Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 6
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
/
S
ÍA
/
N
M
5
r
BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala
Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílasala Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070
SHIFT_
BÍLAKAFFI
NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR
E
N
N
E
M
M
SUBARU XV – 4x4
Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr.
NISSAN QASHQAI – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr.
Eyðsla:
4,2 l/100 km*
Eyðsla:
4,6 l/100 km*
Eyðsla:
6,6 l/100 km*
RENAULT MEGANE II SPORT TOURER
1.5 dísil, sjálfskiptur. Verð 3.890 þús. kr.
Á laugardögum er skemmtilegt að kíkja í
heimsókn, skoða bíla og fá að reynsluaka
þeim nýjustu úr salnum. Allt að 80%
fjármögnun til 84 mánaða frá Ergo.
Verið velkomin til okkar, við tökum vel á móti
ykkur með kaffi og meðlæti.
Velkomin í laugardagskaffi!
Reynsluakstur í dag frá kl. 12–16.
FER 1.428 KM
Á EINUM TANKI
M.v. blandaðan ak
stur
VINSÆLASTI
SPORTJEPPINN
Samkv. Umferðars
tofu 2012
SPARNEYTINN
SUBARU
Ný vél, aukinn ben
sínsparnaður
SAMFÉLAGSMÁL Fræðsla barna
um kynferðislegt ofbeldi er lang-
besta forvörnin gegn því. Best er
ef fræðslan kemur frá foreldrum
barnanna en einnig er hægt að leita
til skóla eða félagasamtaka ef for-
eldrar geta ekki eða treysta sér ekki
til að ræða málið við börnin sín.
Þetta segir Kolbrún Baldursdóttir
sálfræðingur sem hefur haldið nám-
skeið í fræðslu fyrir foreldra, skóla,
félaga- og íþróttasamtök í fjölda ára
um kynferðislegt ofbeldi gegn börn-
um í samfélaginu. Kolbrún á sjálf
tvær dætur og hafði rætt við þær
um þessi viðkvæmu mál þegar þær
voru fimm ára gamlar. Hún bendir
þó á að foreldrar þekki börnin sín
best og finni sjálfir hvenær það
hentar.
„Umræðan er best á heimilinu,
þegar það er hægt. Það eru ákveðn-
ar reglur sem nauðsynlegt er að
ræða, en einnig verður að gæta
þess að hræða börnin ekki og segja
hluti eins og að það séu vondir menn
þarna úti. Frekar að það séu ekki
allir jafn góðir,“ segir Kolbrún. „Ef
einhver ókunnugur biður mann um
að koma, gefur manni eitthvað eða
annað slíkt, á maður að segja skýrt
nei, fara í burtu og segja svo frá.“
Kolbrún segir nauðsynlegt að
brýna fyrir börnum að enginn eigi
að eiga „vond leyndarmál“, eða
leyndarmál sem láta barninu líða
illa. „Þegar við erum búin að ræða
þetta við ung börn, verða þau svo
mikið hæfari, afslappaðri og örugg-
ari í umhverfi sínu.“
Kolbrún segist hafa skynjað
breytingar á umræðunni í samfé-
laginu eftir umfjöllun Kastljóss í
vikunni og bendir á að börn verða
einnig fyrir áhrifum af henni án
þess að foreldrar geri sér endilega
grein fyrir því.
„Ég vil því hvetja foreldra að
gæta að líðan barna sinna í þessu
sambandi, útskýra, svara spurn-
ingum sem vakna og ræða þetta allt
eftir því sem aldur og þroski leyfir,“
segir hún. sunna@frettabladid.is
Nauðsynlegt að fræða
börnin um ofbeldið
Óupplýst börn eiga frekar á hættu að vera misnotuð kynferðislega og greina síður
frá ofbeldinu. Fræðsla er öflugasta forvörnin gegn kynferðisbrotum.
Foreldrar eiga að fræða börn sín um leið og þau treysta sér til, segir sálfræðingur.
Staðir sem laða að kynferðis afbrotamenn eru til dæmis:
➜ Sundlaugar
➜ Skemmtigarðar
➜ Ýmis opin svæði
➜ Göturnar (aka um á bílum og reyna að laða barn upp í með lygum eða til-
boðum um gjafir og góðgæti)
Samkvæmt Kolbrúnu sækja gerendur gjarnan í sundlaugar, meðal annars
vegna þess að þar eru mörg tækifæri til að áreita kynferðislega, til dæmis
með því að klípa og káfa undir yfirborði vatnsins. Þar geta þeir einnig
hagað sér eins og börn og eiga auðvelt með að komast í líkamlega
snertingu við börn. Þá er erfitt að hafa eftirlit og yfirsýn yfir atferli þeirra
og erfitt er fyrir eftirlitsmann að vita hver tengslin eru við barnið. Gerandi
getur þar falið sig bak við nafnleysi og nekt.
