Fréttablaðið - 12.01.2013, Side 16
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 16
Skoðun visir.is
Fyrir ríflega viku voru
veitt tvö sérleyfi til rann-
sókna og vinnslu kolvetnis
á svokölluðu Drekasvæði.
Útgáfa leyfa nú er áfangi
á langri leið, hvort sem
við lítum til borunar rann-
sóknarholu í Flatey á Skjálf-
anda upp úr 1980 eða rekj-
um upphafið til ályktunar
Alþingis frá 1997 um skip-
un starfshóps um „hvort
rétt sé að hefja markvissar
rannsóknir á því hvort að
olía eða gas finnist á land-
grunni Íslands“. Eftir að starfshóp-
urinn skilaði skýrslu sinni í októ-
ber 1998 var lagt fram frumvarp
um leit, rannsóknir og vinnslu kol-
vetnis. Ríkti pólitísk samstaða um
málið á þeim tíma enda voru bæði
þingsályktunin og lögin samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum.
Nokkrar breytingar og bætur
hafa verið gerðar á lögunum síðan,
en á þeim grunni voru sérleyfin
veitt eftir útboð. Þó svo að leyfin
nú marki vissulega tímamót í þessu
ferli er ljóst að langur vegur er frá
því að svæðið sé rannsakað og þaul-
kannað, hvað þá að boranir hefjist.
Nú verður svæðið rannsakað um
nokkurra ára skeið, fyrst og fremst
með hljóðbylgjum og sýnatöku. Í
umsögn umhverfisráðuneytisins
um leyfin kemur fram að „á fyrri
stigum séu rannsóknir umsækj-
endanna þriggja skv. þeim áætl-
unum sem þeir hafa lagt fram ekki
líklegar til að valda miklu raski á
umhverfinu“. Komi til þess í fram-
tíðinni að sótt verði um rannsókna-
boranir munu þær fara í gegnum
strangt umhverfismat.
Íslensk stjórnvöld hafa í hendi
sér að gera ýtrustu kröfur um allt
sem að umhverfi, tækni og öryggi
snýr og taka þá sérstaklega tillit
til aðstæðna á viðkomandi svæði,
norrænnar legu þess í köldum sjó
o.s.frv. og það á fortakslaust að
gera. Nærtækt er að líta til staðla
og reglna sem norsk stjórnvöld hafa
sett varðandi umhverfis- og örygg-
ismál, en þau eru almennt talin í far-
arbroddi á heimsvísu í þeim efnum
og byggja á mikilli reynslu. Hluti
af þessum öryggiskröfum er að
þau fyrirtæki sem fengu sérleyfin
þurftu að uppfylla hvoru tveggja
skilyrði um fjárhagslegan styrk
og tæknilega getu. Þá felst aukið
öryggi í því að norska ríkisolíufélag-
ið Petoro skuli hafa nýtt rétt sinn til
að vera fjórðungsaðili í hvoru leyf-
anna fyrir sig.
Víða leitað á norðurslóðum
Það er ljóst að nágrannaþjóðir
okkar, Norðmenn, Færeyingar og
Grænlendingar, ráðgera allar olíu-
leit í sínum lögsögum á hafinu í
nágrenni Íslands. Olíuleit á svæð-
inu við og í nágrenni Drekans munu
því hefjast jafnvel þótt Íslendingar
myndu ekki fara í slíkan leiðang-
ur. Norðmenn hafa gert ítarlegar
rannsóknir á sínum hluta Dreka-
svæðisins og er það mat þeirra að
þrátt fyrir að svæðið sé úti á reg-
inhafi séu veðurfræðilegar aðstæð-
ur um margt hagstæðar og tækni-
legar aðstæður vel leysanlegar. Það
ríður hins vegar á að hvergi sé slak-
að á ströngustu öryggiskröfum og
fyllsta ástæða er til að fylgjast vel
með þeim málum enda miklir hags-
munir í húfi fyrir alla aðila. Sam-
starf aðila á þessu sviði er því liður
í að tryggja að hvergi verði slakað á.
