Fréttablaðið - 12.01.2013, Side 8

Fréttablaðið - 12.01.2013, Side 8
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | stjórnarfrum- vörp liggja fyrir Alþingi. 56 bíða fyrstu umræðu í þinginu, 18 eru til umræðu í nefnd,32 bíða 2. um ræðu í þinginu og5 er í nefnd.1 eru stjórnar- tillögur.9 bíða fyrri eða einnar umræðu,4 eru í nefnd og4 bíður atkvæða- greiðslu.1 Láttu hjartað ráða „Himneskir lífrænir gosdrykkir úr fyrsta okks hráefni og allir í fjölskyldunni nna eitthvað við sitt hæ.“ Alþingi kemur saman á ný eftir jólafrí á mánu- daginn. Þingmenn ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur varðandi þingmál, en fyrsta mál á dagskrá er atkvæðagreiðsla um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúru- svæða. Þeim er heldur ekki til setunnar boðið, en aðeins eru 27 þingfundir eftir fram að þing- frestun, samkvæmt starfsáætlun. Störfum Alþingis lýkur 15. mars og þá tekur kosninga- baráttan við. 66 stjórnarmál Fyrir Alþingi liggja 65 mál frá ríkisstjórninni; 56 frumvörp til laga og 9 þingsályktunartillög- ur. Ein þeirra verður afgreidd strax á mánu- daginn, eins og áður segir, þegar atkvæða- greiðsla fer fram um rammaáætlun. Við þetta má bæta einu nefndarfrumvarpi; frumvarpi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um nýja stjórnarskrá. Þegar litið er til stöðu mála á þinginu verður að beina sjónum fyrst og fremst að málum ríkis- stjórnarflokkanna. Afgreiðsla þeirra segir til um hvernig viðkomandi ríkisstjórn hefur tek- ist til með að koma stefnumálum sínum áfram. Auk stjórnarmálanna liggur fjöldi þing- mannamála fyrir; 84 lagafrumvörp og 86 þingsályktunartillögur. Samanlagður mála- fjöldi er því yfir 200 mál, en stjórnarmálin eru 66. Tiltölulega normalt Þó 66 mál virðist mikið, sérstaklega þegar litið er til þess að aðeins eru 27 þingfundir eftir, er ástandið hvorki verra né betra en oft áður. „Þetta er nú ekkert óvenjulega mikið af málum sem bíður afgreiðslu. Ástandið er bara tiltölu- lega normalt,“ segir Helgi Bernódusson, skrifstofu- stjóri Alþingis. Hann segir að mörg af mest aðkallandi málum yfirstandandi þings hafi verið afgreidd fyrir jól og önnur hafi einnig komið úr nefndum fyrir jól. Allnokkur mál liggi fyrir sem ekki hafi komist á dagskrá og reynt verði í vikunni að koma þeim áfram. En á hann von á að það náist að klára megnið af málunum fyrir þinglok? „Já, ég held það. Auðvitað ræðst það af því hvaða önnur mál koma inn í þingið, það er ekki mikill tími til stefnu.“ Tvö stór mál Tvö mál standa upp úr og munu að öllu óbreyttu taka mestan tíma þingsins. Þingsályktunartillaga um stjórnarskrá er í umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd- ar. Stjórnarmeirihlutinn hyggur á að ljúka því máli svo kjósa megi um nýja stjórnar- skrá samhliða alþingiskosningum í vor. Liggi þingmönnum jafn mikið á hjarta um málið og fyrir áramót verður það trauðla. Framtíð þess máls veltur því á samningum á milli flokka. Frumvarp um fiskveiðistjórnun var lagt fram á síðasta þingi. Það var dregið til baka gegn því að frumvarp um veiðigjald yrði sam- þykkt. Síðan hafa ótal fundir verið haldnir þar sem reynt er að ná saman um málið. Það hefur ekki enn tekist og því er óvíst um afdrif þess. ASKÝRING | 8 FJÖLDI MÁLA BÍÐUR AFGREIÐSLU Á ALÞINGI Fiskveiði og stjórnarskrá stóru málin Alls bíða 65 mál ríkisstjórnarinnar afgreiðslu Alþingis. Tiltölulega eðlilegt ástand, segir skrifstofustjóri Alþingis. Stærstu málin eru stjórnun fiskveiða og ný stjórnarskrá. Tókst að afgreiða mörg stór mál fyrir jól. Greidd verða atkvæði um Rammaáætlun á mánudaginn. ALÞINGI Samkvæmt starfsáætlun Alþingis eru 27 fundar- dagar fram að þinglokum, sem verða 15. mars. Alls liggja 56 stjórnarmál fyrir, auk aragrúa þingmannamála. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HELGI BERNÓDUSSON Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is 65 STJÓRNARMÁL
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.