Fréttablaðið - 10.10.2015, Síða 108
Bragi Halldórsson
169
„Hvað skyldi þetta nú vera,“ sagði Konráð og tók upp pappírsblað með
tölustöfum og undarlegum táknum sem hann sá liggja á jörðinni.
„Mér sýnist þetta vera stærðfræðiþraut,“ sagði Lísaloppa. „En þessi þarna
þrjú tákn eru ekki tölustafir svo það getur nú varla verið,“ sagði Konráð.
„Það er nú einmitt þrautin,“ sagði Lísaloppa. „Að finna út fyrir hvaða tölustafi
þessi þrjú tákn standa, svo þessi fjögur dæmi gangi upp,“ bætti hún við.
Getur þú reiknað út fyrir hvaða tölustafi táknin þrjú standa,
svo dæmin gangi upp?
Hvað ertu gömul, Embla
Katrín, og í hvaða leikskóla
ertu? Ég er fjögurra ára en alveg
að verða fimm ára og er í leik
skólanum Sólhlíð.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera í leikskólanum?
Mér finnst skemmtilegast að
vera úti að róla með bestu vin
konu minni.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera? Þegar ég er
ekki í leikskólanum finnst mér
skemmtilegast að fara á kaffi
hús eða í sund og fá svo pylsu á
leiðinni heim.
Ertu að æfa eitthvað? Ég er
í ballett og þar er ég að æfa
mig að dansa en svo er ég
líka að æfa mig í að standa á
höndum og fara í handahlaup á
trampólíni.
Hver eru uppáhaldsdýrin
þín? Kettlingar, hvolpar, ljóns
ungar, fílsungar og selir eru allt
uppáhaldsdýrin mín.
Hefur þú farið til útlanda?
Já, ég hef farið mjög mörgum
sinnum til útlanda, Kúbu, Kan
ada og Danmerkur. Mér finnst
það mjög gaman af því að þar
get ég verið úti á stuttbuxum
og stuttermabol allan daginn,
meira að segja allt kvöldið.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú
ert orðin fullorðin? Mig langar
mest af öllu að vera flugkona þegar
ég verð stór en þær stýra flugvél
unum en stundum þurfa þær líka
að gefa öllu fólkinu að borða.
Skemmtilegast að fara
á kaffihús eða í sund
Embla Katrín Reynarsdóttir er alveg að verða fimm
ára. Hún er í leikskólanum Sólhlíð og langar mest af
öllu að verða flugkona þegar hún er orðin fullorðin.
Embla Katrín Reynarsdóttir er hér máluð eins og refur en móðir hennar er förðunarfræðingur og málaði líka þetta fallega tré
sem prýðir vegginn í herberginu hennar Emblu.
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Umsóknarfrestur 2. nóvember
Lýst er eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði. Hlutverk
sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga
og æskulýðssamtaka.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna
á rannis.is. Umsóknum skal skilað inn á rafrænu formi
fyrir kl. 17.00 mánudaginn 2. nóvember 2015.
Nánari upplýsingar veita
Andrés Pétursson,
andres.petursson@rannis.is,
sími 515 5833.
Æskulýðs-
sjóður
Brandarahornið
Amma: Bjarni minn, góður drengur er aldrei óþægur við foreldra sína.
Bjarni: Við hverja þá?
Stína: Mamma, mamma, krakkarnir segja að ég sé með gæsahúð!
Mamma: Hvað er athugavert við það?
Stína: Fæ ég þá kannski fjaðrir?
Kennarinn: Hvernig stendur á því, Nonni, að jörðin er flatari við
pólana en annars staðar eins og sést á hnattlíkaninu?
Nonni: Það veit ég ekki, ég hef ekki komið nálægt hnettinum
og hann var líka svona í fyrra.
Í hellum opnast leyndardómsfullur
heimur undir yfirborði jarðar eða
inni í fjöllum og klettum. Engir tveir
hellar eru eins, þeir eru alla vega í
laginu, jafnvel með leynigöngum
sem ekki er hægt að komast um
nema skríða eða mjaka sér áfram.
Sumir hellar hafa verið notaðir sem
skjól í vondum veðrum, jafnvel sem
bústaðir manna, og hellar koma við
sögu í ótal ævintýrum.
Ferðafélag barnanna stendur fyrir
hellaleiðangri á föstudaginn, 16.
október, frá klukkan 17 til 20. Þá
verður Leiðarendi við Hafnarfjörð
skoðaður, hann skartar djásnum
eins og dropasteinum og hraun
stráum.
Ferðin er opin öllum og hentar
krökkum frá sjö ára aldri sem ekki
eru myrkfælnir. Hún kostar ekkert
og ekki þarf að panta, bara mæta
á bíl við Ferðafélag Íslands, Mörk
inni 6, í tæka tíð. Hellasérfræðingur
verður með í ferðinni.
Ævintýri í iðrum jarðar
Þessi mynd er tekin í Þríhnúkagíg. Fréttablaðið/Vilhelm
1 0 . o k t ó b e r 2 0 1 5 L A U G A r D A G U r52 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð