Fréttablaðið - 10.10.2015, Side 43
SÆTMETI Nanna gaf út bók nýlega sem nefnist Sætmeti án sykurs og sætuefna, þar sem hún gefur sykurlausar uppskriftir.
MYND/ANTON briNk
Meistaramánuður stendur yfir í október þótt ekki hafi farið mikið fyrir honum að þessu sinni. Væntanlega eru þó margir
sem hafa það að markmiði að losa sig við sykur-
fíknina. Nanna hefur náð góðum árangri í sykur-
leysinu. „Ég var búin að vita það í þó nokkurn tíma
að ég þyrfti að endurskoða mataræðið, sérstaklega
þar sem ég var komin með forstigseinkenni sykur-
sýki. Blóðsykurinn var farinn að mælast allt of hár.
Ég ákvað að hætta að borða sykur og athuga hvort
það hefði áhrif. Læknirinn vildi að ég færi á lyf en
ég var ekki tilbúin til þess, að minnsta kosti vildi
ég prófa þetta fyrst,“ útskýrir Nanna.
AldrEI nEInn nAMMIgríS
„Það ótrúlega gerðist að þetta hafði áhrif og blóð-
sykurinn varð aftur eðlilegur. Ég finn ekkert lengur
fyrir þeim einkennum sem ég var farin að finna
fyrir, eins og skyndilegum hósta, mikilli svengd og
sveiflum á blóðsykrinum. Ýmislegt fleira var farið
að angra mig sem nú er horfið. Ég er léttari á mér
og liðugri, enda hef ég misst tuttugu kíló,“ segir
Nanna og bætir við að ekki megi misskilja það
þannig að hún hafi borðað svona mikið nammi.
Það hafi hún aldrei gert. „Matarlystin hefur breyst
hjá mér frá því ég ákvað að sleppa sykrinum. Ég
verð sjaldnar og minna svöng en áður. Svo er ég
farin að hugsa öðruvísi um það sem ég læt ofan í
mig.“
Nanna segir að hún hafi verið illa haldin af bjúg
í langan tíma. „Ég hef átt í stríði við bjúg á fótunum
í mörg ár. Hann er horfinn. Ég átti erfitt með að fá
passlega skó á mig, það er ekki lengur vandamál
þar sem ég nota núna tveimur númerum minna
TuTTugu kíló fóru
MEð SykrInuM
góður ÁrAngur Matgæðingurinn Nanna Rögnvaldardóttir hefur verið í
sykurbindindi í ellefu mánuði. Á þeim tíma hefur hún losað sig við 20 kíló.
Nanna finnur mikinn mun á líðan sinni, hún er léttari á sér og laus við bjúg.
↣
Brúðkaup um helgina
Bragi Valdimar Skúlason ætlar að eiga
skemmtilega helgi. Auk þess að fara í brúðkaup
ætlar hann að horfa á barnaefni í sjónvarpinu
og fylgjast með Twitter.
SíðA 4
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Netverslun á tiskuhus.is
Finndu þinn eigin fatastíl
Smart haustvörur
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is