Fréttablaðið - 12.01.2013, Síða 32
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Ég veiddi krónhjört, villi-svín og rauðref í þessari ferð,“ segir Steinarr Lár, framkvæmdastjóri bíla-leigunnar Kúkú Camp-ers, sem nýkominn er
úr heldur óvenjulegri veiðiferð á
æfingasvæði þýska hersins suður
af Hamborg. Fyrir veiðarnar
þurfti Steinarr meðal annars að
klæða sig upp í séntilmannaföt og
heilsa öllum þeim sem komu að
veiðunum með virktum.
Steinarr Lár starfaði eitt sinn
fyrir viskíframleiðandann Jack
Daniels og stýrði dreifingu fyrir-
tækisins í Evrópu og Afríku. Í
gegnum starf sitt kynntist hann
Þjóðverjanum Georg Tunsmeyer
en faðir hans er umsjónarmaður
æfingasvæðisins. Að sögn Steinars
er svæðið um 60 þúsund hektarar
á stærð, skógi vaxið, og dýrin sem
þar þrífast sækja í nærliggjandi
bóndabæi með tilheyrandi óþæg-
indum fyrir bændurna.
„Það þarf því að grisja skóg-
inn reglulega og því eru haldnar
svokallaðar rekstrarveiðar tíu
sinnum yfir veturinn. Um fimm-
tíu veiðimenn taka þá þátt í hvert
sinn. Þeir koma sér fyrir uppi í
trjám en svokallaðir rekstrarmenn
koma dýrunum á hreyfingu með
aðstoð hunda. Síðan eru dýrin skot-
in þegar þau flýja undan rekstrar-
mönnunum. Þetta er töluvert ólíkt
veiðinni heima þar sem þú ert jafn-
an einn á ferð,“ segir Steinarr en
á þessu tímabili hafa verið skotnir
um 1.000 hirtir og 900 villisvín.
Mikil kúnst að skjóta dýrin
Steinarr segir það mikla kúnst að
skjóta dýrin enda eru þau á mikilli
ferð. „Allir veiðimennirnir fara í
svokallað „shooting cinema“ þar
sem bíómynd er varpað á vegg og
veiðimennirnir skjóta úr sínum
eigin rifflum á það sem fyrir augu
ber. Svo er reiknað út hvernig þú
ert að skjóta og hvað þarf að bæta.
Þannig vinnur þú upp hraða og
tækni,“ segir hann.
Þetta er fimmta árið í röð sem
Steinarr tekur þátt í veiðunum
og þær hafa heldur betur gengið
vel – í raun svo vel að félagar
hans eru farnir að kalla hann Sir
Huntalot.
Lúðrasveit spilar fyrir dýrin
Miklar hefðir fylgja þessum
heldri manna veiðum. „Menn
mæta ansi reffilegir til veiðanna,
allir í leðurstígvélum, veiði-
buxum og jökkum, með bindi og
hatta,“ segir Steinarr.
Hátt í hundrað manns koma að
veiðunum og þurfa allir að heils-
ast með virktum. „Þú kynnir þig
fyrir hverjum einasta manni,
tekur ofan og heilsar,“ segir
Steinarr. „Þegar búið er að fella
dýrin og hreinsa úr þeim er þeim
raðað upp í hálfgerðan blómsveig
sem er gerður úr grenigreinum.
Síðan vottar lúðrasveit þeim virð-
ingu sína með lagi. Þeir veiði-
menn sem fella dýr fá svo blóm í
hattinn sem virðingarvott.“
Samkvæmt reglum eignast
sjálft svæðið allt það kjöt sem til
fellur en veiðimennirnir mega
þó kaupa sér hlut. Ef veiðimað-
ur fellir stórt dýr greiðir hann
svokallað bráðargjald. „Ég skaut
til að mynda ansi stórt villisvín
í fyrra og þurfti að punga út
nokkur hundruð þúsund krónum
vegna þess,“ segir Steinarr.
Þýskt veiðisamkomulag
Steinarr og Georg, þýski vinur
hans, hafa gert með sér sam-
komulag, svokallað „closed
pocket policy“. Í því felst að
Steinarr kemur á hverju ári
til Þýskalands þar sem Georg
sækir hann á flugvöllinn og
græjar allt sem viðkemur heim-
sókninni. „Hann sækir mig út
á völl, sér um byssur og skot,
leyfin, mat og þess háttar. Ég
þarf aldrei að taka upp veskið á
meðan á dvöl minni þar stend-
ur.“
Georg kemur síðan til Íslands
einu sinni á ári til hreindýra-
veiða og þá gilda sömu reglur,
hann þarf aldrei að taka upp
veskið. „Þannig fáum við tvo
veiðitúra á verði eins og mikla
upplifun fyrir alla. Georg kom
einn í fyrstu ferðina en síðan þá
hefur pabbi hans komið, tengda-
pabbi og þrír vinir hans.“
Breyta þarf skotveiðileyfinu
Steinarr er mikill veiðimaður
og fór fyrst á rjúpu með karli
föður sínum þegar hann var
tíu ára. „Hann kenndi mér að
veiðimaðurinn skilur aldrei neitt
eftir sig nema sporin,“ segir
Steinarr sem hefur því verið við
veiðar í tæpan aldarfjórðung.
Hann segir margt mega bæta
hjá íslenskum veiðimönnum. „Í
Þýskalandi tekur það níu mánuði
að fá veiðileyfi. Veiðimennirn-
ir þar eru virkilega reyndir og
vita nákvæmlega hvað þeir eru
að gera. Á Íslandi eru þetta þrjú
kvöld og svo eru menn sendir
af stað með haglabyssurnar.
Íslenskir veiðimenn kunna
margir hverjir ekki að gera að
dýrunum og þekkja þau varla í
sundur. Því þarf að breyta.“
Séntilmenn veiða
í Þýskalandi
Steinarr Lár er nýkominn úr veiðiferð af æfingasvæði þýska hersins.
Hann þurfti að klæða sig upp fyrir veiðarnar enda mikið haft við. Lúðra-
sveit vottar dýrunum meðal annars virðingu sína. Veiðarnar hafa gengið
svo vel að Steinarr gengur nú undir nafninu Sir Huntalot.
Á VEIÐUM Um hundrað manns taka þátt í veiðunum á æfingasvæði þýska hersins.
MYND/STEINARR LÁR
BLÁSIÐ Í LÚÐRA Veiðarnar hefjast með lúðrablæstri. MYND/STEINARR LÁR
Á GRÆNNI GREIN Dýrunum er raðað á blómsveig úr grenigreinum að veiði lokinni.
MYND/STEINARR LÁR
DÝRUNUM VOTTUÐ VIRÐING Lúðrasveit vottar dýrunum virðingu sína. MYND/STEINARR LÁR
SIR HUNTALOT Veiðarnar hjá Steinari Lár hafa gengið svo vel að þýskir vinir hans
kalla hann Sir Huntalot. MYND/ÚR EINKASAFNI
Kristján
Hjálmarsson
kristjan@frettabladid.is