Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 34
52
. #
Br
an
de
nb
ur
g
Árlega deyja 52 einstaklingar úr ristilkrabbameini.
Það má koma í veg fyrir það.
Kauptu Bleiku slaufuna og hjálpaðu okkur að hefja
skipulagða leit að ristilkrabbameini.
Notkun slangurs og skilningur á því getur skipt sköpum í daglegum samskiptum. Ef maður notar úrelt slangur getur það gefið viðmælendum þá mynd af manni að maður fylgist ekki nógu vel með. Svo getur líka verið pínlegt að þurfa að spyrja þá sem
maður talar við hvað tiltekin orð þýða. Fréttablaðið vill
endilega hjálpa lesendum sínum að skilja sem flesta anga
samfélagsins og fór blaðamaður á stúfana, ræddi við þá
sem eru þekktir fyrir slangurnotkun og fékk útskýringar á
ýmsum slanguryrðum.
Eðli slangurs er þó þannig að það þróast hratt og stundum
eru ærnar ástæður fyrir því að það er torskilið; almenningi
er ekki ætlað að vita um hvað er verið að tala. Blaðamaður
tók þá ákvörðun að vera frekar með meira en minna slangur
í orðabókinni, sem þýðir að sumt slangrið er kannski úr sér
gengið. Er þetta gert til þess að fanga frekar stærra mengi
slangurnotkunar en minna og vonast blaðamaður til þess að
þetta gæti verið fræðandi. Listinn er þó langt frá því að vera
tæmandi og eflaust eru ekki allir sammála öllum skilgrein-
ingunum; og finnst þeim kannski listinn ekki „on fleek“.
Slangurorðabók Moiarinn, weisla, bae og fam Hvað þýðir allt slangrið?
Ferskasta slangrið
Kjartan Atli
Kjartansson
kjartanatli@365.is
Sæll‘ettu/Sæl‘ettu = Sæll vertu
Þetta er skemmtileg leið til að heilsa á skemmtilegan
máta. Vissulega hefur þetta verið til nokkuð lengi, en
getur virkað sem krydd í góðar samræður.
Dæmi um notkun: „Sæll‘ettu, sjomli“
Moi = Ég
Orðið „moi“ er svolítið
notað um þessar mundir
og ber sérstaklega mikið
á því á Twitter. Ýmsar
útgáfur af orðinu eru
notaðar, t.d. „moiarinn“.
Dæmi um notkun:
„Nenni ekki að vakna,
snooze á moi“.
Fam, squad = Vinahópur
Orðið „fam“ er notað yfir vinahópa, hvers
eðlis sem þeir eru. Slangrið „Squadgoals“ er
svo notað fyrir eitthvað sem ætti að verða
markmið vinahópsins. Gjarnan er þetta
notað sem „hashtag“ á Twitter og Insta
gram, við skemmtilegar myndir.
Dæmi um notkun: „Út að borða með fam“.
Fössari = Föstudagur
„Fössari“ er aðgengilegt slangur, það merkir
einfaldlega föstudagur, eins og margir hafa
væntanlega getið sér til um. Þeir sem nota
„fössari“ eru yfirleitt léttir í lund og eru
þakklátir fyrir föstudagana sína, enda helgi
þá fram undan. Undanfarnar vikur hefur
slangrið „föstari“ einnig rutt sér til rúms.
Dæmi um notkun: „Gleðilegan fössara“
On fleek = Beint í mark
Að eitthvað sé „on fleek“ merkir að eitt
hvað hitti beint í mark, eitthvað gangi full
komlega upp.
Dæmi um notkun: „Flottar buxur… og
þessir skór eru on fleek“.
Bae = Sá sem maður elskar
„Bae“ merkir víst Before Anyone Else og
sá sem notar orðið um einhvern annan
lýsir þannig yfir ást sinni og aðdáun.
Dæmi um notkun: „Bae er best“
Sjomli/Sjomla = Gamli/Gamla
Orðin „sjomli“ og „sjomla“ eru með „kombakk“ (já, við
komum öðru slanguryrði að í útskýringunni). Orðin má
nota á skemmtilegan máta yfir vini og vandamenn.
Einnig eru til aðrar útgáfur af orðinu eins og „sjomleh“
og „sjomlah“, en þær virðast vera á undanhaldi.
Dæmi um notkun: „Hvað er að frétta, sjomli?“
Weisla =
Meistari
Í raun þýðir „weisla“ ekki
meistari, en er notað
á sama hátt, þegar
fólk heilsast. Hægt
er að nota „weisla“
sem nafnorð, þegar
maður hittir viðmæl
anda sinn. Hægt er að
velja hvort orðið byrjar
á „v“ eða „w“. Hið
síðara er lítilleg vísun í
Vesturströnd Banda
ríkjanna.
Dæmi um notkun:
„Hvað segirðu
gott, weisla?“ Skúmur = Einhver sem er með allt á hreinu
Orðið „skúmur“ er notað yfir þá sem eru með allt á hreinu. Að „fljúga eins
og skúmur“ getur þýtt að vera á mikilli uppleið í lífinu.
Dæmi um notkun: „Gaurinn var að fá stöðuhækkun í vinnunni. Nú flýgur hann eins og skúmur.“
Verður lit = Mikið fjör
Þegar talað er um að eitthvað „verði lit“ (borið fram litt,
eins og á ensku) þýðir það að mikið fjör verði.
Dæmi um notkun: „Laugardalshöllin verður lit í
kvöld, þegar tónleikarnir fara fram.“
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 5 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð