Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 16

Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 16
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 16 Skoðun visir.is Fyrir ríflega viku voru veitt tvö sérleyfi til rann- sókna og vinnslu kolvetnis á svokölluðu Drekasvæði. Útgáfa leyfa nú er áfangi á langri leið, hvort sem við lítum til borunar rann- sóknarholu í Flatey á Skjálf- anda upp úr 1980 eða rekj- um upphafið til ályktunar Alþingis frá 1997 um skip- un starfshóps um „hvort rétt sé að hefja markvissar rannsóknir á því hvort að olía eða gas finnist á land- grunni Íslands“. Eftir að starfshóp- urinn skilaði skýrslu sinni í októ- ber 1998 var lagt fram frumvarp um leit, rannsóknir og vinnslu kol- vetnis. Ríkti pólitísk samstaða um málið á þeim tíma enda voru bæði þingsályktunin og lögin samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Nokkrar breytingar og bætur hafa verið gerðar á lögunum síðan, en á þeim grunni voru sérleyfin veitt eftir útboð. Þó svo að leyfin nú marki vissulega tímamót í þessu ferli er ljóst að langur vegur er frá því að svæðið sé rannsakað og þaul- kannað, hvað þá að boranir hefjist. Nú verður svæðið rannsakað um nokkurra ára skeið, fyrst og fremst með hljóðbylgjum og sýnatöku. Í umsögn umhverfisráðuneytisins um leyfin kemur fram að „á fyrri stigum séu rannsóknir umsækj- endanna þriggja skv. þeim áætl- unum sem þeir hafa lagt fram ekki líklegar til að valda miklu raski á umhverfinu“. Komi til þess í fram- tíðinni að sótt verði um rannsókna- boranir munu þær fara í gegnum strangt umhverfismat. Íslensk stjórnvöld hafa í hendi sér að gera ýtrustu kröfur um allt sem að umhverfi, tækni og öryggi snýr og taka þá sérstaklega tillit til aðstæðna á viðkomandi svæði, norrænnar legu þess í köldum sjó o.s.frv. og það á fortakslaust að gera. Nærtækt er að líta til staðla og reglna sem norsk stjórnvöld hafa sett varðandi umhverfis- og örygg- ismál, en þau eru almennt talin í far- arbroddi á heimsvísu í þeim efnum og byggja á mikilli reynslu. Hluti af þessum öryggiskröfum er að þau fyrirtæki sem fengu sérleyfin þurftu að uppfylla hvoru tveggja skilyrði um fjárhagslegan styrk og tæknilega getu. Þá felst aukið öryggi í því að norska ríkisolíufélag- ið Petoro skuli hafa nýtt rétt sinn til að vera fjórðungsaðili í hvoru leyf- anna fyrir sig. Víða leitað á norðurslóðum Það er ljóst að nágrannaþjóðir okkar, Norðmenn, Færeyingar og Grænlendingar, ráðgera allar olíu- leit í sínum lögsögum á hafinu í nágrenni Íslands. Olíuleit á svæð- inu við og í nágrenni Drekans munu því hefjast jafnvel þótt Íslendingar myndu ekki fara í slíkan leiðang- ur. Norðmenn hafa gert ítarlegar rannsóknir á sínum hluta Dreka- svæðisins og er það mat þeirra að þrátt fyrir að svæðið sé úti á reg- inhafi séu veðurfræðilegar aðstæð- ur um margt hagstæðar og tækni- legar aðstæður vel leysanlegar. Það ríður hins vegar á að hvergi sé slak- að á ströngustu öryggiskröfum og fyllsta ástæða er til að fylgjast vel með þeim málum enda miklir hags- munir í húfi fyrir alla aðila. Sam- starf aðila á þessu sviði er því liður í að tryggja að hvergi verði slakað á. Umhverfismál Réttmætar spurningar vegna mögu- legrar olíuvinnslu hafa vaknað um ábyrgð Íslands í umhverfis- og lofts- lagsmálum, sem eru meðal mikil- vægustu úrlausnarefna samtímans. Um það er að segja að núverandi ríkisstjórn hefur lagt mikla áherslu á að Ísland standi að Kyoto-sam- komulaginu og framlengingu þess án sérstakrar undanþágu. Jafn- framt er hafin framkvæmd metn- aðarfullrar áætlunar og margvís- legar aðgerðir til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, auka bindingu kolefnis og stuðla að orku- skiptum í samgöngum ekki síst. Á Íslandi búum við svo vel að nær öll raforka og orka til húshitunar kemur úr endurnýjanlegum orku- gjöfum. Við verðum hins vegar að gera mun betur í því að minnka notkun jarðefnaeldsneytis og auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa þegar kemur að samgöngutækjum og höfum við sett okkur það mark- mið að árið 2020 höfum við náð 10% markinu. Í þessu augnamiði höfum við meðal annars gjörbylt allri hugs- un í skattlagningu ökutækja og nú er þeim sem velja sér bíl með lága CO2-losun umbunað með lægri toll- um og aðflutningsgjöldum. Þá eru raf-, vetnis- og metanbílar undan- þegnir skatti, sem og íblöndunarefni í bensín og olíu. Ísland hefur líka ákveðið að innleiða ETS-reglukerfið um útblástur og tekið upp ýmsa aðra græna skatta til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis eins og kolefnis- gjöld. Þeir skattar byggja á þeirri hugmyndafræði umhverfisskatta að þeir sem mengi borgi. Nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar sem fjallaði um möguleg viðbrögð við hækkandi olíuverði tók ekki undir háværar kröfur hagsmunaaðila um skattalækkanir á jarðefnaeldsneyti enda væru þær ósjálfbærar. Á grunni tillagna frá henni og inn- anríkisráðuneytinu ýtti ríkisstjórn- in úr vör langstærsta átaki í upp- byggingu almenningssamgangna á Íslandi sem litið hefur dagsins ljós og mun yfir milljarður króna á ári renna til þeirra verkefna næstu árin. Nú þegar er til dæmis hægt að taka strætó úr Reykjavík og norður og austur um land. Á næstu vikum verður tilbúið frumvarp þar sem lagt verður til að hlutur eldsneytis af endurnýjanlegum eða umhverfis- vænni uppruna verði verulega auk- inn í samgöngum með íblöndun. Ísland ábyrgt í umhverfismálum Ríkisstjórnin hefur þegar sýnt og sannað að hún vill taka á málum tengdum hlýnun jarðar með ábyrg- um hætti. Það er hins vegar stað- reynd að þrátt fyrir markmið um að minnka notkun jarðefnaeldsneytis munum við þurfa að reiða okkur á það um fyrirsjáanlega framtíð til að knýja bíla, flugvélar og skip, sem og til iðnaðarframleiðslu. Spurningin sem við stöndum nú frammi fyrir er hvort við séum fyrir fram tilbúin að afsala okkur þeim möguleika að brotabrot af þeirri olíu sem vænt- anlega verður unnin á heimsvísu og notuð í áratugi til viðbótar, þar á meðal af okkur sjálfum, verði hugs- anlega unnin hér. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að hin alþjóðlega við- leitni snýr að því að draga úr losun, stuðla að auknu hlutfalli endurnýj- anlegra orkugjafa o.s.frv., fremur en að takmarka framleiðslu. Á það er þó réttilega bent að aðeins megi vinna um þriðjung þekktra kolefn- isbirgða í jörðu næstu fjörutíu árin eða svo ef markmið um að halda hlýnun jarðar innan við tvær gráður eigi að nást. Af þessum birgðum eru hins vegar tæpir tveir þriðju kol og brúnkol og því er ljóst að langmest- um sköpum skiptir fyrir loftslagið hvort tekst að draga úr brennslu þeirrar gríðarlegu kolefnisupp- sprettu. Kröfur um að Ísland gefi fyrir fram frá sér hugsanlega olíu- vinnslu, sem væntanlega yrði í afar takmörkuðum mæli, í þágu barátt- unnar gegn hlýnun jarðar verður að skoða í þessu stóra samhengi öllu. Ekki ætlum við að fórna sjálfbær- um fiskveiðum okkar vegna ofveiði annarra þjóða. Olíuleitarleyfi á Drekasvæðinu ➜ Íslensk stjórnvöld hafa í hendi sér að gera ýtrustu kröfur um allt sem að um- hverfi , tækni og öryggi snýr. OLÍUVINNSLA Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðherra 2.304 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR Ég og frændi minn Kristófer Sigurðsson unglæknir 569 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR Sakarafskrift ir Guðmundur Andri Thorsson pistlahöfundur 567 ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR Okkar eigin ofb eldismenning Ólafur Þ. Stephensen ritstjóri 535 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR Viltu koma í sjómann? Svavar Hávarðsson pistlahöfundur 438 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR Biskup í góðum samhljómi Einar Karl Haraldsson almannatengill Bæjarlind 6, Kópavogi Opið laugardag frá kl.11-16 Allt á að seljast, tilvalið að prútta! Flísa- og baðmarkaðurinn Bæjarlind 6, flytur! 35-70% verðlækkun Útlitsgallaðar flísar og restar = mikil verðlækkun af gólfsalernum (spænskar fleira FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúk- linga og annarra skyldra sjúkdóma heldur fræðslufund miðvikudaginn 16. janúar nk. Fundurinn sem hefst kl. 20.00 verður haldinn á Droplaugarstöðum – hjúkrunarheimili, Snorrabraut 58, Reykjavík. Dagskrá: • Fréttir af starfi FAAS: Fanney Proppé Eiríksdóttir, formaður. • „Ný þekking í erfðafræði Alzheimers sjúkdóms. Hvert leiðir hún okkur?” Þorlákur Jónsson frá Íslenskri erfðagreiningu og Jón Snædal öldrunarlæknir • Umræður og fyrirspurnir Kaffiveitingar í boði Droplaugarstaða. Félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta. Allir eru velkomnir. Bestu kveðjur Stjórn FAAS „Þetta eru þrír kvendóm- arar, femínistar og komm- únistar sem hafa verið að ofsækja mig síðan 1994.“ Silvio Berlusconi um dómara sem dæmdu hann til að greiða fyrrverandi konu sinni 36 milljónir evra árlega. „Þó ég sé skepna inn að beini vil ég ekki ljúga.“ Barnaníðingurinn Karl Vignir Þorsteinsson segist vilja koma hreint fram. „Mín tilfinning er sú að það eigi að knésetja mig, knýja mig til uppgjafar. En ég ætla ekki að gefast upp.“ Þingkonunni Vigdísi Hauksdóttur fi nnst umræðan um sig rætin. „Ég skulda franska ríkinu ekkert.“ Leikarinn Gérard Depardieu er ósáttur og mótmælti eignaskatti með því að fl ytja til Rússlands. ORÐ VIKUNNAR 05.01.2012 ➜ 11.01.2012 UMMÆLI VIKUNNAR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.