Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 50

Fréttablaðið - 10.10.2015, Page 50
Einstök starfstækifæri á fjármálamarkaði Bankasýsla ríkisins óskar eftir að ráða hæfa einstaklinga með ríka ábyrgðartilfinningu í störf lögfræðings og sérfræðings í eignaumsýslu til að sinna neðangreindum verkefnum. Um er að ræða ráðningar tveggja til þriggja einstaklinga í tímabundin verkefni tengd fyrirhugaðri sölumeðferð ríkisins á eignarhlut í Landsbankanum hf. Mikil áhersla er lögð á að viðkomandi einstaklingar myndi öfluga liðsheild með núverandi starfsliði og stjórn stofnunarinnar sem og þeim aðilum sem hún á í samskiptum við. Bankasýsla ríkisins er ríkisstofnun sem fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma. Bankasýsla ríkisins starfar samkvæmt lögum nr. 88/2009 um stofnunina og lögum nr. 155/2012 um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Verkefni stofnunarinnar eru m.a. að sjá um samskipti ríkisins við fjármálafyrirtæki sem eigandi, að fara með atkvæði ríkissjóðs á hluthafafundum, að gera tillögur til ráðherra um sölu á eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum, annast sölumeðferð og leita tilboða í eignarhluti, meta tilboð, hafa umsjón með samningaviðræðum við utanaðkomandi ráðgjafa og væntanlega kaupendur og annast samningagerð. Umsóknarfrestur er til og með 26. október nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent, www.capacent.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Ragnheiður Dagsdóttir (ragnheidur.dagssdottir@capacent.is) og Auður Bjarnadóttir (audur.bjarnadottir@capacent.is) hjá Capacent. SérfræðingUr í EignaUmSýSlU Leitað er að einstaklingi sem hefur mikla reynslu, þekkingu og áhuga á fjármálamörkuðum og fjármálafyrirtækjum. Starfssvið: • Umsjón með framkvæmd eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum • Gerð tillagna um sölumeðferð á eignarhlutum og þátttaka í framkvæmd ef af sölu verður • Samskipti við fjármálafyrirtæki, eftirlits- og stjórnsýslustofnanir, ráðgjafa og aðra aðila á fjármálamarkaði menntunar- og hæfnikröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfinu, t.d. á sviði viðskiptafræði, verkfræði eða hagfræði • Þekking á fjármálum, reikningsskilum, stjórnarháttum og lagaumhverfi fyrirtækja • Þekking á eignastýringu hlutabréfa, innlendum verðbréfamörkuðum og fjármálagerningum fjármálafyrirtækja • Reynsla af fjárfestingum, endurskipulagningu og sölu fyrirtækja • Hæfni til að koma frá sér efni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku • Hæfni í notkun Excel, Word, PowerPoint og Bloomberg • Sveigjanleiki, sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum • Nákvæmni, vandvirkni og metnaður lÖgfræðingUr Leitað er að reynslumiklum lögfræðingi með þekkingu á lagaumhverfi fjármálafyrirtækja og fjármálamarkaða og mikla starfsreynslu á þeim vettvangi. Starfssvið: • Umsjón með framkvæmd eigendastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum • Gerð tillagna um sölumeðferð á eignarhlutum og þátttaka í framkvæmd ef af sölu verður • Samskipti við fjármálafyrirtæki, eftirlits- og stjórnsýslustofnanir, ráðgjafa og aðra aðila á fjármálamarkaði • Ritun lögfræðilegra álitsgerða, umsagna og skýrslna menntunar- og hæfnikröfur: • Meistarapróf í lögfræði • Reynsla á sviði félagaréttar, verðbréfaréttar og stjórnsýsluréttar • Reynsla af fjárfestingum, endurskipulagningu og sölu fyrirtækja • Hæfni til að koma frá sér efni í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku • Sveigjanleiki, sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum • Nákvæmni, vandvirkni og metnaður
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.