Fréttablaðið - 10.10.2015, Blaðsíða 49
smáauglýsingar
smaar@frettabladid.is / visir.is
512 5000
Afgreiðsla smáauglýsinga og sími
er opinn alla virka daga frá 8-17
Allar smáauglýsingar
vikunnar á visir.isv nna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Mannauðsstjóri
Mjólkursamsalan er rekstrarfélag
mjólkuriðnaðarins á Íslandi og er í eigu
rúmlega 600 kúabænda um land allt.
Hlutverk félagsins er að taka við mjólk
frá eigendum sínum og umbreyta í hollar
og góðar mjólkurafurðir í takt við þarfir
íslenskra neytenda. Félagið heldur úti öflugu
dreifingarkerfi sem tryggir nánast öllum
landsmönnum reglulegan aðgang að ferskum
mjólkurvörum.
Mjólkursamsalan tók til starfa þann 1. janúar
2007 og eru aðalskrifstofur félagsins að
Bitruhálsi 1 í Reykjavík en alls rekur félagið
sex starfsstöðvar í Reykjavík, Búðardal,
Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi.
Heildarfjöldi starfsmanna er um 410.
Nánari upplýsingar um félagið má finna á
heimasíðu þess www.ms.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. október 2015. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Henni skal fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511 1225.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði mannauðsmála eða skyldra greina
• Starfsreynsla á sviði mannauðsstjórnunar er nauðsynleg s.s.
gerð ráðningarsamninga, starfslýsinga og handbóka
• Þekking á kjarasamingum og reynsla af túlkun þeirra
• Reynsla af fræðslu- og starfsþróunarmálum er æskileg
• Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
• Góð skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
• Mjög góð kunnátta í íslensku og önnur tungumála-
kunnátta kemur að gagni
• Reynsla af breytingastjórnun er æskileg
Helstu verkefni
• Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur í
mannauðstengdum málefnum
• Mat á mannaflaþörf og umsjón með ráðningum,
móttöku nýliða og þjálfun starfsmanna
• Umsjón með fræðslu- og starfsþróunarmálum
• Ábyrgð á gerð starfslýsinga og starfssamninga
• Þátttaka í mótun og framkvæmd kjaramála
• Þróun mannauðsstefnu og eftirfylgni s.s. með starfs-
mannasamtölum og viðhaldi starfsmannahandbókar
Mjólkursamsalan ehf. (MS) óskar eftir að ráða til starfa mannauðsstjóra. Um nýtt starf er að ræða.
Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem tekur þátt í að móta það. Staðan heyrir undir forstjóra MS.
Mannauðsstjóri tekur þátt í almennri stefnumótun fyrirtækisins og hefur umsjón með mannauðsmálum.
Framkvæmd mannauðsstefnu á sér að mestu stað í stjórnun sviða en mannauðsstjóri veitir stjórnendum
stuðning, leggur til sérþekkingu og ferla til að styðja við mannauðsstefnu MS.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Mjólkursamsölunnar eru konur jafnt sem karlar hvött til að sækja um.
Intellecta Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.