Fréttablaðið - 12.01.2013, Qupperneq 8
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
stjórnarfrum-
vörp liggja
fyrir Alþingi.
56
bíða fyrstu
umræðu í
þinginu,
18
eru til umræðu
í nefnd,32
bíða 2. um ræðu í
þinginu og5
er í nefnd.1
eru stjórnar-
tillögur.9
bíða fyrri eða
einnar umræðu,4
eru í nefnd og4
bíður atkvæða-
greiðslu.1
Láttu hjartað ráða
„Himneskir lífrænir gosdrykkir úr fyrsta okks
hráefni og allir í fjölskyldunni nna eitthvað
við sitt hæ.“
Alþingi kemur saman á ný eftir jólafrí á mánu-
daginn. Þingmenn ráðast ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur varðandi þingmál, en
fyrsta mál á dagskrá er atkvæðagreiðsla um
rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúru-
svæða.
Þeim er heldur ekki til setunnar boðið, en
aðeins eru 27 þingfundir eftir fram að þing-
frestun, samkvæmt starfsáætlun. Störfum
Alþingis lýkur 15. mars og þá tekur kosninga-
baráttan við.
66 stjórnarmál
Fyrir Alþingi liggja 65 mál frá ríkisstjórninni;
56 frumvörp til laga og 9 þingsályktunartillög-
ur. Ein þeirra verður afgreidd strax á mánu-
daginn, eins og áður segir, þegar atkvæða-
greiðsla fer fram um rammaáætlun.
Við þetta má bæta einu nefndarfrumvarpi;
frumvarpi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
um nýja stjórnarskrá.
Þegar litið er til stöðu mála á þinginu verður
að beina sjónum fyrst og fremst að málum ríkis-
stjórnarflokkanna. Afgreiðsla þeirra segir til
um hvernig viðkomandi ríkisstjórn hefur tek-
ist til með að koma stefnumálum sínum áfram.
Auk stjórnarmálanna liggur fjöldi þing-
mannamála fyrir; 84 lagafrumvörp og 86
þingsályktunartillögur. Samanlagður mála-
fjöldi er því yfir 200 mál, en stjórnarmálin
eru 66.
Tiltölulega normalt
Þó 66 mál virðist mikið, sérstaklega þegar
litið er til þess að aðeins
eru 27 þingfundir eftir, er
ástandið hvorki verra né
betra en oft áður.
„Þetta er nú ekkert
óvenjulega mikið af málum
sem bíður afgreiðslu.
Ástandið er bara tiltölu-
lega normalt,“ segir Helgi
Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis.
Hann segir að mörg af
mest aðkallandi málum yfirstandandi þings
hafi verið afgreidd fyrir jól og önnur hafi
einnig komið úr nefndum fyrir jól. Allnokkur
mál liggi fyrir sem ekki hafi komist á dagskrá
og reynt verði í vikunni að koma þeim áfram.
En á hann von á að það náist að klára megnið
af málunum fyrir þinglok?
„Já, ég held það. Auðvitað ræðst það af því
hvaða önnur mál koma inn í þingið, það er
ekki mikill tími til stefnu.“
Tvö stór mál
Tvö mál standa upp úr og munu að öllu
óbreyttu taka mestan tíma þingsins.
Þingsályktunartillaga um stjórnarskrá er
í umfjöllun stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd-
ar. Stjórnarmeirihlutinn hyggur á að ljúka
því máli svo kjósa megi um nýja stjórnar-
skrá samhliða alþingiskosningum í vor. Liggi
þingmönnum jafn mikið á hjarta um málið og
fyrir áramót verður það trauðla. Framtíð þess
máls veltur því á samningum á milli flokka.
Frumvarp um fiskveiðistjórnun var lagt
fram á síðasta þingi. Það var dregið til baka
gegn því að frumvarp um veiðigjald yrði sam-
þykkt. Síðan hafa ótal fundir verið haldnir þar
sem reynt er að ná saman um málið. Það hefur
ekki enn tekist og því er óvíst um afdrif þess.
ASKÝRING | 8
FJÖLDI MÁLA BÍÐUR AFGREIÐSLU Á ALÞINGI
Fiskveiði og stjórnarskrá stóru málin
Alls bíða 65 mál ríkisstjórnarinnar afgreiðslu Alþingis. Tiltölulega eðlilegt ástand, segir skrifstofustjóri Alþingis. Stærstu málin eru stjórnun
fiskveiða og ný stjórnarskrá. Tókst að afgreiða mörg stór mál fyrir jól. Greidd verða atkvæði um Rammaáætlun á mánudaginn.
ALÞINGI Samkvæmt starfsáætlun Alþingis eru 27 fundar-
dagar fram að þinglokum, sem verða 15. mars. Alls liggja 56
stjórnarmál fyrir, auk aragrúa þingmannamála. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HELGI
BERNÓDUSSON
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
65 STJÓRNARMÁL