Níðingar sækja í sundlaugar
SUNDLAUG Kolbrún segir þekkt að menn með barnagirnd sæki í sundlaugar þar
sem erfitt er að fylgjast með þeim og návígi við börnin er oft mikið og náið.
NORDICPHOTOS/GETTY
KOLBRÚN
BALDURSDÓTTIR
Hvað á að gera ef barn greinir frá einhverju sem
kann að vera vafasamt; upplifun, skynjun, atburði,
áreitni eða misnotkun af einhverju tagi?
➜ Leggja ávallt trúnað á orð og upplifanir barnsins.
➜ Tilkynna mál til barnaverndar og/eða lögreglu.
➜ Láta barnið vita að það var rétt að segja frá.
➜ Hrósa því og róa það.
Hafi barnið orðið fyrir áreitni eða misnotkun af ein-
hverjum toga þarf fyrst og fremst að tryggja öryggi þess
og fullvissa það um að ofbeldið sé ekki því að kenna.
Nauðsynlegt er að hlusta á barnið og varast yfirheyrslur.
Loks þarf að tilkynna málið til viðeigandi aðila.
Alltaf að trúa orðum barnsins
DÓMSMÁL Héraðsdómur Vestur-
lands hefur dæmt framhaldskóla-
kennara um sextugt í átján mán-
aða fangelsi fyrir að hafa í tvígang
keypt kynlífsþjónustu af fjórtán
ára dreng.
Maðurinn var dæmdur í eins árs
skilorðsbundið fangelsi í fyrra en
Hæstiréttur ógilti þann dóm og vís-
aði málinu aftur í hérað, þar sem
fjölskipaður dómur tók við því.
Maðurinn er sakfelldur fyrir að
hafa tvívegis greitt drengnum fyrir
að hafa við sig munnmök. Hann
kynntist honum á vefnum Einka-
mál.is, hitti hann í bíl og kvaðst
ekki hafa vitað hversu ungur hann
hefði verið.
„Ákærði sagðist gera sér grein
fyrir því að hann hefði verið að
kaupa vændi. En það að kaupa
vændi barns hefði stungið sig í
hjartað vegna þess að hann hefði í
rauninni ekki verið að því,“ eins og
það er orðað í dómnum.
Dómurinn kemst að þeirri niður-
stöðu að í ljósi stöðu mannsins
sem framhaldsskólakennara hafi
reynsla hans átt að leiða til þess
að hann gáði sérstaklega að aldri
drengsins. Hann hafi því sýnt af
sér refsivert gáleysi. Ekki þykir til-
efni til að skilorðsbinda refsinguna
jafnvel þótt maðurinn hafi stundað
meðferðir og sé í dag gjörbreyttur
maður, að mati geðlæknis. - sh
Sextugur framhaldsskólakennari dæmdur í fangelsi í annarri atrennu:
Borgaði 14 ára dreng fyrir mök
Í dómnum kemur fram að drengurinn hafi „byrjað að stunda vændi 11 ára
gamall til þess að fjármagna neyslu á grasi og morfíntöflum“. Þrjú önnur
mál séu í rannsókn sem varða brot manna gegn honum.
➜ Byrjaði ellefu ára að selja sig
STJÓRNMÁL „Við í Bjartri fram-
tíð blöndum okkur ekki í þetta, en
hvetjum alla til þess að kynna sér
hlið Bjartrar,“ segir Guðmundur
Steingrímsson, formaður Bjartrar
framtíðar, um umfjöllun DV um
missætti innan stjórnar Geðhjálpar.
Þar er Björt Ólafsdóttir, oddviti
flokksins í Reykjavíkurkjördæmi
og fyrrverandi formaður Geðhjálp-
ar, borin þungum sökum af tveim-
ur stjórnarmeðlimum Geðhjálpar.
Vantrauststillaga var samþykkt á
hendur Björtu áður en hún sagði af
sér formennsku
í félaginu í
desember. Hún
var meðal ann-
ars sökuð um
að hafa falsað
gögn, reynt að
ráða vinkonu
sína til félagsins
og smalað fólki
í samtökin sem
var algjörlega
ótengt geðheilbrigðismálum.
Björt vísar öllum ásökunum á
bug í DV og segir þetta sprottið
frá þremur stjórnarmönnum af
tíu innan Geðhjálpar.
Guðmundur segir flokkinn ekki
ætla að aðhafast vegna málsins.
„Okkur var kunnugt um þetta
en Björt hefur farið vandlega yfir
þetta með okkur og við sjáum nú
ekki að í þessu felist mjög þung-
ar ásakanir,“ segir Guðmundur.
„Hún hefur farið fram á að þetta
sé allt tekið út skynsamlega og
mér finnst öll svör hennar mjög
sannfærandi.“ - sv
Oddviti Bjartrar framtíðar sakaður um smölun og lygar í starfi hjá Geðhjálp:
„Blöndum okkur ekki í þetta“
BJÖRT
ÓLAFSDÓTTIR