Umhverfismál
Réttmætar spurningar vegna mögu-
legrar olíuvinnslu hafa vaknað um
ábyrgð Íslands í umhverfis- og lofts-
lagsmálum, sem eru meðal mikil-
vægustu úrlausnarefna samtímans.
Um það er að segja að núverandi
ríkisstjórn hefur lagt mikla áherslu
á að Ísland standi að Kyoto-sam-
komulaginu og framlengingu þess
án sérstakrar undanþágu. Jafn-
framt er hafin framkvæmd metn-
aðarfullrar áætlunar og margvís-
legar aðgerðir til að draga úr notkun
jarðefnaeldsneytis, auka bindingu
kolefnis og stuðla að orku-
skiptum í samgöngum ekki
síst. Á Íslandi búum við svo
vel að nær öll raforka og
orka til húshitunar kemur
úr endurnýjanlegum orku-
gjöfum. Við verðum hins vegar að
gera mun betur í því að minnka
notkun jarðefnaeldsneytis og auka
hlut endurnýjanlegra orkugjafa
þegar kemur að samgöngutækjum
og höfum við sett okkur það mark-
mið að árið 2020 höfum við náð 10%
markinu.
Í þessu augnamiði höfum við
meðal annars gjörbylt allri hugs-
un í skattlagningu ökutækja og nú
er þeim sem velja sér bíl með lága
CO2-losun umbunað með lægri toll-
um og aðflutningsgjöldum. Þá eru
raf-, vetnis- og metanbílar undan-
þegnir skatti, sem og íblöndunarefni
í bensín og olíu. Ísland hefur líka
ákveðið að innleiða ETS-reglukerfið
um útblástur og tekið upp ýmsa aðra
græna skatta til að draga úr notkun
jarðefnaeldsneytis eins og kolefnis-
gjöld. Þeir skattar byggja á þeirri
hugmyndafræði umhverfisskatta
að þeir sem mengi borgi. Nefnd
á vegum ríkisstjórnarinnar sem
fjallaði um möguleg viðbrögð við
hækkandi olíuverði tók ekki undir
háværar kröfur hagsmunaaðila um
skattalækkanir á jarðefnaeldsneyti
enda væru þær ósjálfbærar.
Á grunni tillagna frá henni og inn-
anríkisráðuneytinu ýtti ríkisstjórn-
in úr vör langstærsta átaki í upp-
byggingu almenningssamgangna á
Íslandi sem litið hefur dagsins ljós
og mun yfir milljarður króna á ári
renna til þeirra verkefna næstu
árin. Nú þegar er til dæmis hægt að
taka strætó úr Reykjavík og norður
og austur um land. Á næstu vikum
verður tilbúið frumvarp þar sem
lagt verður til að hlutur eldsneytis
af endurnýjanlegum eða umhverfis-
vænni uppruna verði verulega auk-
inn í samgöngum með íblöndun.
Ísland ábyrgt í umhverfismálum
Ríkisstjórnin hefur þegar sýnt og
sannað að hún vill taka á málum
tengdum hlýnun jarðar með ábyrg-
um hætti. Það er hins vegar stað-
reynd að þrátt fyrir markmið um að
minnka notkun jarðefnaeldsneytis
munum við þurfa að reiða okkur á
það um fyrirsjáanlega framtíð til að
knýja bíla, flugvélar og skip, sem og
til iðnaðarframleiðslu. Spurningin
sem við stöndum nú frammi fyrir
er hvort við séum fyrir fram tilbúin
að afsala okkur þeim möguleika að
brotabrot af þeirri olíu sem vænt-
anlega verður unnin á heimsvísu
og notuð í áratugi til viðbótar, þar á
meðal af okkur sjálfum, verði hugs-
anlega unnin hér.
