason og eiður smári 12 mínútur
Markatalan: 0 (0-0) Ekkert íslenskt mark
alfreð finnbogason og jón daði 7 mínútur
Markatalan: +1 (1-0) Íslenskt mark á 7 mínútna fresti
Kolbeinn og Viðar Örn Kjartansson 6 mínútur
Markatalan: 0 (0-0) Ekkert íslenskt mark
Fótbolti Kolbeinn Sigþórsson og
Jón Daði Böðvarsson hafa byrjað
saman í sex af átta leikjum íslenska
landsliðsins í undankeppni EM
2016 og voru framherjapar liðs-
ins í 72 prósentum leiktímans
í þeim átta leikjum sem nægðu
íslensku strákunum til að tryggja
sér sæti á stórmóti í fyrsta sinn.
Jón Daði Böðvarsson kom óvænt inn
í byrjunarliðið í fyrsta leik á móti
Tyrkjum og sló í gegn. Hann var
búinn að skora eftir átján mínútur og
hreif alla með skemmtilegri blöndu
sinni af óendanlegri vinnusemi og
hæfileika til að halda bolta.
Kolbeinn Sigþórsson er fyrir löngu
orðinn framherji númer eitt hjá
íslenska landsliðinu og er fastamaður
í liðinu svo framarlega sem hann er
heill. Frammistaða og spilatími Jóns
Daða hefur komið meira á óvart enda
er hann í samkeppni við stórstjörnur
eins og Alfreð Finnbogason og Eið
Smára Guðjohnsen
Nú þegar Jón Daði er meiddur
stendur valið að því virðist á milli
Alfreðs og Eiðs Smára. Alfeð talaði
um að hafa verið að senda Lars Lager-
bäck smá skilaboð þegar hann varð á
dögunum fyrsti Íslendingurinn í átta
ár til að skora í Meistaradeildinni.
Hetja gríska liðsins Olympiacos
á móti Arsenal á Emirates-
leikvanginum minnti vel á sig á þessu
Meistaradeildarkvöldi en Alfreð
hefur aðeins fengið að spila í 32
mínútur samanlagt í þessari keppni
og er því hungraður í sitt tækifæri.
Eiður Smári Guðjohnsen átti frá-
bæra endurkomu inn í liðið úti í
Kasakstan í mars en hefur síðan
aðeins fengið að spila í 26 mínútur
í síðustu þremur leikjum. Eiður er
engu að síður með meira en þrisvar
sinnum fleiri mínútur en Alfreð í
þessari undankeppni. Eiður opnaði
markareikninginn sinn í Kína í síð-
asta leik sínum fyrir landsliðshléið
og er kominn í mun betra leikform
eftir að hafa byrjað síðustu fjóra leiki
Shijiazhuang Ever Bright.
Alfreð var síðast í byrjunarliði
íslenska liðsins í keppnisleik í
umspilsleikjunum á móti Króatíu
en hann skoraði síðast þegar hann
byrjaði síðast leik í riðlakeppni sem
var á móti Slóvenum í júní 2013.
Íslenska liðið hefur líka skorað tvisvar
sinnum á þessum 32 mínútum sem
Uppáhaldsparið er ekki í boði
Landsliðsþjálfararnir Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson geta ekki teflt fram aðalframherjapari sínu í
dag þegar Íslands mætir Lettum í Laugardalnum í síðasta heimaleik sínum í undankeppni EM 2016.
Lars Lagerbäck og Eiður Smári Guðjohnsen ræða hér málin fyrir eina æfingu íslenska landsliðsins í vikunni. Eiður Smári gerir
tilkall til byrjunarliðssætis í leiknum í dag. Fréttablaðið/Vilhelm
Aron Einar fagnar hér sigri á Tékkum með fyrirliðabandið í hendinni. Hann verður
ekki með í dag. FRéTTABLAðið/ERNiR
Fyrirliðinn er íslenska liðinu afar mikilvægur
Alfreð hefur spilað eða jafn mörg
mörk og á mínútum með Eiði Smára.
Það eru fleiri framherjar sem koma til
greina, eins og Viðar Örn Kjartansson,
eða þá að færa menn fram af miðjunni.
Jóhann Berg Guðmundsson hefur
spilað frammi í þessari undankeppni
og Birkir Bjarnason hefur verið að
skora fyrir sitt lið.
Hér til hliðar má sjá hvernig
útkoman hefur verið hjá
þ e i m átt a m i s m u n a n d i
f r a m h e r j a p ö r u m s e m
Lars Lagerbäck og Heimir
Hallgrímsson hafa notað í
undankeppninni til þessa
en hér eru aðeins nefnd
til leiks þau pör sem
hafa spilað saman áður
en það er komið út í
u p p b ó t a r t í m a
leikjanna.
Leikur Íslands og
L e t t l a n d s h e f s t
klukkan 16.00 í dag á
Laugardalsvelli og það er uppselt á
leikinn eins og síðustu heimaleiki
íslenska liðsins.
ooj@frettabladid.is
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 l a u G a r d a G u r24 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport