Fréttablaðið - 12.01.2013, Blaðsíða 34
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Landsmenn telja Sjálfstæð-isflokkinn best til þess fallinn að hafa forystu í fjórtán af fimmtán mikil-vægum málaflokkum sem spurt var um í skoðana-
könnun MMR. Aðeins þegar spurt
var um umhverfismál telja lands-
menn Vinstri græn henta betur til
forystu.
Almennt virðast færri treysta
stjórnmálaflokkunum til að vinna
að þeim verkefnum sem spurt var
um. Aðeins um 60,5 prósent þeirra
sem tóku þátt í könnuninni sögð-
ust treysta einhverjum ákveðn-
um stjórnmálaflokki til að leiða
að minnsta kosti einn málaflokk.
Í sambærilegri könnun sem MMR
gerði í apríl 2009 var hlutfallið mun
hærra, eða 78 prósent.
Í könnun MMR, sem gerð var
snemma í desember, voru þátttak-
endur spurðir hvaða flokki þeir
treystu best til að leiða fimmtán
mismunandi málaflokka. Meðal
þess sem spurt var um voru heil-
brigðismál, menntamál, skattar,
endurreisn atvinnulífsins og nýt-
ing náttúruauðlinda.
Þetta er í fimmta skipti sem
MMR gerir sambærilega könnun,
en sú fyrsta var gerð í apríl 2009. Í
nýjustu könnuninni bætast við þrír
málaflokkar sem ekki hefur verið
spurt um áður; skuldamál heimil-
anna, málefni Íbúðalánasjóðs og
endurskoðun á stjórnarskránni.
Hægt er að kynna sér niðurstöður
könnunarinnar í einstökum mála-
flokkum með því að skoða myndirn-
ar hér til hliðar og á síðu 36. Þar má
einnig sjá þróunina frá fyrri árum.
Gríðarlegar breytingar sjást frá
árinu 2009 á áliti landsmanna á
því hvaða flokkar séu best til þess
fallnir að leiða mikilvæga mála-
flokka. Þá sýndi könnun MMR að
landsmenn treystu Vinstri græn-
um best til að leiða sex af þrettán
málaflokkum sem spurt var um. Í
fjórum málaflokkum treystu lands-
menn Sjálfstæðisflokknum best og
Samfylkingunni í þremur. Stjórnar-
flokkarnir nutu á þeim tíma mests
trausts til að leiða níu af þrettán
málaflokkum.
Í nýjustu könnuninni er annað
uppi á teningnum. Sjálfstæðisflokk-
urinn ber höfuð og herðar yfir hina
flokkana, á meðan traustið á stjórn-
arflokkunum hrapar. Aðeins þegar
kemur að umhverfismálum nefndu
flestir Vinstri græn, 29,2 prósent,
en 28,3 prósent nefndu Sjálfstæðis-
flokkinn. Munurinn er raunar vel
innan skekkjumarka.
Minna traust á stjórnarflokkum
Í apríl 2009 nefndu yfir 50 prósent
annan hvorn stjórnarflokkanna,
Samfylkinguna eða Vinstri græn,
í öllum málaflokkunum þrettán.
Nú komast flokkarnir samanlagt
ekki nema rétt yfir fjórða tug pró-
senta í þeim málaflokkum þar sem
þeir njóta mests trausts, og yfir-
leitt njóta þeir samanlagt trausts
tæplega 35 prósenta samanlagt.
Þessi þróun helst í hendur við mikið
fylgistap stjórnarflokkanna í öllum
skoðanakönnunum.
Traust landsmanna á því að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé best til þess
fallinn að leiða mikilvæga mála-
flokka hefur aukist jafnt og þétt frá
því fyrsta könnunin var gerð, í apríl
2009. Þá naut flokkurinn að meðal-
tali 28,1 prósents trausts til að leiða
þá málaflokka sem spurt var um. Í
nýjustu könnuninni nefna að meðal-
tali 41,2 prósent þeirra sem afstöðu
tóku Sjálfstæðisflokkinn.
Álíka margir treystu Samfylk-
ingunni til að leiða þá málaflokka
sem spurt var um í apríl 2009
og treystu Sjálfstæðisflokknum.
Að meðaltali naut Samfylkingin
trausts 29,1 prósents þeirra sem
afstöðu tóku. Traustið dalaði í
næstu könnunum á eftir og mældist
18,9 prósent í desember 2011. Í nýj-
ustu könnuninni hefur traustið auk-
ist örlítið frá síðasta ári og mælist
nú 19,9 prósent.