Í þessu sambandi er mikilvægt
að hafa í huga að hin alþjóðlega við-
leitni snýr að því að draga úr losun,
stuðla að auknu hlutfalli endurnýj-
anlegra orkugjafa o.s.frv., fremur
en að takmarka framleiðslu. Á það
er þó réttilega bent að aðeins megi
vinna um þriðjung þekktra kolefn-
isbirgða í jörðu næstu fjörutíu árin
eða svo ef markmið um að halda
hlýnun jarðar innan við tvær gráður
eigi að nást. Af þessum birgðum eru
hins vegar tæpir tveir þriðju kol og
brúnkol og því er ljóst að langmest-
um sköpum skiptir fyrir loftslagið
hvort tekst að draga úr brennslu
þeirrar gríðarlegu kolefnisupp-
sprettu. Kröfur um að Ísland gefi
fyrir fram frá sér hugsanlega olíu-
vinnslu, sem væntanlega yrði í afar
takmörkuðum mæli, í þágu barátt-
unnar gegn hlýnun jarðar verður að
skoða í þessu stóra samhengi öllu.
Ekki ætlum við að fórna sjálfbær-
um fiskveiðum okkar vegna ofveiði
annarra þjóða.
Olíuleitarleyfi
á Drekasvæðinu
➜ Íslensk stjórnvöld
hafa í hendi sér að
gera ýtrustu kröfur
um allt sem að um-
hverfi , tækni og
öryggi snýr.
OLÍUVINNSLA
Steingrímur J.
Sigfússon
atvinnuvega-
og nýsköpunar-
ráðherra
2.304
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR
Ég og frændi minn
Kristófer Sigurðsson unglæknir
569
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR
Sakarafskrift ir
Guðmundur Andri Thorsson pistlahöfundur
567
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR
Okkar eigin ofb eldismenning
Ólafur Þ. Stephensen ritstjóri
535
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR
Viltu koma í sjómann?
Svavar Hávarðsson pistlahöfundur
438
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR
Biskup í góðum samhljómi
Einar Karl Haraldsson almannatengill
Bæjarlind 6, Kópavogi
Opið laugardag frá kl.11-16
Allt á að seljast, tilvalið að prútta!
Flísa- og baðmarkaðurinn Bæjarlind 6, flytur!
35-70%
verðlækkun
Útlitsgallaðar
flísar og
restar = mikil
verðlækkun
af gólfsalernum
(spænskar
fleira
FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúk-
linga og annarra skyldra sjúkdóma heldur fræðslufund
miðvikudaginn 16. janúar nk. Fundurinn sem hefst
kl. 20.00 verður haldinn á Droplaugarstöðum –
hjúkrunarheimili, Snorrabraut 58, Reykjavík.
Dagskrá:
• Fréttir af starfi FAAS: Fanney Proppé Eiríksdóttir,
formaður.
• „Ný þekking í erfðafræði Alzheimers sjúkdóms.
Hvert leiðir hún okkur?”
Þorlákur Jónsson frá Íslenskri erfðagreiningu og Jón Snædal
öldrunarlæknir
• Umræður og fyrirspurnir
Kaffiveitingar í boði Droplaugarstaða.
Félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta.
Allir eru velkomnir.
Bestu kveðjur
Stjórn FAAS
„Þetta eru þrír kvendóm-
arar, femínistar og komm-
únistar sem hafa verið að
ofsækja mig síðan 1994.“
Silvio Berlusconi um dómara sem dæmdu
hann til að greiða fyrrverandi konu sinni
36 milljónir evra árlega.
„Þó ég sé skepna inn að
beini vil ég ekki ljúga.“
Barnaníðingurinn Karl Vignir Þorsteinsson
segist vilja koma hreint fram.
„Mín tilfinning er sú að það
eigi að knésetja mig, knýja
mig til uppgjafar. En ég ætla
ekki að gefast upp.“
Þingkonunni Vigdísi Hauksdóttur fi nnst
umræðan um sig rætin.
„Ég skulda franska ríkinu
ekkert.“
Leikarinn Gérard Depardieu er ósáttur og
mótmælti eignaskatti með því að fl ytja til
Rússlands.
ORÐ VIKUNNAR
05.01.2012 ➜ 11.01.2012
UMMÆLI VIKUNNAR