Ólíkt Samfylkingunni hefur línan
legið beint niður hjá Vinstri græn-
um. Um 29,2 prósent landsmanna
treystu flokknum að meðaltali til að
leiða málaflokkana árið 2009. Það
traust hefur síðan minnkað jafnt og
þétt, og nú er svo komið að um 14,8
prósent að meðaltali nefna flokkinn
sem vænlegan forystusauð í mála-
flokkunum fimmtán.
Traustið á Framsóknarflokknum
hefur aukist nokkuð frá árinu 2009.
Þá töldu að meðaltali 7,4 prósent
flokkinn best til þess fallinn að leiða
þá málaflokka sem spurt var um.
Nú er hlutfallið komið í 11,3 prósent.
➜ Heilbrigðismál
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
Færri treysta stjórnmálaflokkum
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mests trausts landsmanna til að hafa forystu í fjórtán af fimmtán mikilvægum málaflokkum
samkvæmt könnun MMR. Vinstri græn njóta enn mests trausts þegar kemur að umhverfismálum en traustið dalar þó.
Stjórnarflokkarnir njóta samanlagt stuðnings innan
við 30 prósenta landsmanna samkvæmt könnun
MMR á fylgi flokkanna, sem gerð var samhliða
könnun á málaflokkum snemma í desember.
Alls sögðust 17,5 prósent þeirra sem afstöðu tóku
til einhvers stjórnmálaflokks mundu styðja Samfylk-
inguna, sem myndi skila flokknum 12 þingsætum. Þá
sögðust 11,3 prósent mundu kjósa Vinstri græna yrði
gengið til kosninga, sem myndi þýða að flokkurinn
næði átta mönnum inn á þing.
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur samkvæmt könnuninni
stuðnings um 37,4 prósenta landsmanna, og fengi
26 þingmenn. Alls styðja 13,7 prósent Framsóknar-
flokkinn, og fengi flokkurinn samkvæmt því níu
þingmenn.
Eina nýja framboðið sem kæmist inn á Alþingi
samkvæmt könnuninni er Björt framtíð, sem fengi
samkvæmt henni stuðning 11,5 prósenta landsmanna
og næði átta mönnum á þing. Aðrir flokkar fá innan
við fimm prósent atkvæða hver, en samanlagt sögðust
8,6 prósent mundu kjósa eitthvað af þeim öðru fram-
boðum sem fram eru komin.
➜ Tæp 29 prósent styðja stjórnarflokkana
Desember 2010
Desember 2012
Desember 2011
40
35
30
25
20
15
10
5
%
40
30
20
10
%
40
30
20
10
%
40
30
20
10
%
40
30
20
10
%
FYLGI FLOKKANNA
Aðrir
Aðrir
Aðrir Aðrir
Aðrir
Apr 2009
Des 2010
Des 2011
Des 2012
➜ Mennta- og skólamál ➜ Skattamál
➜ Atvinnu-
leysi
➜ Umhverfismál ➜ Efnahagsmál almennt
➜ Innflytjendamál
➜ Lög og regla almennt
40
30
20
10
%
Aðrir
40
30
20
10
%
Aðrir
40
30
20
10
%
Aðrir
40
30
20
10
%
Aðrir
Apr 2009
Feb 2010
Des 2010
Des 2011
Des 2012
Apr 2009
Des 2010
Des 2011
Des 2012
13,7% 37,4% 17,5% 11,3% 11,5% 8,6%
12
,1
%
40
%
28
,1
%
10
,7
%
8,
3%
41
,4
%
21
,2
%
16
,9
%
6,
8%
5,
3%
10
,3
%
50
,2
%
17
,6
%
10
,1
%
9,
9%
39
,4
%
21
,5
%
18
,7
%
6,
4%
10
,2
%
46
,6
%
19
,8
%
13
,9
%
10
,8
%
49
,4
%
19
,1
%
10
,3
%
15
,2
%
28
,3
%
14
,6
%
29
,2
%
6,
8%
9,
7%
49
,7
%
16
,8
%
12
,3
%
4,
8%
4,
4%
5,
2% 6,
2%
5,
9%
5,
6%6,
2%
5,
3%
5,
1%
4,
1%
4,
3%5,
2%